Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1948, Page 10
8
Verzlunarskýrslur 1946
Síðan 1940, er tollskráin gekk í gildi ern innflutningsskýrslnrnar
komnar í órofa saniband við tollafgreiðsluna. Hagstofan fær samrit af
skýrslu þeirri, seni gefin er lil tollstjórnarinnar. I innflutningsskýrslunum
er því allt talið, sem tollafgreitt hefur verið, en hins vegar aðeins það, sem
tollafgreitt liefur verið, og á þeim tíma, þegar j)að er tollafgreitt. Ef vara
liggur óafgreidd í paklchúsi skipaafgreiðslu, er hún fyrst talin innflutt,
þegar hún er tollafgreidd, og ef hún er endursend áður en hún er af-
hent innflytjanda, telst hún ekki innflutt.
1. yfirlit (hls. 7) sýnir innflutning og útflutning í hverjum
mánuði síðastliðin 5 ár samkvæmt innflutningsskýrslum. Er þar miðað
\ ið, hvenær skýrslurnar hafa verið tollafgreiddar, en ekki, hvenær vör-
urnar hafa komið til landsins.
2. Innfluttar vörutegundir.
Importation des marchandises.
Tafla III A (hls. 4—40) sýnir, hve mikið hefur flutzt til landsins af
hverri vörutegund. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir hinni alþjóðlegu
vöruskrá Þjóðabandalagsins, sem var fyrst lögð til grundvallar í verzl-
unarskýrslunum fyrir árið 49118. í verzlunarskýrslunum l'yrir árin 1935
37 var líka birt aukalega tafla, sem var raðað eftir vöruskrá Þjóðabanda-
lagsins (tafla VI). Þar sem sundurliðun var áður meiri í islenzku verzl-
unarskýrslunum heldur en í þessari vöruskrá, sem er lágmarkslisti til
samanburðar við önnur lönd, þá hefur þeirri sundurliðun viða verið
haldið jafnnákvæmri sem áður, með því að skipta númerum vöruskrár-
innar í undirliði. Þeirri sundurliðun eru þó þau takmörk sett, að ekki
er örugglega unnt að sundurliða meir heldur en gert er í íslenzku toll-
skránni.
öllum vörulegundum í vöruskránni er skipl í 49 vöruflokka og þeim
aftur skipt í 10 stærri vöruhálka. Yfirlit um þessar skiptingar eru í töflu I
og II (bls. 1—3), en í sjálfri vöruskránni sést, hvaða vörutegundir teljasl
til hvers vöruflokks og vörubálks.
f töflu III (hls. 4—51) sést, hvernig einstökum vörutegundum er niður-
raðað í verzlunarskýrslunum. Er sú niðurröðun mjög frábrugðin þeirri
niðurröðun, sem notuð er í tollskránni. En í viðaukatöflu aftan við inngang
verzlunarskýrslnanna (hls. 31* 35*) er skrá, sem raðað er eftir tollskrár-
númerum og tilgreint, hvaða verzlunarskýrslunúmer svarar lil hvers þeirra.
Má því nota skrá þessa sem lykil til þess að finna, hvar i verzlunarskýrsl-
unum er tilfærður innflutningur vara, sem ákveðið tollskrárnúmer tekur til.
Oft svarar eitt verzlunarskýrslúnúmer til eins tollskrárnúmers, og má þá
beinlínis sjá innflutninginn í töflu III í verzlunarskýrslunum við það
núrner. En oft nær eitt verzlunarskýrslunúmer vfir tvö eða fleiri tollskrár-
númer, og sést þá ekki, hve mikill innflutningur er undir hverju tollskrár-
númeri fyrir sig, nema verzlunarskýrslunúmerinu hafi verið skipt í fleiri