Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Síða 21
Sport 21Mánudagur 29. apríl 2013 Þ að er ekki talað um annað í íþróttamiðlum hvarvetna en frábæra frammistöðu hins pólska Robert Lewandowski í liði Borussia Dortmund í fyrri leik liðsins gegn Real Madrid í síðustu viku. Eng- um hefur áður tekist að setja fjögur stykki gegn Real í Meistaradeildinni og ekki hefur heldur neinum tek- ist að skora fjögur mörk í einum og sama leiknum í undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar. Frábært af- rek hjá Lewandowski. Lewandowski er einn af betri framherjum í evrópska boltanum og hefur ítrekað sannað snilli fyr- ir framan mark andstæðinga síð- an hann gekk til liðs við Dortmund árið 2010 frá Poznan í Póllandi. Þá voru miklar vonir bundnar við hans þátt með pólska landsliðinu á Evrópumótinu á síðasta ári þó ekki hefði hann náð sér mikið á strik þar. Forlög eða örlög En Lewandowski er furðu frægur og þekktur miðað við að hann var nán- ast algjörlega óskrifað blað fyrir að- eins þremur árum síðan. Fram að leiktíðinni 2010 þegar hann hóf spark í gulri peysu Dortmund hafði þessi 24 ára gamli framherji ekkert verið að brjóta blöð þó hann hafi náð að verða markahæstur í 2. og 3. deildinni í Pól- landi. Fram að tíma sínum með Dort- mund spriklaði hann með pólskum liðum. Hann fór frá Znicz Pruzkow til Lech Poznan þar sem hann náði einnig markakóngstitlinum og varð meistari með því liði. En Lewandowski var fjarri því að þykja stórmerkilegur papp- ír þó hann næði markakóngstitli með Poznan. Eðlilega kannski, því pólska deildin þykir ekki ýkja sterk og því var það svo að sumarið 2010 sat kappinn heima með þrjú tilboð á borðstofuborðinu. Öll tilboðin frá félögum sem séð höfðu betri daga á þeim tímapunkti og ekkert þeirra stórlið í neinni merkingu. Blankheit hjá Dortmund Liðin þrjú sem áhuga höfðu voru Genoa á Ítalíu, Dortmund í Þýska- landi og Blackburn í Englandi. Blackburn vakti mestan áhuga Pól- verjans sem þó vildi líka gjarn- an skoða möguleikana hjá þýska liðinu. Nema að þá stóð Dort- mund svo illa fjárhagslega að for- seti liðsins sagði Pólverjanum bara hreint út að Dortmund gæti ekki tekið þátt í verðstríði við hin tvö liðin sem voru þó fjarri því að vera í ríkari kantinum. Ekkert þessara félaga þótti eiga merkilega framtíð sumarið 2010. Þjóðverjarnir skít- blankir, Blackburn sömuleiðis og einna helst Genoa sem var líklegt til stórræða í framtíðinni. Ísland kemur til sögunnar Lewandowski skoðaði aðstæður hjá Genoa og líkaði sæmilega en ekki nóg til að taka ákvörðun og bað um- boðsmann sinn að koma á heim- sókn til Blackburn sem var það lið sem best bauð á þeim tímapunkti. Bæði átti það við um kaupverðið sjálft en ekki síður laun Pólverj- ans. Sjálfur sagði umboðsmaðurinn í fjölmiðlum að Blackburn yrði að líkindum fyrir valinu. Nema þá vill svo til þegar för- in til Englands var ákveðin að Lewandowski komst hvorki lönd né strönd vegna þess að flugsam- göngur í Evrópu lágu niðri sök- um eldgossins í Eyjafjallajökli á Ís- landi. Til að nýta tímann ákvað Lewandowski að skoða aðstæður hjá Borussia Dortmund í staðinn meðan hann biði þess að komast í flug til Bretlands. Til að gera langa sögu stutta varð hann heillaður af borginni, félaginu og ekki síst áætl- unum forsvarsmanna þess sem vildu byggja allt liðið í kringum Pól- verjann í framtíðinni. Hann skrifaði undir samning án þess að stíga nið- ur fæti í Bretlandi. Rokk og ról í Dortmund Lewandowski var þó ekki að blómstra fyrstu leiktíðina með þýska liðinu. Hann skoraði aðeins níu mörk í 43 leikjum sem þykir miður fyrir sóknarmann og þegar líða fór á þá leiktíð sat hann lengur og lengur á bekknum. Honum var heldur ekki ætl- að stórt hlutverk leiktíðina 2011 til 2012 og byrjaði fyrstu leikina á bekknum. Vegna meiðsla sóknar- mannsins Lucas Barrios fékk hann þó byrjunarsæti fljótlega og þá hófst ævintýrið um Robert Lewandowski hinn pólska. Hann hætti bara ekki að skora og fagnaði 30 sinnum marki í 47 leikjum alls. Yfirstandandi leiktíð hefur verið framhald á sama ævintýri og hann hefur skorað enn fleiri mörk eða 35 í 43 leikjum hingað til. Hann er kjaft- fullur sjálfstrausts og ferna hans í Meistaradeildinni gegn Real Ma- drid sýndi það svo um munaði. Það verður skrambi spennandi að vita hvort ódýri Pólverjinn verði litla þúfan sem veltir hlassinu þegar og ef Dortmund tekst að halda sín- um hlut á þriðjudaginn kemur á Santiago Bernabeau í Madrid. n n Markahrókurinn pólski fór til Dortmund vegna gossins í Eyjafjallajökli Albert Örn Eyþórsson blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is Hundrað marka múrinn Stjarna Barcelóna, Leo Messi, skýtur ekki slöku við fyrir framan markið þó enn glími hann við smá- vægileg meiðsli. Kappinn skoraði annað mark liðs síns í 2–2 jafntefli gegn Athletic Bilbao um helgina sem teljast sæmileg úrslit á erfið- um útivelli. Markið var mark núm- er eitt hundrað og eitt hjá spænska félagsliðinu og er þetta aðeins í fjórða skipti í sögu Barca sem félag- ið nær að skora fleiri mörk en það. Þurftu ekki van Persie Arsene Wenger, stjóri Arsenal, held- ur því fram að Manchester United hefði hampað enska deildarbik- artitlinum jafnvel þó Robin van Persie hefði ekki leikið með liðinu. Hann segist fullviss að stórgóð leik- tíð United sé meira því að þakka að Manchester City hafi gefið eftir fremur en að United hafi verið að spila framar vonum. Hollendingur- inn Persie hafi því verið mikilvægur en ekki skipt sköpum fyrir United. Rodgers til City Þær fréttir berast frá Englandi að eigendur Manchester City sjái jafnvel fyrir sér að ráða Brendan Rodgers í stað Roberto Mancini ef ítalski þjálfarinn verður látinn taka pokann. Mancini þykir ekki hafa sannfært moldríka eigendur City um að hann sé maðurinn til að fara lengra með liðið og hefur reyndar einu sinni áður verið nálægt því að fá rauða spjaldið frá forráðamönn- um liðsins. Þetta ætti að vera ljóst strax að lokinni leiktíðinni sam- kvæmt fregnum úr herbúðum City. Rifist um launakjör Harry Redknapp, stjóri QPR, hef- ur kannski varpað ljósi á dapran árangur liðsins í ensku deildinni í vetur en liðið er svo gott sem fall- ið úr efstu deild þrátt fyrir að spár gerðu ráð fyrir betri útkomu. Red- knapp segir að leikmenn liðsins hafi deilt töluvert innbyrðis og við stjórn liðsins um launakjör og þær deilur verið harðar. Það er auðvit- að ljóst að menn sem rífast utan vallar eru ekki líklegir til að sýna mikinn samstarfsvilja innan vallar. Allt íslAndi Að þAkkA – eðA kennA! Lewandowski Ísland hafði áhrif á hvar hann endaði árið 2010. Eyjafjallajökull Gosið kom í veg fyrir að Lewandowski færi til reynslu hjá Blackburn Rovers.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.