Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1933, Blaðsíða 20
18
Verzlunarskýrslur 1931
Hvalafurðir voru allmikið útfluttar héðan af landi á fyrsta áratug
þessarar aldar, en síðan 1915 hefur verið bannað að reka hvalveiðar
héðan af landi og hefur því sá útfiutningur fallið í burtu síðan.
Afurðir af veiðiskap og hlunnindum hafa aðeins numið um >/3 °/o
af verðmagni útflutningsins árið 1931. Helzfu vörutegundir, sem hér falla
undir, eru æðardúnn, selskinn og rjúpur. Af þeim hefur útflutningurinn
verið síðustu árin:
ÆDardúnn Selskinn Rjúpur
1927 .......... 3 765 kg 4 011 kg 126 325 kg
1928 .......... 2 895 — 5 227 — 24 000 —
1929 .......... 2 691 — 1 800 — 2 270 —
1930 ........ 2 040 — 1 987 — » —
1931 ........ 2 578 — 1 804 — » —
Landbúnaðarafurðirnar eru annar aðalþáttur útflutningsins. Árið
1931 voru þær útfluttar fyrir 4>/2 milj. kr., en það var þó ekki nema
91/2 0/0 af útflutningsverðmagninu alls það ár. Helztu útflutningsvörurnar
eru saltkjöt, ull, saltaðar sauðargærur og lifandi hross. Síðan um alda-
mót hefur útflutningur þessara tegunda verið:
Saltaðar
Saltkjöt Ull sauöargærur Hross
1901—05 meðaltal 1 380 þús. kg 724 þús. kg 89 þús. tals 3 425 tals
1906-10 — 1 571 — — 817 — — 179 — — 3 876 —
1911 -15 — 2793 — — 926 — — 302 — — 3 184 —
1916-20 — 3 023 — — 744 — — 407 — — 2 034 —
1921—25 — 2 775 — — 778 — — 419 — — 2 034 —
1926-30 — 2 345 — — 682 — — 392 — — 876 —
1927 ......... 2 570 — — 719 — — 384 — — 1 191 —
1928 ......... 2 251 — — 699 — — 436 — — 1 319 —
1929 ......... 2 347 — — 786 — — 414 — — 666 —
1930 ......... 2 288 — — 306 — — 406 — — 715 —
1931 ......... 1 523 — — 949 — — 494 — — 1 184 —
Sauðargærur hafa stundum verið gefnar upp í þyngd en ekki tölu.
Hér er þyngdinni breytt í tölu þannig, að gert er ráð fyrir, að hver
gæra söltuð vegi að meðaltali 2 kg.
Síðari árin er einnig farið að flytja út mikið af frystu og kældu
kjöti. Var sá úfflutningur árið 1927: 389 þús. kg, 1928: 349 þús. kg,
1929: 694 þús. kg, 1930: 875 þús. kg, 1931: 1129 þús. kg.
Iðnaðarvörur úffluttar eru aðallega prjónles (einkum sokkar og
vetlingar) og kveður sáralítið að þeim útflutningi.
Undir flokkinn „Ýmislegt“ falla þær vörur, sem ekki eiga heima
annarsstaðar, svo sem útlendar vörur, skip, bækur, frímerki 0. fl.