Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2013, Blaðsíða 19
Sport 19Miðvikudagur 24. júlí 2013
8 ungir en góðir
knattspyrnustjórar
Á
kveðin tímamót urðu í
knattspyrnuheiminum í
vor þegar Sir Alex Fergu
son hætti sem stjóri Man
chester United eftir 26 ár
við stjórnvölinn. Fleiri stjórar stór
liða eru að nálgast eftirlaunaaldur
inn eða hættir og má þar nefna Jupp
Heynckes sem hætti með lið Bayern
í vor, 68 ára gamall. Fjölmargir ungir
og efnilegir leikmenn eru þó tilbúnir
að taka við keflinu af þessum gömlu
refum. DV tók saman upplýsingar
um nokkra knattspyrnustjóra sem
eiga framtíðina svo sannarlega fyrir
sér í þjálfun. n
n Bestu stjórarnir undir fimmtugu n Framtíðin er þeirra
Aðrir góðir
undir fimmtugu
Christian Streich (48) Skilaði Freiburg
í 5. sæti þýsku deildarinnar í vor. Klókur
varnarleikur skilaði liðinu þessum árangri.
Hefur verið allan sinn feril hjá Freiburg.
Michael Laudrup (49) Náði frábærum
árangri með Swansea í fyrra. Afar klókur í að
ná því besta út úr leikmönnum sínum.
Paul Lambert (43) Ef deildin í fyrra
hefði byrjað um áramót hefði Villa endað
í 8. sæti. Gerði frábæra hluti með Norwich
þar á undan. Ástríðufullur skoskur harðjaxl
sem mun ná Villa-liðinu á strik næsta vetur.
Brendan Rodgers (40) Stóð sig
frábærlega hjá Swansea og hefur verið í
uppbyggingarstarfi hjá Liverpool. Hefur náð
í vel spilandi leikmenn og náði liðinu á flug
síðasta vor. Á eftir að láta til sín taka í fram-
tíðinni og koma Liverpool aftur í baráttu um
Meistaradeildarsæti.
Viktor Goncharenko (36) Stjóri
Bate Borisov í Hvíta-Rússlandi. Hefur náð
frábærum árangri með liðið og tókst meðal
annars að leggja Bayern að velli í riðla-
keppni Meistaradeildarinnar síðasta vetur.
Ole Gunnar Solskjær (40) Náði fínum
árangri með varalið Manchester United
en hefur gert enn betri hluti með Molde í
Noregi. Var af sumum talinn líklegur arftaki
Sir Alex Ferguson.
Jurgen Klopp
Félag: Borussia Dortmund. Aldur: 46 ára
Klopp er sannkallaður kraftaverkakarl eins og árangur Dortmund á undanförnum árum ber
merki um. Kom liðinu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í vor en á leið sinni þangað kenndi
hann liðum eins og Real Madrid og Manchester City hvernig á að spila fótbolta. Gæti auð-
veldlega átt góð 20–25 ár eftir á toppnum. Afar klókur stjóri sem kann að láta lið sitt spila
stórbrotinn sóknarleik.
Antonio Conte
Félag: Juventus. Aldur: 43 ára
Þessi fyrrverandi miðjujaxl hjá Juventus-liðinu hefur heldur
betur staðið fyrir sínu sem stjóri félagsins. Undir stjórn hans
hefur Juventus unnið ítölsku deildina tvö ár í röð og hefur
hann komið liðinu í röð fremstu liða í Evrópu. Conte þykir afar
klókur og tæknilega góður stjóri. Þrátt fyrir að vera tiltölulega
ungur er hann kominn í röð fremstu stjóra á Ítalíu.
Vincenzo
Montella
Félag: Fiorentina. Aldur: 46 ára
Vincenco Montella var ótrúlegur markaskor-
ari og hann virðist ekki síður vera ótrúlegur
knattspyrnustjóri. Montella tók við stjórn
Fiorentina fyrir síðasta tímabil eftir
vonbrigði tímabilið á undan þar sem liðið
varð í 13. Sæti. Ráðning Montella virðist
hafa haft góð áhrif á félagið því það endaði
í fjórða sæti ítölsku deildarinnar í vor, aðeins
tveimur stigum frá Meistaradeildarsæti.
Montella er þegar búinn að sanna sig á Ítalíu
og það er deginum ljósara að hann mun láta
til sín taka á næstu árum.
Sami Hyypia
Félag: Bayer Leverkusen
Aldur: 39 ára
Sami Hyypia átti frábæran feril hjá Liver-
pool sem leikmaður og hann virðist engu
síðri stjóri en hann var öflugur varnarmaður.
Bayer Leverkusen kom nokkuð á óvart í
þýsku deildinni í vetur og náði 3. sætinu sem
gaf þátttökurétt í Meistaradeildinni. Liðið
endaði aðeins stigi á eftir Borussia Dort-
mund – næst besta liði Evrópu. Þó að liðið
hafi verið vel mannað með leikmenn eins og
Lars Bender, Stefan Kiessling, Dani Carvajal
og Andre Schurrle var Hyypia límið sem hélt
þessu öllu saman. Finninn stóri á framtíðina
sannarlega fyrir sér. Það mun reyna á
hæfileika Finnans í vetur enda lykilmenn
eins og Carvajal og Schurrle horfnir á braut.
Hver myndi þora að veðja gegn því að hann
taki einn daginn við Liverpool?
Andre
Villas-Boas
Félag: Tottenham
Aldur: 35 ára
Villas-Boas var aðeins 33 ára þegar hann
vann Evrópudeildina með Porto. Þaðan lá
leiðin til Chelsea þar sem hlutirnir gengu
ekki upp. Villas-Boas hefur þó sýnt styrk
sinn hjá Tottenham þar sem hann hefur gert
glimrandi fína hluti þrátt fyrir ungan aldur.
Liðið endaði í 5. sæti úrvalsdeildarinnar í
vor og missti naumlega af Meistaradeildar-
sæti. Það er ljóst að tíminn vinnur með
Villas-Boas sem á einungis eftir að verða
reynslumeiri og sterkari.
Josep
Guardiola
Félag: FC Bayern
Aldur: 42 ára
Það þekkja auðvitað allir árangurinn
sem Guardiola náði með Barcelona-
liðið. Í vetur mun ný áskorun taka við
en eins og kunnugt er tók Spánverjinn
við Þýskalands- og Evrópumeisturum
Bayern Munchen. Það er pressa á
Bayern-liðinu enda náði liðið að landa
þrennunni síðasta vetur. Guardiola
ætti í rauninni ekki að geta klikkað
enda ekkert lið í heiminum sem býr
yfir jafn öflugum leikmannahópi og
Bayern. Guardiola er kominn til að vera
í þetta skiptið.
Roberto
Martinez
Félag: Everton
Aldur: 40 ára
Martinez var frábær hjá Wigan
þar sem honum tókst að vinna
enska bikarinn í vor. Því miður
féll Wigan um deild og þar
sem David Moyes fór til Man-
chester United opnuðust dyr
fyrir Martinez til að fara í stærra
félag. Martinez lætur lið sín
leika skemmtilegan fótbolta og
það verður virkilega forvitnilegt
að fylgjast með gangi mála hjá
þessum efnilega stjóra.
Paco Jemez
Félag: Rayo Vallecano
Aldur: 43 ára
Rayo Vallecano-liðið mun seint teljast í
hópi stórliða á Spáni og það bjuggust flestir
við því að liðið myndi í besta falli sleppa
naumlega við fall síðasta vetur. Liðið hefur
ekki yfir miklum fjármunum að ráða og
leikmannahópurinn er þunnskipaður. Þrátt
fyrir það tókst Paco að hala inn metfjölda
stiga (53) og skila liðinu í 8. sætið í vor. Liðið
missti naumlega af sæti í Evrópudeildinni og
þótti leika skemmtilegan fótbolta þar sem
sóknarleikur var í fyrirrúmi. Paco Jemez, sem
áður hefur stýrt liðum eins og Córdóba, Las
Palmas og Cartagena, á framtíðina fyrir sér.