Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Side 12
Nota þeir gas í Sýrlandi? n Brot á alþjóðlegum samþykktum ef rétt reynist S íðastliðna daga hafa frá- sagnir um notkun efna- vopna (sarin-gas) borist frá Sýrlandi. Ástandið þar virð- ist sífellt fara versnandi og talið er að um 70.000 manns hafi látið líf- ið í átökum sem hafa staðið yfir í rúmlega tvö ár. Fjölmiðlar birtu um helgina myndir af særðu fólki sem virðist sýna einkenni um eiturefnavopn og ræddi Sky-fréttastofan við lækni sem sagðist hafa meðhöndlað fólk með slík einkenni. Reynist þetta rétt hafa átökin í Sýrlandi tekið á sig nýja mynd og færst á mun alvarlegra stig. Tak- ist að sanna að eiturefnavopn séu notuð í átökunum, er það brot á alþjóðlegum samningi um bann við notkun efnavopna, sem undir- ritaður var árið 1993. Til að fá hið sanna í ljós, þyrfti að fá erlenda og óháða sérfræðinga til að rannsaka málið. Myrti eigin þegna með efnavopnum Efnavopn voru notuð með skelfi- legum afleiðingum í stríði Íraka og Írana á árunum 1980–1988 og talið að allt að 100.000 hermann Írana hafi látið lífið vegna slíkra vopna. Í mars árið 1988 gerði Saddam Hussein árás á kúrdíska bæinn Halabja og myrti þar þúsundir eig- in þegna með efnavopnum, með- al annars sinnepsgasi og sarin- gasi. Þúsundir létust einnig vegna áhrifa eiturefnanna á árunum eft- ir árásina. Flest fórnarlambanna voru almennir borgarar. Sá ráða- maður í ríkisstjórn Íraks sem stjórn- aði aðgerðunum var eftir þetta kall- aður ,,kemíski-Ali“. Hann var síðar dæmdur til dauða fyrir þátttöku í þessum aðgerðum gegn Kúrdum. Gas notað í Helförinni Efnavopn voru einnig notuð í fyrri heimsstyrjöldinni og þá má einnig flokka þjóðarmorð Þriðja ríkisins á gyðingum í seinni heimsstyrjöld í Helförinni sem notkun á efnavopn- um. Um sex milljónir gyðinga voru myrtar í gasklefum Adolfs Hitlers. Fari svo að sögur um efnavopn í Sýrlandi reynist sannar, hlýtur al- þjóðasamfélagið að taka til sinna ráða og að minnsta kosti mótmæla því kröftuglega. Hvort gripið verður til annarra ráða og aðgerða er hins vegar of snemmt að segja til um. n Þ eir svífa næstum hljóð- laust um loftin blá, en eru þungvopnaðir og með skæð- ustu vopnum nútímans. Þetta eru „drónarnir“, litlar ómannaðar flugvélar, sem notaðar eru í auknum mæli gegn andstæðing- um Bandaríkjanna víða um heim. Bandaríkin eru þeir sem nota þessa tækni mest í dag, en allra síðustu daga hafa komið fréttir um að Bretar séu einnig byrjaðir að beita drónum. Vélarnar taka yfir? Veruleiki kvikmyndanna er hér. Við höfum horft á myndir á borð við Star Wars og The Terminator, þar sem vélar stunda hernað. Í Terminator- myndinni Rise of the Machines er til dæmis leikið með þá hugmynd að láta vélar sjá um stríð. Þær hafa engar tilfinningar og kosta minna. Engu blóði er úthellt, engir ættingjar her- manna sem syrgja. Þetta er orðið að veruleika með tilkomu drónanna, sem stjórnað er frá Nevada-fylki í Bandaríkjunum og eru sendir til loftárása til dæmis í Pakistan. Segja má að þetta sé angi af því sem George Bush yngri hóf og er kallað „War on Terror,“ eða Stríð- ið gegn hryðjuverkum. Það hófst eft- ir árásir Al-Kaída samtakanna á Tví- buraturnana í New York árið 2001. Stjórnað frá Nevada Í mjög áhugaverðri franskri heim- ildamynd frá þessu ári, sem sýnd var í sænska sjónvarpinu fyrir skömmu, var dregin upp mynd af þessum nýja kafla í nútíma hernaði. Þar voru mennirnir sýndir sem sitja í niður- gröfnum hvelfingum í eyðimörkinni í Nevada og stjórna „drónunum.“ Frá stjórnstöðinni liggur kapall þvert yfir Atlantshafið og yfir til Evrópu og í gegnum hann eru skipanirnar sendar í drónana, sem eru vopnaðir tækni- legustu flugskeytum sem bandaríski herinn hefur yfir að ráða. Yfir 3.000 fórnarlömb í Pakistan Í myndinni kemur fram að yfir 3.000 manns hafa til dæmis verið myrtir í Pakistan með drónum. Aðallega eru tvær stofnanir sem sjá um árásirnar; CIA, leyniþjónusta Bandaríkjanna og fyrirbæri sem heitir „Joint Special Operation Command“ og væri hægt að kalla „Miðstöð sérstakra aðgerða“ í Fort Bragg herstöðinni í N-Karólínu. Að loknum vinnudegi fara stjórn- endur, sem nota „gleðipinna“ eða „Joystick“ til að framkvæma aðgerðir sínar, rétt eins og í tölvuleikjum, heim til barnanna sinna, borða kvöldmat og hjálpa þeim við lærdóminn. Landamæri skipta engu Árásir af þessu tagi hófust árið 2004 og samkvæmt listum sem hugsmiðj- an New American Foundation hefur tekið saman hafa um 350 árásir ver- ið framkvæmdar, bara í Pakistan, frá 2004. Þetta er staðfest af bandarískum samtökum sem stunda rannsóknar- blaðamennsku. Árásir hafa verið gerðar í fleiri löndum, svo sem Jemen. Drónarnir geta farið hvert sem er og spyrja ekki um landamæri, þau skipta ekki máli í þessu samhengi. Náðu hámarki 2010 Hámarki náðu þessar árásir árið 2010 undir stjórn Baracks Obama, forseta Bandaríkjanna, en ári fyrr hlaut hann friðarverðlaun Nóbels. Alls voru um 120 árásir framkvæmdar í Pakistan árið 2010, þar sem Bandaríkjamenn telja að Talíbanar og liðsmenn Al- Kaída hafist hvað mest við. Sérstak- lega á svæði á landamærum Pakistans og Afganistans, sem heitir Waziristan. Í árásunum er talið að um 600–1.000 manns hafi fallið. Þar á meðal börn og almennir borgarar. Því þrátt fyrir að bandarískir ráðamenn segi að árás- ir þessar séu sérstaklega nákvæmar (kallað „surgical strikes“ á ensku og þar með líkt við nútíma skurðlækn- ingar) er það yfirleitt svo að einhverjir aðrir en skúrkarnir falla líka. Í heimildamyndinni eru mynd- skeið af fjölda árása sem sýna í raun hve fullkomlega varnarlaust fólk er gagnvart þessu nýja vopni. Einnig er sagt frá árásum þar sem bandarísk- ir ríkisborgarar hafa fallið. Þar með vaknar stór spurning: Standa banda- rísk yfirvöld að aftökum á eigin ríkis- borgurum? Engar tilfinningar Tilkoma drónanna þýðir að nýr kafli er hafinn í nútíma hernaði. Ekki er um það að ræða að lífum flugmanna sé stofnað í hættu, flugmanna sem kostar milljónir dollara að þjálfa. Drónar geta verið á lofti 24 klst. á sól- arhring og þurfa enga hvíld. Drónar hafa enga samvisku og engar tilfinn- ingar. Drónar spyrja engra spurninga og þekkja ekki efa. Þeir gera það sem fyrir þá er lagt. Velkomin í tæknistríð 21. aldarinnar! n ÁrÁs drónanna n Bylting í hernaði um þessar mundir n USA notar ómannaða dróna til loftárása Umdeild vopn Mikil umræða á sér stað um þessar mundir um notkun dróna í hernaði og sýnist sitt hverjum. Myndin er frá æfingastöð fyrir dróna í Nýju-Mexíkó, þar sem drónunum er stjórnað með fullkomnum myndavélum og „gleðipinnum.“ 12 Erlent 29. apríl 2013 Mánudagur Gunnar Hólmsteinn Ársælsson blaðamaður skrifar „Rándýrið“ Nafngiftin „Predator“ – rándýrið, er kannski við hæfi, enda drónar sem notaðir eru til árása, þungvopnaðir, meðal annars laser- stýrðum Hellfire-flugskeytum, sem eru hönnuð til að granda brynvörðum skriðdrekum. Syrgir ættingja Íraskur Kúrdi syrgir ættingja í kirkju- garði þar sem fórnarlömb Halabja-árásarinnar hvíla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.