Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1954, Qupperneq 12
8
Verzlunarskýrslur 1952
liðun, en hún er látin nœgja til þess að skráin sé meðfærileg og sem flest lönd geti
fullnægt henni. Þessum 570 númerum er svo skipt á 150 vöruflokka (,,groups“),
sem ganga upp í 52 vörudeildir (,,divisions“), sem svo aftur mynda 10 vöru-
hálka (,,sections“). Yörubálkarnir hafa númerin 0—9 (sjá töflu I, bls. 1). Vöru-
deildirnar eru táknaðar með 2 tölustöfum, þ. e. með númerum 0—9 aftan við númer
vörubálksins (sjá töflu II, bls. 2), og vöruflokkarnir með númerum 0—9 á eftir
númeri vörudeildanna. Þeir eru því táknaðir með þriggja stafa tölu, sem sýnir
jafnframt, í hvaða deild og hálki viðkomandi flokkur er. Heiti hinna 150 vöruflokka
sjást í töflu IV A (bls. 12—70), þar sem þau eru prentuð með bili á milli bókstafa
ásamt 3ja stafa tölu framan við. Vörugreinarnar eru táknaðar með númerum frá
01—99 aftan við viðkomandi flokksnúmer og er haft bandstrik þar á milli til hægðar-
auka. Er þannig rúm fyrir 99 vörugreinar innan hvers vöruflokks. — Tákntölu-
kerfið, sem hér um ræðir, er þá þannig:
xxx-xx er vörugrein.
xxx er vöruflokkur.
xx er vörudeild.
x er vörubálkur.
Tollskráin íslenzka er allmiklu meira sundurgreind heldur en alþjóðlega vöru-
skráin. í hinni fyrr nefndu eru 1952 um 1600 vörunúmer, þar af komu um 1180
fyrir í innflutuingi 1952 og auk þess ca. 45 vöruteguudir, vegna skiptingar Hag-
stofunnar á tollnúmerum. Tala vörugreina í alþjóðlegu vöruskránni er 570, og falla
því oft tvö eða fleiri tollskrárnúmer undir vörugrein í vöruskránni, þó að hitt sé
líka algengt, að tollskrárnúmer og vörugrein sé eitt og það sama. 1 töflu IV (bls.
12—76) sést, hvernig vörunum er í heild niðurraðað í verzlunarskýrslunum. Heildar-
tölur (magn og verðmæti), vörubálka, vörudeilda, vöruflokka og vörugreina eru
gefnar upp í sömu línu og heiti þeirra standa, með mismunandi letri, en tollskrár-
númer, sem er ekki jafnframt vörugrein, kemur á eftir viðkomandi vörugrein með
smærra letri. í útflutningnum (tafla IV B, bls. 71) þarf oft að liafa tvöfalda flokkun
undir liverri vörugrein. Þar er hver sjálfstæður liður auðkenndur með litlum bók-
staf og í línunni til liægri er, ef svo ber undir, samtala eftirfarandi vörutegunda,
sem settar eru með sama letri, en ekki auðkenndar með bókstaf.
Sjálf töfluskipunin er óbreytt frá því, sem verið hefur. Aðaltöflurnar eru eftir
sem áður 9 talsins (3 þeirra tvískiptar), þ. e. III, IV og V) og heiti þeirra svo að
segja hin sömu og verið hafa. Hins vegar hefur niðurröðun vara í töflunum ger-
breytzt. Hún er mjög frábrugðin þeirri niðurröðun, sem notuð er í tollskránni,
og því er aftan við þennan inngang (á bls. 34) skrá, röðuð eftir tollskrárnúmerum,
þar sem tilgreint er, undir livaða vöruskrárnúmer hvert þeirra fellur. Þessi skrá
er þannig lykill að því, hvar í verzlunarskýrslunum livert toUskrárnúmer er að fínna.
Cif-verð, fob-verð o. fl. Fram að árinu 1951 hefur innflutningurinn í verzlunar-
skýrslum eingöngu verið talinn á cif-verði, þ. e. á verði vöru í útflutningslandinu
(fob-verð), að viðbættum kostnaði, sem á fellur, þar til hún er affermd á ákvörð-
unarstað. Er hér aðallega um að ræða flutningsgjald og vátryggingu. í Verzlunar-
skýrslum 1951 og 1952 er innflutningurinn einnig gefinn upp á fob-verði,
en þó aðeins í töflum II og IV A. í hinni síðar nefndu eru aUar vörutegundir sam-
kvæmt toUskrá taldar með magni og verðmæti hverrar um sig. Hinar stórvirku
skýrsluvélar, er Hagstofan tók í notkun árið 1949, hafa gerbreytt vinnubrögðum
og afköstum við úrvinnslu innflutningsskýrslna, og meðal margs annars gert mögu-
legt að finna og birta fob-verð sérhverrar innfluttrar vöru, auk cif-verðsins. Þetta
eykur notagildi verzlunarskýrslnanna, og auk þess hefur það mikla þýðingu við