Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1930, Side 11
Verzlunarsktfrslur 1928
9
1924 1925 1926 1927 1928
Smjörlíki 47 41 57 125 99
Niðursoöin mjólk 313 302 409 284 278
Ostur 84 123 128 111 111
Egg 23 42 60 56 60
Hart brauð 160 225 188 91 134
Kringlur og tvíbökur . . .. 16 21 24 21 22
Kex og kökur 46 120 90 178 194
Kartöflur 2 014 2 329 2 130 ? 093 1 778
Epli ný 117 150 163 142 187
Glóaldin (appelsínur) 18 168 180 165 176
Rúsínur 73 108 120 132 140
Sveskjur 115 137 150 120 151
Kartöflumjö! 92 98 98 110 174
Avextir niðursoðnir 2 42 39 44 67
Avaxtamauk (syltetöj) 28 52 61 60 90
Sagaógrjón og sagómjöl 73 84 82 94 99
Munaðaruörur hafa verið kallaðar þær neyzluvörur, sem ekki hafa
verið faldar nauðsynjavörur, svo sem kaffi, te, súkkulað, sykur, tóbak, á-
fengir drykkir, gosdrykkir o. fl. Þetta eru þær vörur, sem tollarnir hafa
aðallega verið lagðir á, enda þótt sumar þeirra megi nú orðið telja til
nauðsynjavara, svo sem sykur. Af þessum svo kölluðu munaðarvörum
nam innflutningurinn árið 1928 tæpl. 5 milj. kr. eða 7V2°/o af öllum
innflutningnum.
2. yfirlit (bls. 10*) sýnir árlega neyzlu af helztu munaðarvörunum
á hverju 5 ára skeiði síðan um 1880 og á hverju ári síðustu 5 árin,
bæði í heild sinni og samanborið við mannfjölda. Er þar eingöngu um
innfluttar vörur að ræða þar til síðustu árin, að við bætist innlend fram-
leiðsla á öli og kaffibæti. Brennivín er talið með vínanda, þannig að
lítratala brennivínsins er helminguð, þar eð það hefur hérumbil hálfan
styrkleika á við hreinan vínanda, svo að tveir lítrar af brennivíni sam-
svara einum lítra af vínanda.
Á yfirlitinu sést, að árið 1928 hefur aukist neyzla af öllum þess-
um munaðarvörum, nema vínföngum.
Innflutningur á sykri hefur vaxið afarmikið á síðustu 40 árum.
Neyzla á mann hefar nálega fimmfaldast og er nú orðin fram undir 40
kg á mann. Er það mikið samanborið við önnur lönd. Árið 1927 var
hún 35 kg á Bretlandi, 34 kg í Svíþjóð og þaðan af minni í flestum lönd
um Norðurálfunnar, nema í Danmörku. Þar var hún 47 kg. í Bandaríkj-
um Norður-Ameríku og Nýja Sjálandi var hún líka meiri (48 og 44 kg).
Neyzla af kaffi og kaffibæti hefur aukizt töluvert síðan um 1890.
1886—90 komu ekki nema 4 kg á mann að meðaltali, 1916—20 meira
en 7 kg. Síðustu árin hefur innflutningurinn þó verið heldur lægri, en