Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Qupperneq 14
Sandkorn K osningaúrslitin fela í sér þau stórtíðindi að Framsóknar­ flokkurinn hefur fengið umboð kjósenda til þess að afskrifa öll húsnæðislán sem hvíla á íslenskum heimilum. Fyrir kosn­ ingarnar árið 2009 lofaði flokkurinn að lækka lánin almennt um 20 prósent. Þar skipti lánsfjárhæðin engu. Í kosn­ ingabaráttunni gerði flokkurinn út á sama loforð. Heimilin voru sett efst á loforðalistann og það átti að leiðrétta samkvæmt þeim forsendubresti sem varð við hrunið. Næstum fjórði hver kjósandi keypti þann málflutning og kaus flokkinn. Skilningur flestra var sá að 20 prósenta boðið stæði ennþá. Og nú er runninn upp sá tími að staðið verði við loforðin. Til þess þarf Framsóknarflokkurinn að fara í rík­ isstjórn. Að því gefnu er engin leið til annars en að á allra næstu mánuðum njóti heimilin veglegrar skuldaniður­ fellingar. Loforð Sjálfstæðisflokksins ganga út á skattalækkanir og lægra veiðigjald í sjávarútvegi. Sameigin­ lega ganga tillögur flokkanna tveggja út á það að lækka álögur á almenning og skerða tekjur ríkisins. Þetta er það sem kosið var um. Öll viljum við lægri skatta og skuldaniðurfellingar í ein­ hverju formi. Takist nýrri ríkisstjórn það án þess að til efnahagslegrar koll­ steypu komi blasir við pólitískur stöð­ ugleiki. Vandi nýrra stjórnarherra er hins vegar sá að mæta útgjöldunum með einhverjum hætti. Hvorugur flokkanna útlistaði það hvernig ríkið getur sparað í rekstri sín­ um. Fyrir liggur að báknið er ofvaxið og ótal tækifæri til að skera þar niður. Fækka þarf opinberum starfsmönnum til að spara á móti útgjöldum. Það ætti raunar að hugnast Sjálfstæðismönn­ um vel að draga saman ríkisrekstur og blása lífi í einkageirann. Það er gjör­ samlega útilokað að menn geti staðið við kosningaloforðin án þess að taka jafnframt á öðrum útgjöldum í rekstri ríkisins. En það verður erfitt og mun þurfa sterk bein. Óljóst er hvort Bjarni Benedikts­ son og Sigmundur Davíð Gunnlaugs­ son ná saman um myndun ríkisstjórn­ ar. Sjálfstæðismenn hafa sumir hverjir lýst loforðum Framsóknar um skulda­ niðurfellingu sem Barbabrellu sem muni kosta verðbólguskot. Væntan­ lega munu þeir ekki leggja nafn sitt við tillögurnar. Þá er erfitt fyrir Bjarna að láta frá sér forsætisráðherrastólinn til Sigmundar. Það eru því mörg ljón í veginum. Eitt er þó víst. Framsóknar­ flokkurinn verður að fara í ríkis­ stjórn til að það reyni á loforðin. Það er niðurstaða hamfarakosninganna. Í versta falli ættu aðrir flokkar að tryggja minnihlutastjórn hans hlutleysi og láta flokknum þannig eftir að framfylgja loforðunum. Venjulega er talað um að hveiti­ brauðsdagar nýrra ríkisstjórna séu 100 talsins. Að þeim tíma liðnum komi í ljós hvort hún heldur meðbyrnum eða lendir í hörðum mótbyr. Ólíklegt er að samstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafi svo langan tíma. Helmingur kjósenda styður ekki þessa flokka og eru fullur vantrausts og reiði. Óróleikinn liggur í loftinu. Þetta er ekki ríkisstjórn sem nýtur þolinmæði. Það gæti því farið svo að það syði upp úr og mótmælendur létu til sín taka eins og árið 2009. Það er stutt á Austurvöll. n Eggjahljóð í Össuri n Össur Skarphéðinsson utan­ ríkisráðherra er síður en svo bugaður þótt flokkur hans hafi beðið afhroð með því að helmingur fylgisins hvarf. Össur viðurkenndi fúslega í útsendingu á RÚV að ,,ham­ farir“ hefðu dunið á Samfylk­ ingunni. Í framhaldinu kom mikið eggjahljóð í hann þar sem hann hældi Sigmundi Davíð fyrir öfluga kosninga­ baráttu. Duldist þá engum daðrið. Hrap siðfræðings n Eitt stærsta stjörnuhrap á síðari tímum var þegar Stefán Einar Stefánsson, sið­ fræðingur og þáverandi formaður VR, var felld­ ur með yfir­ burðakosn­ ingu Ólafíu Rafnsdóttur. Stefán Einar hefur verið af­ skaplega umdeildur en var talinn eiga sér mikla framtíð í Sjálfstæðisflokknum sem formaður í landsins stærsta stéttarfelagi. Nú er tíðin önn­ ur og ferillinn er í dimmum skugga fallsins. Fallinn og reiður n Sú ákvörðun að skipa Bryndís Hlöðversdóttur, fyrr­ verandi þingmann og laga­ prófessor, sem formann stjórnar VR leggst mis­ jafnlega í menn. Helgi Magnússon, fráfarandi formaður, varar við því að fyrrverandi stjórnmálamað­ ur sé valinn til verka. Harka­ legustu mótmælin koma þó frá hinum fallna formanni VR, Stefáni Einari Stefáns- syni, sem er reiður og hyggst skipta um lífeyrissjóð. Þorsteinn virtur n Þorsteinn Pálsson, fyrrver­ andi formaður Sjálfstæðis­ flokksins, situr nú á friðar­ stóli og nýtur gríðarlegr­ ar virðingar. Aftur á móti hefur margur íhaldsmað­ urinn skömm á Davíð Odds- syni, ritstjóra Moggans, sem á sínum tíma felldi Þorstein sem formann. Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður vekur á bloggi sínu athygli á stöðu þessara tveggja for­ manna og kemst að því að Davíð hafi tapað á endanum. „Varla hefur nokkur maður tapað jafn stórt“. Ég hef alltaf verið mjög straight Hafa af mér lífshlaup mitt Andri Snær Magnason hefur aldrei notað eiturlyf – DV Aðalbjörn Jóakimsson tapaði öllu og kennir bankanum um – DV Stutt á Austurvöll „Fram sóknar flokkurinn verður að fara í ríkisstjórn E nga þarf að snoppunga til skiln­ ings á því hver var hin skýra niðurstaða kosninganna. Á morgni – sem fyrir okkur í Sam­ fylkingunni rann upp blóðrauður – skeiðaði Framsókn heim í hlað sem hinn óumdeildi sigurvegari. Hún fékk að sönnu ríflega 2% minna en Sjálf­ stæðisflokkurinn, en jafnmörg þing­ sæti, og bætti sig um miklu meira fylgi. Í ofanálag hverfðist umræðan öll um það málefni sem hún bar frek­ ast fram – skuldalækkun heimilanna. Úrslitin leiddu því fram að mínu viti skýran vilja til að Framsókn fái að spreyta sig á að leiða landsstjórn með það sem forgangsverkefni að lækka höfuðstól skulda eftir Framsóknar­ leiðinni. Niðurstaða kosninganna getur því varla hnigið að öðru en Sig­ mundur Davíð fái fyrstur umboð til að reyna stjórnarmyndun. Blóðrauður morgunn Varla er trúverðugt að skilgreina Sjálf­ stæðisflokkinn sem sigurvegara þó hann hafi fengið slyndrunni meira af atkvæðum en Framsókn. Við bestu hugsanlegu aðstæður var fengur hans í lok kjördags næstversta útkoma flokksins í sögunni. Fylgi hans er langt undir sögulegri stærð fyrir utan að vera miklu minna en langvarandi kannanir sýndu fram að landsfundi. Hins vegar fær Bjarni Benediktsson pre fyrir þá skapandi túlkun að skil­ greina útkomuna sem „glæsilegan sigur.“ Athygli vakti, að Hanna Birna var á annarri skoðun. Ég get ekki leyft mér sama munað og Bjarni í túlkun á afdrifum Sam­ fylkingarinnar. 12,9% hlutur jafnað­ armanna er vitaskuld ekkert annað en afhroð í dýpsta skilningi þess orðs og hafa jafnaðarmenn vítt um álfuna líklega aldrei lifað blóðugri morgun. Sigrarnir miklu, þegar fylgið lá við 32% í kosningum til sveitarstjórna 2002 og alþingis 2003, rifja hins vegar upp hvers jafnaðarmenn eru megn­ ugir. Skein þá í gliti sólar fífilbrekkan í gömlu formannsminni. Misjöfn stríðsgæfa ríkisstjórnar­ flokkanna á lokaspretti kosninganna – sem yfirleitt skiptir miklu, stundum mestu – var einkar athyglisverð. VG lagði á stökkið heldur laskaðri en við og mældist með 7,4% í kringum sinn eigin landsfund. Frá þeirri könnun vann flokkurinn ríflega þrjú prósent meðan Samfylkingin tapaði næstum þremur. Frá landsfundi fór hún úr 15,6% fylgi í könnun Capacent­Gallup í 12,9% í kosningunum. Væntan­ lega munu menn ekki skirrast við að greina þær ástæður sem að baki liggja – enda sérstök áhersla lögð á það af flokknum að segja þjóðinni satt. Líf Framsóknar liggur við Fyrir utan mikla ósigra í kosningum er mín reynsla sú að fátt sé óhollara formönnum en miklir sigrar. For­ maður Framsóknarflokksins er einkar vel að sínum kominn. Hann hefur sýnt fágæta staðfestu, nú síðast í að berja fremst á dagskrána Fram­ sóknarleiðina um skuldalækkanir heimila. Fram á síðustu stundu, og jafnvel eftir að henni sleppti, hamr­ aði Sigmundur Davíð á því að Fram­ sóknarleiðin væri algjört úrslitaatriði við stjórnarmyndun. Undir lagði for­ maðurinn ekki bara æru Framsókn­ ar, heldur sitt góða nafn – og þjóðin trúði honum. Nú fær hann að spreyta sig – sem réttmætt er. Hann lofaði þeim sem vöknuðu með stökkbreyttar skuld­ ir daginn eftir hrun skjótri úrlausn. Þegar ég benti á merkilegt svar Frosta Sigurjónssonar sem mátti túlka þannig að að lækkanirnar ættu að koma á 20 árum gullu þeir jafn­ harðan við, Framsóknarmenn, og sögðu að skuldaniðurfellingarnar kæmu strax – gegnum banka með sérstökum samningum (sem ríkið greiddi svo bönkunum á 20 árum). Á efndum þessa loforðs verður Fram­ sókn, og Sigmundur Davíð persónu­ lega, vegin og metin. Framkvæmd og efndir skipta því ekki bara skuldara máli – heldur er trúverðugleiki flokks og formanns undir. Kaldar ástir Milli Framsóknar og Sjálfstæð­ ismanna ríkir heldur engin ást. Þægindahjónaband er að sönnu kostur millum stórvelda, en það verður hins vegar snúið að koma slíku brullaupi á í samningum við Bjarna. Þeim góða dreng verður ekki úr háska borgið – með hýen­ ur flokksins einlægt japlandi á hæl­ um sér – nema hann nái því að leiða Sjálfstæðismenn til forystu og verði sjálfur forsætisráðherra. Það getur Sigmundur Davíð trauðla fallist á í nýrri stöðu. Hinn mikli sigur gerir að verkum, að hann mun bregðast vonum hins nýja, víðfeðma baklands ef hann tekur sér ekki valdið, sem er hans í dag, til að verða forsætis­ ráðherra. Að því hefur hann fleiri en eina leið, og fleiri en tvær. Hefur hann ekki kjarkinn? – munu menn spyrja. Oft, og lengi. Spurningarnar tvær, um forystu í ríkisstjórn, og um Framsóknar­ leiðina í málefnum skuldara, munu því ráða hvort þeim pólitísku frænd­ um Sigmundi Davíð og Bjarna tekst þrátt fyrir kaldar ástir flokka sinna að berja saman ríkisstjórn. Gangi það eftir, ræðst síðan framtíðar­ gæfa Framsóknar sem flokks, og Sigmundar Davíðs sem stjórnmála­ manns, af því hvernig tekst að fram­ kvæma skuldalækkanirnar. Ég spái því, að Sigmundur Dav­ íð og Framsókn hafi 100 daga til að sýna hvort þeir geti staðið við lof­ orðin. Ég óska þeim gengis í því – enda hef ég lagt nokkrar hugmyndir inn í það púkk á bloggi mínu. n Höfundur er endurkjörinn al- þingismaður. Sigmundur Davíð hefur 100 daga Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 14 29. apríl 2013 Mánudagur Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is Aðsent Össur Skarphéðinsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.