Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1950, Síða 33
Verzlunarskýrslur 1947
31
1947 numið 4.s millj. kr. eða 0.9% af öllum innflutningnum (1946: 12.o
millj. eða 2.8%, 1945: 15.o millj. eða 5.7%, 1944: 4.2 millj. eða 1.7%,
1943: 4.3 millj. eða 1.7%).
Um verðniæti útflutnings í pósti eru ekki til tilsvarandi skýrslur, enda
hefur verið lítið um, að verzlunarvörur væru sendar út í pósti, en póst-
bögglar, sem sendir eru að gjöf, hvort heldur liingað lil lands eða liéðan
frá einstaklingum, eru ekki teknir með i verzlunarskýrslurnar.
6. Tollarnir.
Customs duties.
Þegar tollskráin gekk í gildi 1940, var hætt að reikna með toll-
flokkum þeim, sem gert hafði verið áður (vínfangatolli, tóhakstolli,
kaffi- og sykurtolli, te- og súkkulaðstolli og vörutolli, auk verðtolls),
og öllum tollunum aðeins skift i tvo aðalflokka, vörumagnstoll og verð-
toll, og er aðeins aðalupphæð þeirra hvors um sig tilfærð í rikisreikn-
ingnum. Hins vegar er í tollskránni talinn upp aragrúi af einstökum
vörutegundum og tilgreint, hvaða tollgjald beri að greiða af hverri. Ef
vitað er um innflutningsmagnið og innflutningsverðið, má sjá, hve
mikill tollur fæst af hverri vörutegund. Innflutningsverðið sést í verzl-
unarskýrslunum, því að verðtollur samkvæmt tollskránni er miðaður
við innkaupsverð að viðbættum flutningskostnaði til landsins. Þó hefur
verið gerð sú breyting, að síðan 16. apríl 1942 hefur ekki verið reiknaður
neinn verðtollur af farmgjaldi á sykri, og 50% hækkun á farmgjöldum frá
Ameríku, sem var í gildi frá 8. maí 1943 til 1. júlí 1944, var heldur ekki
tekin með við tollálagningu. Af gömlu tollvörunum (áfengi, tóbaki, kaffi
og sykri, tei og kakaó) er vörumagnstollurinn miðaður við nettómagn,
og má líka sjá það í verzlunarskýrslunum. Af öðrum vörum miðast vöru-
magnstollurinn aftur á móti við brúttómagn, og sést það ekki í verzlunar-
skýrslunum. Verður þvi ekki unnt að reikna lit eftir verzlunarskýrslun-
um og tollskránni, hve mikill vörumagnstollur fæst af þeim vörum, nema
með því að bæta fyrst við vörumagn verzlunarskýrslnanna áætlaðri upp-
hæð fyrir umbúðaþyngdinni.
í töflu VIII (bls. 112—113) hefur verið reiknaður út þyngdartollurinn
árið 1947 af vörum gömlu tollflokkanna (áfengi, tóbaki, kaffi og sykri, tei
og kakaó) eftir innflutningsmagni þeirra í verzlunarskýrslunum. Má af
því fá samanburð við þessa tolla undanfarin ár. Slíkur samanburður er
í 9. yfirliti, sem nær yfir 5 síðustu árin og þrjú 5 ára tímabil. Er þar einnig
tekin heildarupphæð vörumagnstollsins af öðrum vörum og verðtollurinn.
Árið 1947 hefur vörumagnstollurinn alls hækkað um 8.s millj. kr. eða
nál. 60% frá árinu á undan, en verðtollurinn hefur hækkað um 10.2 millj.
kr. eða um rúml. 16%. Alls liafa innflutningstollarnir hækkað úr 77.o