Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1943, Side 17
Verzlunarskýrslur 1942
15*
hefur aukizt um meira en þriðjung. Allar vörur í þessiun vöruflokki eru
taldar í 34. vöruflokki í aðaltöflunni, nema eldiviður og viðarkol, sem talin
eru með trjáviðnum. Innflutningur helztu varanna í þessum flokki hefur
verið síðustu árin: ,gd0 ,04, ,qio
þús. kg þús. kr. þús. Ug þús. kr. þús. kg þús. kr.
Steinkol 132 862 12 099 96 241 9 361 136 202 14 884
Sindurkol (kóks) . . 2 042 197 3 551 470 555 84
Steinolia (hreinsuð) . 6 351 994 1 484 311 1 095 318
Bensín 2 554 419 8 871 1 906 13 433 3 675
Aðrar brennsluolíur 8 525 1 302 17 115 3 288 22 241 4 546
Smurningsoliur .... 1 013 935 1 463 1 718 2 044 2 921
Innflutningur á f r a m 1 e i ð s 1 u t æ k j u m , sem talin eru í 7. fl. í
2. yfirliti, hefur að verðmagni töluvert mJir en tvöfaldazt frá næsta ári á
undan, var 33.4 millj. kr. árið 1942, en 14.t millj. kr. árið á undan. Stafar
þessi aukning að langmestu leyti af auknu innflutning)smagni. Mestur
hlutinn af þessum vörum eru vélar, skip og önnur flutningatæki, fyrir
tæpar 30 millj. kr. árið 1942, en fyrir rúmar 2% riiillj. kr. voru ýmsar
járn- og málmvörur (verkfæri o. f 1.).
Innflutningur á neyzluvörum öðrum en matvörum (9. og 10.
fl. í 2. yfirliti) hefur töluvert meira en tvöfaldazt að verðmagni árið 1942
frá árinu á undan. Nam innflutningur þessara vara 25.o millj. kr. árið 1941
en 56.8 millj. kr. árið 1942. Stafar þessi liækkun að langmestu levti af stór-
auknum innflutningi, þrátt fyrir nokkra verðhækkun (rúml. 30%). í 9.
fl. eru taldir óvaranlegir munir til notkunar. Er það einkum fatnaðar-
vörur, en ennfremur Iyf, hækur og hlöð, leikföng og margt fleira. í 10.
fl. eru aftur á móti taldir varanlegir munir til notkunar, svo sem ýmisleg
búsáhöld, reiðhjól og fólksbílar og aðrir slíkir hlutir, sem lengi eiga að
endast.
í 2. yfirliti (bls. 9*) eru vörurnar einnig flokkaðar eftir vinnslu-
stigi eða í hrávörur, lítt unnar vörur og fullunnar vörur. Hrávörur telj-
ast afurðir af náttúruframleiðslu (landbúnaði, fiskveiðum, námugrefti
o. s. frv.), sem ekki hafa fengið neina verulega aðvinnslu, en geta þó sumar
hverjar verið hæfar til neyzlu. Sama máli er að gegna um ýmsar lítt unn-
ar vörur, sem fengið hafa nokkra aðvinnslu, þó að þær, eins og hrávör-
urnar, séu einkum notaðar til framleiðslu. Samkvæmt yfirlitinu hafa
1942 rúml. % innfluttu varanna (að verðmæti) verið fullunnar vörur,
rúml. % lítt unnar vörur og tæpl. % hrávörur. Árið 1942 hefur innflutn-
ingur af hrávörum hækkað frá árinu á undan um 8.3 millj. kr., af lítt unn-
um vörum um 31.3 millj. kr. og af fullunnum vörum um 76.o millj. kr. Staf-
ar þetta miklu meir af auknu.m innflutningi heldur en af verðhækkun.
Af hrávörunum hefur innflutningsmagnið verið rúml. 20% hærra en árið
áður, en af hálfunnum vörum hefur það vaxið um 50% og af fullunnum
vörum meir en 60%. Verðhækkun hefur verið mest á hálfunnum vörum
(28%), nokkru minni á fullunnum vörum (23%), en minnst á hrávörum
(16%).