Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1928, Side 20
18
Verslunarskýrslur 1925
Hvalafurðir voru allmikið útfluttar hjeðan af landi á fyrsta áratug
þessarar aldar, en síðan 1915 hefur verið bannað að reka hvalveiðar
hjeðan af landi og hefur því sá útflutningur fallið í burtu síðan.
Afurðir af veiðiskap og hlunnindum hafa aðeins numið um lÍ2 °/o
af verðmagni útflutningsins síðustu árin. Helstu vörutegundir, sem hjer
falla undir, eru æðardúnn, selskinn og rjúpur. Af þeim hefur útflutningur-
inn verið síðustu árin:
Æðardúnn Selskinn Rjúpur
1921 .................. 1 774 kg 3 257 kg » kg
1922 ................. 2 772 — 3 738 — » —
1923 ................. 2 621 — 5 628 — » — ■
1924 ................. 4 153 — 3 841 — 124 000 —
1925 ................. 3 976 — 3 273 — 108 000 —
Rjúpur voru friðaðar alt árið 1921—23.
Landbúnaðarafurðirnar eru annar aðalþáttur útflutningsins. Arið
1925 voru þær útfluttar fyrir 7.6 milj. króna, en það var þó ekki nema
tæpl. 10 °/o af útflutningsverðmagninu alls það ár. Helstu útflutningsvör-
urnar eru saltkjöt, ull, saltaðar sauðargærur og lifandi hross. Síðan um
aldamót hefur útflutningur þessara tegunda verið:
Saltkjöt
1901—05 meðaltal 1 380 þús. kg
1906 -10 — 1 571
1911 — 15 — 2 793
1916-20 — 3 023
1921—25 — 2 775
1921 2 209
1922 3 582
1923 2 503
1924 3 282
1925 2 298
Saltaðar
Ull sauðargærur Hross
724 þús. kg 89 þús. tals 3 425 tals
817 179 — — 3 876 —
926 302 — — 3 184 —
744 407 — — 2 034 —
778 419 — — 2 034 —
903 629 — — 1 878 —
825 605 — — 1 008 —
694 272 — — 3 958 —
899 324 — — 2 307 —
567 264 — — 1 017 —
Sauðargærur hafa nokkur undanfarin ár verið gefnar upp í þyngd,
en ekki tölu. Hjer er þyngdinni breytt í tölu þannig að gert er ráð fyrir,
að hver gæra söltuð vegi að meðaltali 2 kg.
Iðnaðarvörur útfluttar eru aðallega prjónles (einkum sokkar og
vetlingar) og kveður sáralítið að þeim útflutningi.
Undir flokkinn „Ýmislegt“ falla þær vörur, sem ekki eiga heima
annarsstaðar, svo sem útlendar vörur, skip, bækur, frímerki o. fl.