Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1954, Qupperneq 15
Verzlunarskýrslur 1952
11*
nettótölunni. í þriðja lagi gefur brúttóþyngd betri hugmynd um flutningaþörfina
til landsins, og enn fremur eru flutningsgjöld að sjálfsögðu miðuð við hana. Loks
felst í því mikill vinnusparnaður fyrir Hagstofuna, við samningu verzlunarskýrsln-
anna, að miðað sé við brúttó- en ekki nettóþyngd. Af öllum þessum ástæðum var
ákveðið að taka upp brúttóþyngd í stað nettóþyngdar í verzlunar-
skýrslum, enda var áður búið að ganga úr skugga um, að það færi ekki í bág
við alþjóðasamþykktir um fyrirkomulag verzlunarskýrslna. Að vísu mun í verzlunar-
skýrslum annarra landa yfirleitt vera notuð nettóþyngd, en þar er ekki um að ræða
neina skuldbindingu eða kvöð, heldur getur hvert land hagað þessu eins og því
hentar bezt.
Sá annmarki fylgir breytingu þeirri, sem hér um ræðir, að samanburður við
eldri innflutningstölur torveldast. Er leitazt við að bæta eitthvað úr þessu með
því að sýna í töflu IV A, í sérstökum dálki, hve miklum hundraðshluta
nettóþyngd er talin nema af brúttóþyngd fyrir hverja einstaka vöru-
tegund. Hlutföll þessi voru notuð við umreikning brúttóþyngdar í nettóþyngd í
verzlunarskýrslum 1950. Var gerð sérstök athugun á innflutningnum 1950 í því
skyni að finna sem réttust hlutföll milli brúttó- og nettóþyngdar, og fengust um
þetta tiltölulega öruggar niðurstöður að því er snertir flestar vörur. í sumum til-
fellum var þó haldið áfram að nota hlutfoll, sem Hagstofan hafði áður notað við
útreikning á nettóþyngd viðkomandi vörutegunda.
Gjaldeyrisgengi. I árslok 1952 var skráð gengi Landsbankans á erlendum
gjaldeyri sem hér segir (í kr. á tiltekna einingu):
Eining Kaup Sala
Sterlingspund 1 45,55 45,70
Bandaríkjadollar 1 16,26 16,32
Kanadadollar 1 16,84 16,90
Dönsk króna 100 235,50 236,30
Norsk króna 100 227,75 228,50
Sænsk króna 100 314,45 315,50
Finnskt mark 100 - 7,09
Franskur franki 1 000 46,48 46,63
Belgískur franki 100 32,56 32,67
Svissneskur franki 100 372,50 373,70
Gyllini 100 428,50 429,90
Tékknesk króna 100 32,53 32,64
Vestur-þýzkt mark 100 387,00 -
Líra 1 000 - 26,12
Gengi á þeim erlenda gjaldeyxi, sem talinn er hér að ofan, var allt árið það
sama og í lok þess, ef frá er talið gengi á Kanadadollar. Sölugengi hans var kr. 15,98
í árslok 1951, hækkaði síðan í smástökkum, og var hæst kr. 16,97 á tímabilinu
7. ágúst til 11. október. Eftir það ýmist hækkaði eða lækkaði það, og í árslok var
sölugengið kr. 16,90. Meðalgengi ársins var kr. 16,672. Kaupgengi Kanadadollars
var 6 aurum lægra en sölugengið allt árið. Eitthvað af viðskiptunum við Austurríki
var á genginu kr. 113,00 á 100 schillinga, en megnið af þeim fór fram með dollar
sem reikningseiningu og þau voru jöfnuð við Greiðslubandalag Evrópu (E.P.U.),
eins og viðskipti við önnur lönd í Vestur-Evrópu, að Spáni undanskildum. Við-
skiptin við það land hafa farið um reikning milli þjóðbankanna, með sterlingspund
sem reikningseiningu.