Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1944, Blaðsíða 23
Verzlunarskýrslur 1943
21
8. flokk. Framleiðsluvörur voru 71 millj. kr. árið 1943. Þar af er lýsið í 5.
flokki, ull og skinn í 3. flokki og fiskmjöl í 2. flokki. Hátt upp í % af öllu
útflutningsverðmætinu 1943 eru hrávörur, en aðeins rúml. % litt unnar
vörur, og fullunnar vörur aðeins Va%.
Þess var getið hér að framan (bls. 6*), að frá 1942 til 1943 hefði
vöruverðið lækkað á útflutningsvörunum að meðaltali um 14.4%.
Þessi lækkun hefur þó ekki komið jafnt á allar útflutningsvörurnar.
Þegar vörunmn er skipt eftir því, frá hvaða atvinnuvegum þær stafa,
eins og gert er í 4. yfirliti, þá sést, að vöruverðið hefur lækkað að meðal-
tali um 19% frá árinu á undan á afurðum af fiskveiðum, en hækkað um
GV2% á afurðum af landbúnaði.
Það er ísfiskurinn, sem dregur sjávarafurðirnar niður. A fleslum öðr-
uin sjávarafurðum hei'ur orðið meiri eða minni verðhækkun allt uppí
rúml. 40% á harðfiski.
4. Viðskipti við einstök lönd.
L'échnnge avec les pays étrangers.
7. yfirlit (bls. 23*) sýnir, hvernig verðupphæð innfluttu og útfluttú
varanna hefur skipzt 4 siðustu árin eftir innflutnings- og útflutnings-
löndum. Síðari hluti töflunnar sýnir, hvern þátt hvert land hefur tekið
hlutfallslega í verzluninni við Island samkvæmt islenzku verzlunarskýrsl-
unum.
Svo sein taflan her með sér, hefur stríðið haft í för með sér gagn-
gerða breytingu á viðskiptum Islands við útlönd. Viðskipti við megin-
land Evrópu hafa fallið niður að mestu leyti, en i þess stað hafa við-
skiptin beinzt að meslu leyti að Bretlandi, Bandarikjunum og Kanada.
Tjekkóslovakia og Pólland hurfu úr sögunni þegar árið 1939, en 1940
fóru sömu leið Danmörk og Noregur, Holland og Belgía og Frakk-
land. Þá hafa og alveg fállið niður öll viðskipti við Þýzkaland og Ítalíu,
sem áður voru allmikil. Að vísu var enn talinn smávegis innflutningur frá
sumum þessum löndum í skýrslum 1941, en það munu aðeins hafa verið
vörur, sem ekki hafa verið tollafgreiddar fvrr en löngu eftir að þær komu
til landsins. Viðskipti við hlutlaus lönd á meginlandi Evrópu hafa einnig
torveldasl mjög vegna hernaðarinls. Þannig eru viðskiptin við Svíþjóð
að heita má alveg úr sögunni. Aftur á móti hafa haldizt litilsháttar viðskipti
við Spán og Portúgal, og við Sviss hafa þau jafnvel aukizl nokkuð.
Meginviðskipti íslands hafa 1942 verið við Bretland og Bandarikin.
Frá þessum löndum hafa komið 89% af öllum innflutningnum og þangað
fóru 9% af öllum útflutningnum.
Rúmlega % af verðmæti alls útflutnings 1943 fóru til Bretlands. Fram-
undir % af útflutningnum til Bretlands var ísfiskur. Fram að 1940 var