Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1954, Blaðsíða 34
30*
Verzlunarskvrshir 1952
flokksins er tilgreind, en þó að jafnaði ekki nema verðmætið nái %% af heildar-
innflutningnum frá viðkomandi landi. Hins vegar eru tilgreindar einstakar vöru-
greinar í vöruflokki, ef þær að verðmæti til ná %% af heildarinnflutningi frá land-
inu. Nái enginn vöruflokkur í vörubálki %% af innflutningi, þá er heildarupphæð
vörubálksins tilgreind, með númeri hans og 2 núllum fyrir aftan. Ella er allt það
í vörubálki, sem er ekki tOgreint sérstaklega, sett í einn safnlið ,t. d.: „annað í
bálki 6“. — Útflutningur tU hvers lands er hins vegar ávallt sundurliðaður tO
fullnustu, eins og i aðaltöflunni, IV B.
Það hefur verið regla í íslenzkum verzlunarskýrslum að miða viðskiptin við
innkaupsland og söluland, hvaðan vörurnar eru keyptar og hvert þær eru
seldar. En margar innfluttar vörur eru keyptar í öðrum löndum en þar, sem þær
eru framleiddar, og eins er um ýmsar útfluttar vörur, að þær eru notaðar í öðrum
löndum cn þeim, sem fyrst kaupa þær. Innkaups- og sölulöndin gefa því ekki rétta
liugmynd um hin eiginlegu vöruskipti milli framleiðenda og neytenda varanna.
Ymis lönd liafa því breytt verzlunarskýrslum sínum viðvíkjandi viðskiptalöndum
í það horf, að þær veita upplýsingar um upprunaland og neyzluland. Til þes? að
fá upplýsingar um þetta viðvíkjandi innflutningi tO íslands, er á innflutnings-
skýrslueyðublöðunum dálkur fyrir upprunaland varanna, auk innkaupslandsins,
en sá dálkur hefur mjög sjaldan verið útfylltur. Hefur því ekki þótt tOtækilegt að
gera yfirlit um það. Þó hefur verið breytt til um nokkrar vörur, þar sem augljóst
hefur þótt, hvert upprunalandið var. Á þetta einkum við um sumar þungavörur,
svo sem kol, olíur, bensín, salt o. fl.
6. Viðskipti við útlönd eftir tollafgreiðslustöðum.
External Trade by Customs Areas.
Töflu VII á bls. 121 er ætlað að sýna verð innfluttrar og útfluttrar vöru eftir
tollafgreiðslustöðum. í því sambandi skal tekið fram, að tölur þessarar töflu
eru að ýmsu leyti óáreiðanlegar vegna annmarka, sem erfitt er að bæta úr. T. d.
kveður talsvert að því, að farmar og einstakar vörusendingar séu toflafgreiddar —
og þar með taldar fluttar inn — í öðru tollumdæmi en þar, sem innflytjandi er
búsettur. Eins og vænta má, er það aðallega í Reykjavík, sem toUafgreiddar eru
vörur, sem fluttar eru inn af innflytjendum annars staðar á landinu.
Taflan gefur enn fremur að sumu leyti ófifllkomna hugmynd um skiptingu
útflutningsins á afgreiðslustaði, þar sem það er talsvert mikið á reiki, hvaðan
útflutningurinn er tOkynntur. Stafar þetta einkum af því, að sölusambönd, sem
hafa aðsetur í Reykjavík, annast sölu og útflutning á sumum helztu útflutnings-
vörunum, þannig að útflutningsvörur utan af landi eru afgreiddar í Reykjavík og
oft ekki tilkynntar Hagstofunni sem útflutningur frá viðkomandi afskipunarhöfn.
Tafla VII sýnir verðmæti innflutnings í pósti, en tilsvarandi skýrslur um út-
flutning í pósti eru ekki fyrir hendi, enda hefur verið lítið um, að verzlunarvörur
væru sendar út í pósti. — Póstbögglar, sem sendir eru að gjöf, hvort heldur liingað
tO lands eða héðan frá einstaklingum, eru ekki teknir með í verzlunarskýrslurnar.
7. Tollamir.
Customs Duties.
Tafla VIII (bls. 122—123) sýnir tolltekjur ríkissjóðs, tOfallnar árið 1952,
af hinum svo nefndu gömlu tollvörum (áfengi, tóbak, sykur, te og kakaó, sjá