Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Side 15
N okkrum vikum fyrir kosningar skrifaði ég grein í þetta blað undir fyrirsögninni Sú gamla kemur kannski aftur. Nú er hún að koma. Í greininni benti ég á þessar staðreyndir um væntanlega stjórnar- flokka: „Þeir eru á móti nýjum náttúru- verndarlögum og ætla að breyta þeim strax og þeir taka við. Þeir eru á móti auðlindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Þeir eru á móti nýjum Landspítala. Þeir eru á móti viðræðum við ESB og munu slíta þeim strax. Þeir eru á móti því að breyta lög- um um Lánasjóð íslenskra náms- manna eins og menntamálaráðherra lagði til. Þeir eru á móti rammaáætlun og ætla að breyta henni í sumar. Þeir eru með fleiri álverum. Þeir vilja fá að einkavinavæða bankana aftur. Þeir vilja lækka skuldir heimilanna eins og skatta um hundruð milljarða. Þeir hafa ekki svarað því hvernig á að afla fjár á móti: Er það með niður- skurði? Hvaða? Er það með öðrum skattahækkunum hvaða? Er það með halla á ríkissjóði?“ Þetta var ekki hægri sigur Þjóðin vissi þetta en stórum hluta kjósenda var alveg sama þegar kom í kjörklefann. Það er hins vegar mik- ilvægt að hafa í huga að þeim grænu félagslegu sjónarmiðum sem var vikið að hér að ofan var ekki hafnað í kosn- ingunum. Litlu framboðin sem ekki fengu mann voru mörg hver félags- lega sinnuð og umhverfisvæn í mál- flutningi sínum. Það er því hægt að fullyrða að A, S og V og þessi framboð hafi fengið um 40 % atkvæða. Stjórn- arflokkarnir væntanlegu verða því að vara sig á því að vera ekki of hrokafull- ir gagnvart þeim sjónarmiðum sem rakin voru í greininni snemma í apríl. Var kosningasigur flokkanna í gær hægri sigur? Píratar unnu sigur og komust inn þrír. Þeir eru hvorki hægri né vinstri flokkur. Það er ekki hægt að kalla það hægri sigur. Björt framtíð vann sigur. Björt framtíð er ekki – samkvæmt eigin skilgreiningu – vinstri flokkur, frekar grænn miðju- flokkur eins og Radikale venstre í Danmörku. Björt framtíð sækist eftir aðild að Liberal International. Sigur Bjartrar framtíðar er ekki hægri sig- ur. Björt framtíð hafði auk þess stað- ið með vinstri stjórninni undanfarna mánuði og kjósendur hennar litu flestir á hana sem vinstri kost. Hver vann þá hægri sigur? Hægri græn- ir fengu 1,7% atkvæða. Ekki var það hægri sigur. Sjálfstæðisflokkurinn fékk næstverstu kosningar í sögunni 26,7%. Fylgistölur Sjálfstæðisflokksins í 50 ár eru þessar í hlutföllum á landvísu: 41,4%, 37,5%, 36,2%, 42,7%, 32,7% 35,4%, 38,7%, 27,2% (Borgaraflokkur bauð fram líka), 38,6%, 40,7%, 33,7%, 36,6%, 2009: 23,7%. Með öðrum orð- um: Sjálfstæðisflokkurinn er að fest- ast undir þrjátíu prósentum og í þetta skiptið hefur hann það naumlega að vera stærsti flokkurinn. Þetta var því ekki hægri sigur. Hvað heitir þessi stefna aftur? Hvaða sigur þá? Af hverju vannst sig- urinn? Það var held ég fráfarandi rík- isstjórn sem tók upp slagorðið um skjaldborg heimilanna. En hún ræddi það aldrei nógu skýrt hvað það þýddi. Það opnaði leið fyrir yfirboðsflokka til að bjóða í atkvæði þjóðarinnar. Að tala um heimili sem eitt hugtak á Ís- landi er fjarstæða, bull. Sum heim- ili eru fátæk, önnur rík, flest þar ein- hvers staðar á milli. En slagorðið varð svo sterkt að margir flokkarnir eltu uppi Framsóknarflokkinn sem í kosn- ingabaráttunni talaði um skuldamál heimilanna án frekari skilgreiningar. Og Framsóknarflokkurinn gerði það svo markvisst allt kjörtímabilið að það hafði myndast gríðarlegt uppistöðu- lón þegar leið að kosningum. Svo kom Icesave dómurinn. Framsókn fékk þá niðurstöðu sem enginn bjóst við: Að Ísland þyrfti ekki að borga – en samt erum við að vísu að borga. En þjóðin upplifði það þannig að með dómnum hefði þjóðin frelsast undan Icesave, Framsókn var eini flokkurinn sem alltaf hafði verið á móti því að semja um Icesave. Það sem sanna átti hafði verið leitt fram: Framsóknarflokk- urinn skírskotaði til staðfestu sinnar í Icesave málinu og sagði: Ég bjargaði þjóðinni undan Icesave – ég get líka leyst skuldavanda heimilanna. Þjóðin sem átti að vera algerlega á hausnum samkvæmt sama Framsóknarflokki átti nú allt í einu þrjú hundruð milj- arða sem átti að sáldra yfir alla þjóð- ina. Framsókn opnaði uppstöðulónið og atkvæðafljótið streymdi fram. Er þetta hægri stefna? Það er spurningin. Samhliða þessari ein- stefnu Framsóknar sem margir flokk- ar gáfust upp fyrir – ekki VG – þá var keyrð áfram þjóðremba í nýjum hæð- um. Íslenski fáninn var alltaf hafður við hliðina á formanninum og svo var talað illa um útlendinga, þeir sem vildu semja við útlendinga voru kall- aðir landráðamenn. Og svo var kallað á sterka manninn. Fyrst var það Ólaf- ur Ragnar Grímsson sem vísaði mál- um ótt og títt í þjóðaratkvæðagreiðsl- ur. Og var svo endurkjörinn forseti með 52,8% atkvæða eða svipaðri tölu og D og B fengu í núna 51,1 % enda að stórum hluta til sama fólkið. Og Sig- mundur Davíð steig inn í áru sterka mannsins eins og Ólafur Ragnar. En hvað heitir þessi stjórnmálastefna aft- ur: Sterkur maður, popúlismi, þjóð- remba, útlendingaandúð, yfirboð í sambland við vinsæla tillögu sem allir geta grætt á? Framsókn rak listilega kosninga- baráttu og vann sigur. Það fer ekkert á milli mála. En þetta er ekki hægri stefna. Í framsókn er fjöldi góðra vinstri manna. Framsókn fékk 23,3% 1995; núna 24,4. Það tók tólf ár að éta upp þann sigur. Verða þá næstu stjórnarskipti 2025? Grein minni í byrjun apríl lauk ég með þessum orðum: „En nú er kosningabaráttan að byrja. Það getur margt gerst. En margt bendir til þess að gömlu stjórnar- flokkarnir taki aftur við í maí. Þeir voru í tólf ár; 1995–2007. Það var komið nóg en er það svo? Kosn- ingarnar leiða það í ljós.“ Þjóðin vildi meira. Það er komið í ljós um helgina. Þau skoði sinn gang Og svo er það fráfarandi ríkisstjórn. Skoðum báðar hliðar. Samfylkingin hafði við hliðina á sér flokk sem var með alveg sömu stefnuna í grundvallaratriðum, Bjarta framtíð. Leiðtogi Bjartrar framtíð- ar var oft góður og öruggur í viðtals- þáttum sjónvarpanna en auk hans var margt álitlegt fólk í sveitinni. Nú hefur formaðurinn skilgreint flokk- inn sem grænan frjálslyndan miðju- flokk. Hann tók til sín það fylgi sem nýji formaður Samfylkingarinnar vildi standa fyrir, miðjufylgi. Þannig var hinn nýji formaður fylgislega landlaus í kosningabaráttunni af því að hann reyndi líka að fjarlægja sig því verki sem ríkisstjórnin hafði unnið. Hann taldi ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar- dóttur of langt til vinstri! Þá bauð fram Lýðræðisvaktin. Hún bar fyrir brjósti mál sem Jóhanna Sigurðardóttir hafði gert að sínu að- almáli. Stjórnarskrármálið. Samtals fengu Björt framtíð og Lýðræðisvakt- in 10,7% atkvæða. Það er engin fjar- stæða að ætla að Samfylkingin hefði átt að geta fengið nær allan þennan stuðning. En fékk bara 12,9% atkvæða. Það er hrun. Hvar er flokkurinn sem við stofnuðum forðum úr Alþýðu- bandalaginu, Alþýðuflokknum, Þjóð- vaka og Kvennalistanum? Átti að fá 30% minnst. Vissulega gerði Samfylk- ingin mörg mistök á upphafsárum sínum, mistök sem urðu að nokkru leyti undirstaða Vinstri hreyfingar- innar græns framboðs. Nefni ESB og Kárahnjúkavirkjun. En Samfylkingin hélt þá um 30% atkvæða. Nú 12,9%. Svar okkar við stóru stjórninni hjá Davíð og Halldóri 1995 var að reyna að sameina alla vinstri flokkana. Það gekk ekki og verður ekki reynt á sama hátt aftur. Ekki á sama hátt. En menn hljóta að leita nýrra leiða. Þessi staða nú með fjóra smáflokka á móti tveim- ur flokkum með 25% hvor er algerlega fráleit. Samfylkingin verður því að skoða sinn gang En það þurfa Vinstri grænir líka að gera. Þeim tókst að vísu betur upp. Ýmislegt lagðist gegn þeim. Í fyrsta lagi var eitt framboð sérstak- lega og mér liggur við að segja ein- göngu stofnað til höfuðs Vinstri hreyfingunni grænu framboði og sér- staklega fyrrverandi formanni henn- ar. VG tókst að verjast þessari atlögu snilldarlega og halda svo vel á ESB- málinu allt frá landsfundi í febrúar að flokkurinn stóð af sér atlögu Jóns Bjarnasonar og félaga. Fullyrða má að verulegur hluti af því litla fylgi sem J- listinn fékk hefði átt að fara til VG. Það var að vísu ekki nema eitt prósent, en það munar um allt. Sérstaklega var reyndar athyglisvert að í norðvest- ur kjördæmi fékk listi Jóns Bjarna- sonar aðeins 4,5% og hafði með því nærri tekist að fella Lilju Rafneyju, út af þingi. Sá bráðskemmtilegi maður Bjarni Harðarson sagðist kvöldið fyr- ir kosningar finna mikinn stuðning; hann reyndist hvorki meira né minna en eitt og hálft prósent. En með þessu litla fylgi sem ella hefði fallið á VG tókst þeim Jóni Bjarnasyni að koma i veg fyrir að Arndís Soffía efsti maður VG á Suðurlandi kæmist á þing. Og augljóst er að þeim Jóni og félögum tókst að skaða VG meira á Suður- og Norðvesturlandi en annars staðar. Enda var það meiningin. Það verður að muna að síðustu misserin hefur VG haft tíu til ellefu manna þingflokk. Rauntapið er því ekki eins stórt og samanburður á kosningatölum gefur til kynna. En af hverju tapaði VG? Svarið er margþætt. VG tapaði ekki vegna þeirra verka sem ráðherrar flokks- ins unnu. Steingrímur J. Sigfússon á stuðning og aðdáun fyrir verk sín og afrek í efnahagsmálum. Í umhverfis- málum varð kerfisbreyting á Íslandi, í grænum hópum eru VG langsterkasti flokkurinn. Margvíslegir áfangar unn- ust í mannréttindamálum og framlög til menningarverkefna voru marg- földuð. Allt þetta hjálpaði VG. Líka vel rekin og smekkleg kosningabarátta. Konurnar komu VG til liðs. Í einni könnuninni hafði VG 11% á landsvísu 6% karla en 15% kvenna. VG var á fljúgandi ferð síðustu daga kosninga- baráttunar. Það sést til dæmis á því að VG lækkaði í lokatölunum, það er at- kvæðunum utan kjörfundar sem voru greidd þegar flokkurinn lá í 6–7% atkvæða. Það sem varð VG þyngst í skauti voru átökin innan flokksins allt kjörtímabilið. Þau átök voru ekki um ESB af því að flokkurinn er á móti að- ild að ESB. Þau átök voru persónuleg, um völd og ráðherrastóla. Afleiðingin sést í þeim kjördæmum þar sem VG er með einstafstölu í fylgi. En styrkur VG í dag liggur í því að flokkurinn er algerlega samstæður. Þar er sátt um formanninn sem stóð sig glæsilega í kosningabaráttunni. Hún á því að geta leitt flokkinn til endurnýjunar og endurreisnar. Það er ekki eins auðvelt fyrir formann Sam- fylkingarinnar. Hér hefur verið farið yfir aðalat- riðin varðandi stjórnmálaflokkana og úrslitin. Enn er óskrifað um heildar- samhengið. Hvert stefna stjórnmálin á nýrri öld? Við glímum við þá spurn- ingu síðar. n Ég spái góðu sumri Ég varð að komast burt Páll Bergþórsson fyrrv. veðurstofustjóri spáði í veðrið – DVAngella Ojara flúði frá Úganda til Íslands – DV Verða næst stjórnarskipti 2025? 1 Þetta eru þingmennirnir sem taka við Alþingi 27 nýir þingmenn náðu kjöri í alþingiskosningunum um helgina. 2 Helga Vala: „Ætli hún sé ekki bara svona óþekk“ Snærós Sindradóttir, dóttir Helgu Völu Helgadóttir, var handtekin í búsáhaldabyltingunni. 3 Maðurinn sem lagði Lýsingu: „Þetta fór vel að lokum“ Bjarnþór Erlendsson ætlar ekki að fagna fyrr en Lýsing greiðir honum það sem oftekið var. 4 Birgitta: „Ég er ánægð með að þessi áhætta sem ég tók bar ávöxt“ Birgitta leiddi fyrstu píratana á þing. 5 Sölvi áreittur af „lady boys“ Sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason lendir í ýmsu á ferðalagi sínu um Asíu. 6 Andrea: „Hvernig á ég að hafa eyðilagt Dögun?“ Andrea Ólafsdóttir varðist í umræðuþræði á Facebook sem snerist um Dögun. 7 Stefán: Framsókn bauð heim-ilunum það sem þau vildu Stefán Ólafsson prófessor greindi kosningabaráttu Framsóknarflokksins. Mest lesið á DV.is Umræða 15Mánudagur 29. apríl 2013 Þetta fór vel að lokum Bjarnþór Erlendsson lagði Lýsingu í Hæstarétti – DV Aðsent Svavar Gestsson fv. ráðherra Listileg kosningabarátta skóp sigurinn „En þjóðin upplifði það þannig að með dómnum hefði þjóðin frelsast undan Icesave, Framsókn var eini flokkurinn sem alltaf hafði verið á móti því að semja um Icesave.“ V iku eftir að Sigmundur Davíð og Bjarni setjast inn í stjórn- arráðið gefa þeir út yfirlýsingu um að viðskilnaður ríkisstjórn- ar Jóhönnu Sigurðardóttur sé slíkur að ekki verði í bráð unnt að efna loforð um skuldaniðurfærslu heimilanna. Þar að auki verði að fresta um óákveðinn tíma boðuðum skattalækkunum. Þetta er gamalt trix og er notað af fólki sem á í erfiðleikum við að standa við kosningaloforð. Að þessu sinni er rétt að vara við þessu tímanlega. Í sjónvarpinu í dag var Sigmund- ur spurður um framhald ESB aðildar- umsóknarinnar. Hann kvaðst vilja vita hvort ESB ætlaði að leggja stein í götu sína við að ná fé af Hrægömmum til að rétta heimilum. Það hlyti að hafa áhrif á afstöðu hans til aðildarumsóknarinnar og hvort – og þá hvenær – ætti að bera ESB málið undir þjóðina. Hann gaf til kynna eina ferðina enn að ESB sæti um Ísland rétt eins og hann taldi að það hefði setið um Ísland í Icesave-málinu. Þetta er ósvífin og forhert yfirlýs- ing hugsuð til að friða Guðna, Vigdísi, Ásmund Einar og þau hin. Um 60 pró- sent vogunarsjóða, sem eiga kröfur hér á landi, eru í Bandaríkjunum. Almennt séð kemur þetta mál ESB ekkert við. Það kemur hins vegar ESB við hvort við stöndum við EES samninginn. Það gerum við ekki. Hér ríkja fjármagnshöft sem brjóta gegn fjórfrelsi innra mark- aðarins. Neyðist Sigmundur Davíð og Bjarni einnig til að setja á innflutnings- höft í örvæntingu sinni við að halda í krónuna verður um nýtt brot að ræða gegn fjórfrelsinu. Hendi Silfurskeiðastjórnin ESB á dyr er eins líklegt að það hafi alvarlegar afleiðingar, til dæmis varðandi deilur um flökkustofna eins og makríl. Hér fá útlendingar ekki að fjárfesta í sjávar- útvegi og eins víst að ESB vilji hafa þá reglu gagnkvæma stirðni sambandið við Evrópu. Hvað verður þá um um- svif Samherja í Þýskalandi, Bretlandi, Frakklandi, Spáni og Kýpur? Svona mætti áfram telja. n Höfundur er upplýsingafulltrúi frá- farandi ríkisstjórnar. Silfurskeiðarstjórnin Af blogginu Jóhann Hauksson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.