Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1944, Blaðsíða 17
Verzlunarskýrslur 1943
15
Allar vörur í þessum vöruflokki eru taldar í 34. vöruflokki i aðaltöflunni,
nema eldiviður og viðarkol, sem talin eru með trjáviðnum. Innflutningur
helztu vara í þessum flokki hefur verið siðustu árin:
1941 1942 1943
þús. kg þús. kr. þús. kg þús. kr. þús. kg þús. kr.
Steinkol 96 241 9 361 136 302 14 884 140 831 16 297
Sindurkol (kóks) .. . 3 551 470 555 84 471 77
Steinolía (hreinsuð) 1 484 311 1 095 318 2 796 561
Bensin 8 871 1 906 13 433 3 675 14 159 3 792
Aðrar brennsluoliur 17 115 3 288 22 241 4 546 20 402 3 530
Smurningsoliur .... 2 463 1 718 2 044 2 921 1 711 3 260
Innflutningur á f r a m I e i ð s 1 u t œ k j u m , sem talin eru í 7. fl. í
2. yfirliti hefur að verðmagni hækkað um nærri 30% frá næsta ári á und-
an, var 43.i millj. kr. árið 1943, en 33.4 millj. kr. árið á undan. Stafar þessi
aukning bæði af auknu innflutningsmagni, en þó meir af verðhækkun.
Mestur hlutinn af þessum vörum eru vélar, skip og önnur flutningstæki,
fyrir tæpar 38 millj. kr. árið 1943, en fyrir tæpl. 4% millj. kr. voru ýmsar
járn- og málmvörur (verkfæri o. f 1.).
Innflutningur á neyzluvörum öðrum en matvörum (9. og 10.
fl. í 2. yfirliti) liefur árið 1943 lækkað að verðmagni um 12% frá árinu á
undan. Nam innflutningur þessara vara 56.8 millj. kr. árið 1942 en 49.s
millj. kr. árið 1943. Stafar þessi lækkun eingöngu af stórminnkuðum inn-
flutningi (um % liluta), því að verðhækkun hefur orðið töluverð á þessum
vörum (17%)). í 9. fl. eru taldir óvaranlegir munir til notkunar. Er það
einkum fatnaðarvörur, en ennfremur Ivf, bækur og blöð, leikföng og margt
fleira. í 10. fl. eru aftur á móti taldir varanlegir munir lil notkunar, svo
sem ýmisleg húsáhöld, reiðhjól og fólksbilar og aðrir slikir hlutir, sem
lengi eiga að endast.
í 2. yfirliti (bls. 9*) eru vörurnar einnig flokkaðar eftir vinnslu-
stigi eða í hrávörur, lítt unnar vörur og fullunnar vörur. Hrávörur telj-
ast afurðir af náttúruframleiðslu (landbúnaði, fiskveiðum, námugrefti
o. s. frv.), sem ekki hafa fengið neina verulega aðvinnslu, en geta þó sumar
hverjar verið hæfar til neyzlu. Sama máli er að gegna um ýmsar lítt unn-
ar vörur, sem fengið hafa nokkra aðvinnslu, þó að þær, eins og hrávör-
urnar, séu einkum notaðar til framleiðslu. Samkvæmt yfirlitinu hafa
1943 tæpl. % innfluttu varanna (að verðmæti) verðið fullunnar vörur,
tæpl. Vi lítt unnar vörur og tæpl. % hrávörur. Árið 1943 hefur innflutn-
ingur af hrávörum hækkað frá árinu á undan um l.s millj. kr„ en af full-
unnum vörum lækkað um 5.2 millj. kr. Af hrávörunum hefur innflutnings-
magnið aukizt lítið eitt, um 2%, en af hálfunnum vörum hefur það minnk-
að um 8% og af fullunnum vörum um 16%. Verðhækkun hefur verið mest
á hálfunnum vörum (21%) nokkru minni á fullunnum vörum (15%), en
minnst á hrávörum (3%).