Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Side 20
20 Sport 29. apríl 2013 Mánudagur Huldumaðurinn Rory McIlroy n Tímabilið í golfinu byrjar vel en stórar spurningar eru um besta kylfing heims á síðasta ári Á rið 2012 var hvorki opnað dagblað né vefsíða án þess að þar væri mjög líklega nafn kylfingsins Rory McIlroy í skýrum og stórum stöfum enda átti stráksi vægast sagt stórkostlegt tímabil í golfinu. En eins og hljóm- sveit sem á eitt topplag og svo ekki söguna meir hefur vart bólað á McIlroy síðan í september og þau skipti sem hann hefur látið sjá sig í keppni hafur hann leikið langt und- ir væntingum. Tal um McIlroy verður háværara í fjölmiðlum því minna sem fer fyrir þessum besta kylfingi heims sam- kvæmt heimslista atvinnukylfinga á síðasta ári. Kappinn sem nán- ast vann öll mót sem hann tók þátt í á síðasta ári eða hafði möguleika á því í flestum tilfellum hefur ekki komist nálægt toppnum í neinni keppni síðan í september síðast- liðnum. Hann hefur ekki náð sér á strik og umtalað er þegar hann hætti sísona í miðri keppni þar sem illa gekk. Þetta fall Norður-Írans er um- talsefni víða. Margir atvinnu- kylfingar sem sáu ekki sólina fyr- ir McIlroy lýsa því nú yfir að Tiger Woods sé enn besti kylfingur heims og McIlroy hafi aðeins átt eitt stór- kostlegt tímabil en flest bendi til að hann verði meðalkylfingur í framtíðinni. Nú síðast lét Brandt Snedeker þau orð falla og kvaðst leiður yfir þessari stöðu vegna þess að átök Tiger Woods og Rory McIl- roy hafa blásið miklu lífi í golfheim- inn enda hafi verið þörf á nýrri stjörnu í bransann. Sjálfur virðist McIlroy hafa litl- ar áhyggjur. Hann hefur eytt meiri tíma með nýrri kærustu síðustu mánuðina en í golfið og hefur slak- að á í Mónakó eftir að hafa dottið út í Masters-keppninni fyrir skömmu. n H inn litríki þjálfari Real Madrid, Jose Mourinho, hugsar þýska sóknarmanninum Robert Lew andowski hjá Dortmund væntanlega þegjandi þörf- ina eftir að sá síðarnefndi hamraði fjóra bolta inn í mark Spánverjanna í fyrri undanúrslitaleik þessara liða í Meistaradeild Evrópu. Mourinho hef- ur lengi vel sagt að Meistaradeildar- titill með Real væri hið raunverulega markmið sitt þetta árið og fram að fyrri leiknum leit það markmið vel út. En mikið má ganga á til að Mourin- ho leiði Real inn á Wembley þann 25. maí en það yrði í fyrsta skiptið í tíu ár sem spænsku meistararnir tækju þátt í þeim leik. Mourinho hættur? Fullyrt er í erlendum miðlum að Mo- urinho hafi þegar gert samkomu- lag um að yfirgefa herbúðir spænska liðsins strax eftir leiktíðina og er Chelsea nefnt til sögunnar sem næsti viðkomustaður kappans. Vakti furðu margra að þær fregnir hafi lekið út fyr- ir fyrri leik Dortmund og Real enda gefur það varla mikinn byr í segl leik- manna Real ef þjálfarinn hefur ekki meiri trú á liði sínu en svo að hann stekkur frá borði á ögurstundu. Hvort það hafi haft áhrif í fyrri leiknum skal ósagt látið en Real var í öllu falli ekki að spila þann leik af mik- illi ástríðu og Mourinho sjálfur var þögull og rólegur allan leikinn ólíkt því sem oft hefur sést hjá Portúgalanum þegar mikið liggur við. Spænska blað- ið Marca sagði það eitt skýrt merki þess að Mourinho hefði þegar, með- vitað eða ómeðvitað, hent inn hvíta handklæðinu í Meistaradeildinni. Hátt fjall en ekki óyfirstíganlegt Þó veðbankar hafi gjörbreytt lík- um sínum á að Real fari í úrslitaleik Meistaradeildarinnar eftir stórtap- ið í Dortmund er þó ekki svo að úti sé ævintýri. Hvað sem mönnum kann að finnast um Mourinho þá er hann fantagóður þjálfari sem kann þá list mætavel að skapa stemningu meðal leikmanna sinna. Hann hefur yfir að ráða mun betra liði, maður á mann, en Dortmund og þegar öllu er á botninn hvolft er 3–0 sigur heima- manna ekki útilokuð úrslit ef viljinn er sannarlega fyrir hendi. Real hefur tvívegis í Meistaradeildinni á þessari leiktíð unnið slíkan stórsigur. 3–0 sigur gegn Galatasaray og 4–1 sigur gegn Ajax. Bæði þessi félagslið eru ekki mikið lakari andstæðingar en Borussia Dortmund. Aldrei sigrað Dortmund Mourinho þarf hins vegar að fylla sína leikmenn meiri eldmóð nú en nokkru sinni og sagan er ekki sérstak- lega hliðholl Real. Spænsku meist- ararnir hafa þrívegis mætt Dortmund í Meistaradeildinni í vetur og aldrei haft sigur. Bæði lið kepptu í D-riðli fyrr í vetur og þá sigraði Dortmund 2-1 á heimavelli og seinni leiknum lyktaði með 2-2 jafntefli þar sem Real jafnaði metin á 89. mínútu. Verra er að í alls ellefu leikjum Real Madrid í Meistaradeildinni að þessu sinni hefur liðinu aðeins einu sinni tekist að halda hreinu. Það er töluvert frábrugðið tölfræði Dortmund sem ekki aðeins hafa náð að halda marki sínu hreinu fjórum sinnum heldur hefur þeim gulklæddu frá Þýskalandi tekist að skora í öllum leikjum sínum í Meistaradeildinni nema einum. Hvað áhorfendur varðar og alla þá sem elska fótboltann er leikur lið- anna annað kvöld eiturspennandi því mörk þurfa að koma og það á færi- bandi ætli Mourinho að enda feril sinn hjá Real Madrid með glæsibrag. Og það dreymir karlinn um hvað sem öðru líður. n Neymar og Hummels til Barca Heimildir spænskra miðla úr her- búðum Barcelóna herma að þeir tveir leikmenn sem forsvarsmenn telja að styrki liðið fyrir næstu leik- tíð séu Brasilíumaðurinn Neym- ar og Þjóðverjinn Hummels. Ef marka má yfirlýsingar forseta Real Madrid sem lýst hefur mikilli að- dáun á Neymar munu Börsungar þurfa að keppa við erkifjendur sína um brasilíska sóknarmann- inn og lið hans í Brasilíu, Santos, veit mætavel hvers virði hann er. Nú reynir á Mourinho n Mikil spenna fyrir seinni leik Real og Dortmund í Meistaradeildinni Albert Örn Eyþórsson blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is Meira rugl hjá Rangers Skoska stórliðið Glasgow Rangers er enn og aftur í fréttum. Nú vegna gruns lögreglu um að eignum fé- lagsins hafi verið komið undan af vafasömum viðskiptamönn- um. Rangers var sem kunnugt er dæmt niður um þrjár deildir vegna skuldavandræða. Það hefur náð sér aðeins upp á nýjan leik en þó er langur tími þar til það veitir Celtic mikla samkeppni í Skotlandi. Bretar í vandræðum Evrópska knattspyrnusam- bandið hefur sektað breska knattspyrnusambandið fyrir að setja deildarleiki á á sama tíma og leikir í Evrópukeppnum fara fram en slíkt er brot á lögum UEFA sem Bretarnir eiga aðild að. UEFA vill einokun á leikj- um á þeim tímum sem Evrópu- deildin eða Meistaradeildin fer fram og aðrar aðildarþjóðir en Bretar hafa fylgt þeim regl- um. Það tengist því að félög í Englandi leika mun fleiri leiki í fleiri keppnum en reyndin er víðast hvar annars staðar og ekki er auðvelt að leysa þessi mál. Fjarstýring Guardiola Pep Guardiola er ekkert að bíða eftir að taka við stjórnartaum- um hjá Bayern München. Þegar er opinbert að félagið hefur að hans áeggjan keypt Mario Götze frá Dortmund og nú segja þýsk- ir miðlar að Guardiola vilji kaupa efnilegasta knattspyrnumann Eintracht Frankfurt, hinn 22 ára Sebastian Rode. Ennfremur er fullyrt að Spánverjinn muni gera sitt besta til að freista einhverra leikmanna Barcelóna til að fylgja honum yfir og þar er helst talað um Xavi og Iniesta. Það er þó langsótt enda báðir með langa samninga og trúir sínu félagsliði. Herra íhugull Draumur Mourinho hefur verið að leiða Real til sigurs í meistara- deildinni en það verður að teljast afar ólíklegt eins og staðan er núna. Vesen og vand- ræði Rory hefur alls ekki fundið sig á þessu ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.