Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2013, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2013, Blaðsíða 12
T ölvurisarnir Apple og Google hafa, ásamt fjölda annara fyrir- tækja, fetað í fótspor Microsoft og sótt um leyfi til bandarískra stjórnvalda um að upplýsa al- menning um hvaða gagna stjórnvöld hafa krafist frá þeim. Fyrirtækin vilja geta upplýst við- skiptavini sína og almenning reglulega um eðli og umfang þeirra gagna sem stjórnvöld eru að krefjast og hafa fengið afhent hingað til. Segja má að allt hafi farið á hliðina í þessum efnum eftir að Edward Snowden upplýsti um umfang njósna bandarískra stjórnvalda í byrj- un júní en þau hafa ásamt fyrirtækjun- um verið gagnrýnd harðlega um allan heim vegna persónunjósna af áður óþekktum skala. Mál enn í rannsókn Yfirvöld skoða nú beiðni fyrirtækjanna en þeim er mikið í mun um að staðfesta sjálfstæði sitt enda hefur ímynd þeirra beðið hnekki vegna málsins. Google hefur helst verið nefnt til sögunnar í þessum efnum en gögn hafa einnig sýnt að Microsoft hefur þurft að af- henda skjöl, tölvupósta og jafnvel Skype-samtöl. Fyrirtækin vilja fá að greina frá því nákvæmlega hvaða gögn þau hafa látið af hendi en Microsoft hefur gagnrýnt stjórnvöld fyrir seina- gang í þessum efnum. „Við viljum bara tryggja að allt sé gert rétt,“ sagði Gen Keith Alexander yfirmaður Þjóðaröryggisstofnunar Banda ríkj anna í samtali við BBC. „Við viljum ekki hafa áhrif á neitt sem enn er til rann sóknar hjá Alríkislögreglunni og við teljum það skynsamlega nálg- un,“ en fyrirtækin sendu beiðnina til stofnunar innar á fimmtudaginn í síð- ustu viku. Bréfið var einnig stílað á Barack Obama Bandaríkjaforseta. Á meðal annara fyrirtækja sem skrifuðu undir bréfið voru Facebook, Twitter og Linkedin. Þá rituðu einnig samtök eins og The Electronic Fronti- er Foundation og Human Rights Watch undir beiðnina. Njósnað um Evrópu Bandarísk stjórnvöld hafa einnig ver- ið harðlega gagnrýnd eftir að Snowden lak gögnum um að þau hefðu njósn- að um erindreka Evrópusambands- ins bæði í Bandaríkjunum og í Belgíu. Þjóðhöfðingjar og æðstu ráðherrar Evrópusambandsríkja kepptust um að lýsa yfir undrun sinni og vanþóknun á fréttunum. Talið var að þær gæti siglt í strand viðræðum um stærsta fríversl- unarsamning heims en nú standa yfir viðræður á milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Hingað til hafa njósnirnar ekki verið ræddar í því ferli. Breska leyniþjónustan saklaus Snowden hefur gefið það út að hann búi yfir upplýsingum sem muni skaða stjórnvöld meira en allt sem nú þegar hefur komið fram. Hann segir það þó ekki markmið sitt held- ur aðeins að upplýsa almenning um þær persónunjósnir sem hafa verið stundaðar á undanförnum árum og gríðarlegt umfang þeirra. Á sama tíma hefur nefnd á veg- um breska þingsins staðfest að breska leyniþjónustan hafi ekki stundað njósnir í anda þeirrar bandarísku. Sögusagnir höfðu ver- ið uppi um að svo væri en banda- ríska verkefnið gekk undir nafninu Prism. Eftir að Snowden lak gögnum um njósnirnar hefur hann dvalið á alþjóðaflugvellinum í Moskvu í Rússlandi. Hann hefur sótt um póli- tískt hæli í Rússlandi en ljóst er að Bandaríkjastjórn muni gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að hafa hendur í hári hans. n 12 Fréttir 24. júlí 2013 Miðvikudagur Níu drepnir í mótmælum n Átök í Egyptalandi harðna enn N íu manns voru drepnir í átök- um á milli stuðningsmanna og andstæðinga Mohammed Morsi fyrrverandi Egypta- landsforseta á mánudagsnótt. Flest drápin áttu sér stað nærri háskólan- um í Kaíró þar sem stuðningsmenn forsetans voru með mótmælafund. Frá þessu er greint á fréttavef BBC en hingað til hafa að minnsta kosti 100 manns látið lífið í óeirðunum sem hafa geisað síðasta mánuðinn. Stuðningsmenn Morsi sögðu við heimildarmenn BBC að leyniskyttur hefðu skotið á hópinn af þökum nærliggjandi húsa og að þær hafi hlotið verndar öryggissveita. Seinna um nóttina dó annar mótmælandi á Tahir-torgi í Kaíró og tveir til viðbót- ar utan við höfuðborgina. Stuðningsmenn forsetans, og þá einna helst Bræðralag múslima, hef- ur neitað að samþykkja valdaskipt- in og hvatt til mótmæla daglega síð- an. Morsi hefur setið í stofufangelsi á óþekktum stað frá 3. júlí eftir að hers- höfðinginn Abdul Fattah al-Sisi til- kynnti að honum yrði vikið úr emb- ætti. Engin kæra hefur verið lögð fram á hendur honum. Fjölskylda Morsi hefur sakað herinn um mannrán en hún hefur lagt fram beiðni til Alþjóðaglæpa- dómstólsins að rannsaka atburðina sem leiddu til valdaránsins. Fyrr í mánuðinum greindi yfirsaksóknari Egyptalands frá því að hafin væri rannsókn á þeim ásökunum sem settar hefðu verið fram á hendur Morsi og Bræðralagi múslima. Þó nokkur lönd, þar á meðal Bandaríkin, hafa farið fram á að Morsi verði sleppt. Bráða- birgðastjórnvöld hafa sagt að Morsi sé á öruggum stað og að efna eigi til nýrra kosninga í byrjun árs 2014. n n Microsoft, Apple, Google og fleiri tæknirisar biðla til bandarískra stjórnvalda Vilja gagnsæi Risarnir í tæknibrans- anum vilja hafa allt uppi á borðinu. Vilja frelsi til að upplýsa Gen Keith Alexander Yfirmaður Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna segir stofnunina vilja gera hlutina rétt. Fundu 61 tonn af silfri Fyrr í þessum mánuði náðu sér- fræðingar á land gríðarlegu magni af silfri sem legið hefur á hafsbotni undanfarna áratugi. Farmurinn, 61 tonn af silfri, var um borð í breska flutningaskip- inu SS Gairsoppa sem sökk und- an ströndum Írlands árið 1941 eftir að Þjóðverjar skutu tundur- skeyti að því. Skipið lá á um 4,5 kílómetra dýpi og því var hægara sagt en gert að ná farminum á þurrt. Það var fyrirtækið Odyss- ey Marine Exploration sem stóð að framkvæmdinni. Fyrirtækið mun eignast 80 prósent af sölu- andvirði silfursins en breska ríkið mun eignast restina. Áætlað virði silfursins nemur um 4,2 milljörð- um króna. 500 fangar sluppu út Um það bil fimm hundruð fangar, þar á meðal sumir hátt settir meðlimir í hryðjuverkasamtök- unum al-Qaeda, sluppu út úr Abu Ghraib-fangelsinu í Írak að- faranótt þriðjudags. Óhætt er að segja að flóttinn hafi verið þaul- skipulagður og nutu fangarnir utan aðkomandi aðstoðar. Bílum, fullum af sprengjuefnum, var ekið á fangelsisgirðingar og árásar- menn utan veggja fangelsisins skutu sprengjukúlum og hentu handsprengjum að fangavörðum. Að minnsta kosti tíu lögreglu- menn og fjórir uppreisnarmenn létust. Að því er Reuters greinir frá þarf atvikið ekki að koma mikið á óvart enda höfðu hátt settir aðil- ar innan al-Qaeda gefið það út að efst á forgangslista samtakanna væri að frelsa meðlimi samtak- anna sem sitja í fangelsum. Sól allan ársins hring Íbúar í bænum Rjukan í Noregi þurfa ekki að pirra sig á sólar- leysinu í skammdeginu í vetur. Bærinn stendur í djúpum dal og ná sólargeislarnir ekki að heiðra bæjar búa með nærveru sinni í fimm mánuði á hverju ári. Bæjar- yfirvöld hafa hins vegar fundið lausn á þessu og komið fyrir spegl- um á fjalli fyrir ofan bæinn sem munu endurvarpa sólargeislunum niður í bæinn. Þyrlur voru notað- ar til að koma speglunum fyrir og verða þeir stilltir þannig að sólin skíni á aðaltorg bæjarins þegar hennar nýtur við. Kostnaðurinn við framkvæmdina nemur rúmum hundrað milljónum króna. Blóðug mótmæli Að minnsta kosti 100 manns hafa látið lífið það sem af er mótmælunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.