Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2013, Page 23
Fólk 23Mánudagur 29. apríl 2013 Fjöllin betri en Dr. Phil n Pálmi Gestsson er í 52 fjallaklúbbnum og stefnir á Hnjúkinn É g fór í þetta frábæra verk- efni Ferðafélags Íslands, 52 fjallahópinn, segir Pálmi Gestsson leikari sem hefur smitast af fjallgöngubakteríunni og ætlar að ganga á Hvannadals- hnjúk í næsta mánuði. Nálægðin við náttúruna heillar hann talsvert meira en líkamsræktarstöðvarnar. „Mér finnst þetta nú geðslegri hugsun að fara aðeins út í náttúr- una heldur en að hlaupa sveittur á gúmmíbretti inni í húsi og horfa á Dr. Phil,“ segir Pálmi. Hann setti stefnuna á að mæta eins oft og hann gæti í göngur klúbbsins. Hann segist hafa komið sjálfum sér á óvart og hefur mætt betur en hann þorði að vona. „Það var nú svo sem ekkert endilega mark- miðið að ganga á 52 fjöll. Mörg- um óaði við því að arka erindis- leysu á fjöll, en ég hugsaði það sem svo að þó ég færi bara á tutt- ugu fjöll þá væri það plús,“ segir hann. „Ég er nú enginn öfga- eða ástríðumaður hvorki í þessu eða öðru. Þetta er tiltölulega ný til- komið að ég geri þetta reglulega. Það hefur þó alltaf verið vakandi í mér einhver náttúruunnandi. Ég er alinn upp í bæði fjöru og fjalli,“ segir hann. „Markmiðið er bara að hafa ánægju og heilsubót af þessu, það er í rauninni ekkert annað við þetta. Þetta er bara skemmti- legt og félagsskapurinn, ferðalag- ið, útiveran og snertingin við nátt- úruna, þetta hefur allt sína kosti. Fyrir utan það að þetta er frábær líkamsrækt.“ astasigrun@dv.is „We don‘t do Iceland“ n Með tískudraum í maganum n Aðalatriðið er að hafa trú á sjálfum sér n Hollendingarnir ekki spenntir fyrir Íslandi n Opnunarpartí á þriðjudaginn I ngólfur Arnar Magnússon raf- virki gekk með þann draum í maganum að opna sína eig- in verslun í tíu ár enda fannst honum sárvanta herrafatabúð fyrir aldurshópinn 25–45 ára. Tíu árum eftir að hugmyndin kviknaði æddi hann af stað, leigði sér versl- unarhúsnæði á Laugaveginum, nefndi búðina Sturlu og fór svo að leita merkinu sem hann vildi selja. „Já ég gerði þetta í öfugri röð,“ segir Ingólfur og kímir. Draumurinn að rætast „Ég var orðinn frekar saddur. Ég var með Hörpuverkefnið síðast og mig langaði að fara að gera eitt- hvað annað,“ segir Ingólfur þegar blaðamaður spyr hann hvers vegna rafvirki sem hefur nóg að gera skiptir um gír og gerist kaupmaður. „Ég var búinn að ganga með þetta í maganum ansi lengi og mér fannst þessi tímapunktur bara fínn. Ég hef alltaf haft áhuga á tísku og það má eiginlega segja að þetta hafi verið draumur sem var að rætast,“ segir hann. Ingólfur viðurkennir þó að þetta sé stór ákvörðun að breyta svona um stefnu en segir að hann fái mikinn stuðning frá konunni sinni. „Það var ekkert auðvelt að hætta í vinnu hjá fyrirtæki sem ég hafði unnið hjá í 25 ár. Þetta er búið að vera ótrúlega gaman – en líka al- gjör martröð. Ég er náttúrulega bú- inn að leggja allt undir, en ég held samt að það sé aðalatriðið að hafa trú á sjálfum sér,“ segir hann. „We don‘t do Iceland“ „Það var svolítið ævintýri að ná í þetta merki,“ segir Ingólfur, en þegar hann hafði fundið vörurn- ar sem hann vildi flytja inn, vörur frá hollenska fyrirtækinu Scotch and Soda, setti hann sig í sam- band við fyrirtækið og reyndi að koma á samningum. Reyndust Hollendingarnir ekki vera neitt sérstaklega hrifnir af því að semja við Íslending. „Ég sendi tölvu- póst og þeir höfðu ekkert mikinn áhuga á því að tala við mig,“ segir hann en hann var ýtinn og á end- anum náði hann símasambandi við fyrirtækið. Hann var á leið til London og bauðst til að fljúga yfir til Amsterdam að funda með Hol- lendingunum. „Þá kom einhver yfir maður sem sér um alþjóð- leg viðskipti fyrirtækisins og sagði þvert nei. „We don‘t do Iceland,“ segir Ingólfur og hlær og seg- ist ekki vita hvort það var smæð landsins eða ef til vill Icesave sem spilaði þar inn í. Nei ekki í boði En Ingólfur gafst ekki upp og sendi póst og bað um útskýringar á þessari ákvörðun. „Ég var alveg viss um að það væri markaður fyr- ir þetta hér á landi.“ Hann hafði fengið loðin svör en þegar hann var um það bil að stíga upp í vél- ina til London hringdi síminn. „Þá hringir einhver Chris frá London og segist vilja tala við okkur, en að við gætum bara fengið fund klukk- an þrjú daginn eftir. Ég hringdi þá í systur mína sem hefur reynslu af samningagerð og frænku mína sem er flugfreyja og þær komu út daginn eftir til að aðstoða mig,“ segir Ingólfur. Hann hafði útbúið skýrslu um fyrirtækið sitt og þær tóku saman öll helstu gögn um viðskipti á Íslandi, túrisma og annað. Þau þóttu svo frambærileg og sannfærandi á fundinum að fyrirtækið sló til og sama dag eyddu þau níu klukku- tímum í að velja vörur fyrir búð- ina. Góður staður „Ég vildi vera með verslunina á góðum stað og það er ekkert ein- falt að ná í góðan stað á Lauga- veginum,“ segir hann og hef- ur unnið dag og nótt að því að gera búðina tilbúna með dyggri aðstoð félaga sinna. Opnunar- partí verslunarinnar Sturlu verð- ur á þriðjudaginn. Til að byrja með verður fyrst og fremst hægt að kaupa þar herraföt fyrir menn og drengi og segir Ingólfur glettinn að feðgar geti komið við og versl- að saman. Einnig verður til sölu íslensk tónlist. Stefnan er tekin á að taka inn kvenfatalínu þegar líð- ur á veturinn. „Ég vil að það verði gaman að vera hérna,“ segir hann að lokum. n Ásta Sigrún Magnúsdóttir blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is Föt og tónlist „Ég vil að það verði gaman að vera hérna,“ segir Ingólfur. Draumur að veruleika „Ég hef alltaf haft áhuga á tísku og það má eiginlega segja að þetta hafi verið draumur sem var að rætast,“ segir Ingólfur. „Ég er náttúrulega búinn að leggja allt undir, en ég held samt að það sé aðalatriðið að hafa trú á sjálfum sér. Fjallageit Pálmi ætlar að ganga á Hvannadalshnjúk í næsta mánuði. Félagar Hér má sjá góða félaga á Ker- hólakambi. Öfug röð Ingólfur leigði fyrst búðina, fann svo vörurnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.