Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1948, Blaðsíða 27
Verzlunarskýrslur 194G
25
lands, Bandaríkjanna og Kanada) féll niðnr í % af innflutningnum og
helming af útflulningnum.
Rúinl. þriðjungur alls innflutnings árið 1946 kom frá Bretlandi og
rúml. þriðjungur alls útflutningsins fór þangað. Innflutningur þaðan nam
162 millj. kr. (að meðtöldum vörukaupum frá setuliði Breta hér, fyrir
rúml. % millj. kr.), en útflutningur þangað aðeins 106 millj. kr„ svo að
umframinnflutningur varð 56 millj. kr. Nokkur undanfarin ár hafði hins
vegar orðið mikill mismunur á hina hliðina. Árið 1945 var hann 119 millj.
kr. En 1946 hrapaði útflutningurinn til Bretlands næstum um helming, úr
189 millj. kr. 1945 niður í 106 millj. kr„ og stafaði það aðallega af því, að
Bretar hættu að kaupa héðan frvstan fisk. Langhæsti liðurinn í útflutningi
til Bretlands 1946 var isfiskur, 62 millj. kr„ en þar næst síldarlýsi, 17 millj.
kr. Innflutningurinn frá Bretlandi 1946 var hins vegar meir en tvöfaldur
að verðmagni móts við árið á undan, er hann var aðeins 70 millj. kr. Helztu
innflutningsvörur þaðan 1946 voru vélar, áhöld og flutningstæki fyrir 41
millj. kr„ vefnaðarvörur og fatnaður 84 millj. kr„ járn og aðrar málmvörur
23 millj. kr.
Frá Bandarikjunum kom rúml. y4 innflutningsins 1946, en Vs af út-
flutningnum fór þangað. \Tarð innflutningsupphæðin þaðan 116 millj. kr.
(að meðtöldnm vörum kevptum af setuliðinu fyrir 5% millj kr.), en út-
flutningsupphæðin ekki nema 38 millj. kr„ svo að umframinnflutningur
varð 58 millj. kr. Er það þó miklu minni munur en verið hefur næstu
undanfarin ár, hér um bil 100 millj. kr. minni heldur en árið 1945. Stafar
þetta eingöngu af lækkun innflutningsins. Helstu liðirnir í innflulningn-
um frá Bandaríkjunum 1946 voru vélar og áhöld 21 millj. kr„ flutningstæki
18 millj. kr. (þar af hílar og bílahlutar 13 millj.). I útflutningnum kveður
langmest að þorskalýsi, fvrir 21 millj. kr„ eða töluvert meira en helming-
urinn af öllum útflutningnum, þar næst er frystur fiskur fyrir 8 millj. kr„
sildarmjöl og fiskmjöl fvrir 4 millj., söltuð síld 2 millj. og niðursuðu-
vörur lVá millj.
Þriðja hæsta viðskiptalandið 1946 var Svíþjóð. Innflulningur þaðan
nam 56 millj. kr. eða 12%9í af öllum innflutningi, en útflutningurinn 15.
millj. eða rúml. 5*V af útflutningnnm alls. Frá Sviþjóð voru innflutt skip
fyrir 29 millj. kr„ vélar og áhöld fyrir 10 millj. og timbur og trjávörur
fvrir 8 millj. En útflutningurinn var aðallega söltuð sild (12 millj. kr.).
Fjórða viðskiptalandið i röðinni 1946 var Rússland. Útflutningur
þangað nam 58 inillj. kr. eða nál. % af öllum útflutningnum. Var það aðal-
lega frystur fiskur (37 millj.), söltuð síld (11 millj.) og síldarlýsi (9
millj.). En innflutningur frá Rússlandi var 9 millj. kr„ og var það timbur.
Kol, sem kevpt voru af Rússuni, voru talin frá Póllandi, því að þau eru
þaðan.
Finnnta landið í röðinni er Danmörk. Innflulningur þaðan var 33
millj. kr. eða rúml. 7% af innflutningnum, en útflutningur þangað var
25 millj. kr. eða nál. 9c/c cif utflutningnum. Af innflutningnuin voru vclnr
og áhöld nál. () millj. kr., húsgögn millj. kr. og vélskip 2% millj. kr.