Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1918, Blaðsíða 11
17
Verslunarskýrslur 1916
9
yfirleitt orðið lakari. Úr Eyjafjarðarsýslu einni ásamt Akureyri vant-
aði að minsta kosti 11 milj. kr. virði af þeim útfiultu vörum, sem
taldar eru í yfirlitinu, eða um 3/r liluta alls þess, sem vantaði af þeim
af öllu landinu. Og úr sömu sýslu vantaði um l1/* milj. kr. virði af
þeim innfluttu vörum, sem yfirlitið nær til, eða um 8/s hluta alls
þess, sem vantaði af þeim af öllu landinu.
Aðrar vörur en þær, sem hjer hafa verið taldar, voru annað-
hvort tollfrjálsar eða þeim er slegið saman í stóra flokka í toll-
reikningunum, sem ekki er unt að bera saman við það, sem upp
er gefið í skýrslunum, svo sem 2., 3. og 6. flokkur vörutollsins. En
það má búast við því, að á þeim vörum sjeu ekki síður vanhöld en
á þeim, sem bornar hafa verið saman við tollreikningana. Ef gert
væri ráð fyrir eitthvað líkum vanhöldum á þeim ætli að vanla í þær
um 7 miljón króna virði, en það er þó að eins laus ágiskun, enda
hefur ekki verið gerð nein tilraun til þess að leiðrjetta skýrslurnar
að þvi er þessar vörutegundir snertir, þar sem til þess vantar öll gögn.
Samanburður sá, sem hjer hefur verið gerður, sýnir, að versl-
unarskýrslunum er harla mikið ábótavant. í Verslunarskýrslum 1914,
bls. 9‘, var vikið að þessu og ástæðunum fyrir því. Að þessu sinni
skal ekki frekar farið út í það, en látið nægja að vísa til þess, sem
þar er sagt.
II. Verslunarviðskiftin milli fslands oy utlanda i heild sinni.
L’échange enliev de l’Islande ct de l’élranger.
Samkvæmt verslunarskýrslunum 1915 með þeim leiðrjettinguin,
sem gerðar hafa verið á þeim samkv. tollreikningunum, nam verð
aðfluttu vörunnar alls 26.3 milj. kr., en útfluttu vörurnar 39.6 milj.
kr. Samkvæmt því hafa verið fluttar út vörur fyrir 13.3 milj. kr.
meira heldur en aðflutt hefur verið.
Síðustu árin hefur verð aðfluttrar og útfluttrar vöru numið því
sem hjer segir:
Aðflutl Útflutt Útfl. umfram aöfl. L’tfl. og aðfl. s
Importaiion Exportation Exp.-i-Imp. Imp -f-Exp,
1000 kr. 1000 kr. 1000 kr. 1000 kr.
1909 ... .. 9 876 13129 3 253 23 005
1910 ... .. 11323 14 406 3 083 25 729
1911 ... .. 14123 15 691 1 568 29 814
1912 ... .. 15 347 16 558 1 211 31 905
1913 ... .. 16718 19128 2410 35 846
1914 ... .. 18111 20 830 2 719 38 941
1915 ... .. 26260 39 633 13 373 65 893
b