Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1956, Page 31
Verzlunarskýrslur 1954
29
7. yfirlit (frh.). Viðskipti við einstök lönd 1952—1954.
Verðupphœð (1000 kr.) Hlutfallstölui (%)
1952 1953 1954 1952 1953 1954
Suður-Afríka Union of South Africa 138 5 0.0 - 0.0
Suður-Rhódesía Southern Rhodesia - 3 - - 0.0 -
Hongkong Hong-Kong 652 457 - 0.1 0.1 -
Indónesía Indonesia 8 - - 0.0 “ -
Irak Iraq 90 - - 0.0 - -
Iran Iran - 10 15 - 0.0 0.0
ísrael Israel 5 155 11 261 8 023 0.8 1.6 0.9
Kína China - 250 505 - 0.0 0.1
Kýprus Cyprus 359 14 - 0.1 0.0 -
Líbanon Lebanon - 54 18 - 0.0 0.0
Ástralía Australia 81 10 77 0.0 0.0 0.0
Samtals 641 322 706 414 845 912 100.0 100.0 100.0
Það hefur verið regla í íslenzkum verzlunarskýrslum að miða viðskiptin við
innkaupsland og söluland, hvaðan vörurnar eru keyptar og hvert þær eru
seldar. En margar innfluttar vörur eru keyptar í öðrum löndum en þar, sem þær
eru framleiddar, og eins er um ýmsar útfluttar vörur, að þær eru notaðar í öðrum
löndum en þcim, sem fyrst kaupa þær. Innkaups- og sölulöndin gefa því ekki rétta
hugmynd um liin eiginlegu vöruskipti milli framleiðenda og neytenda varanna.
Ýmis lönd hafa því breytt verzlunarskýrslum sínum viðvíkjandi viðskiptalöndum
í það horf, að þær veita upplýsingar um upprunaland og neyzluland. Til þess að
fá upplýsingar um þetta viðvíkjandi innflutningi til íslands, er á innflutnings-
skýrslueyðublöðunum dálkur fyrir upprunaland varanna, auk innkaupslandsins,
en sá dálkur liefur mjög sjaldan verið útfylltur. Hefur því ekki þótt tiltækilegt að
gera yfirlit um það. Þó hefur verið breytt til um nokkrar vörur, þar sem augljóst
hefur þótt, hvert upprunalandið var. Á þetta einkum við um sumar þungavörur,
svo sem kol, olíur, bensín, salt o. fl.
6. Viðskipti við útlönd eftir tollafgreiðslustöðum.
External Trade by Customs Areas.
Töflu VII á bls. 136 er ætlað að sýna verð innfluttrar og útfluttrar vöru eftir
tollafgreiðslustöðum. í því sambandi skal tekið fram, að tölur þessarar töflu
eru að ýmsu leyti óáreiðanlegar vegna annmarka, sem erfitt er að bæta úr. T. d.
kveður talsvert að því, að farmar og einstakar vörusendingar séu tollafgreiddar —
og þar með taldar fluttar inn — í öðru tollumdæmi en þar, sem innflytjandi er
búsettur. Eins og vænta má, er það aðallega í Reykjavík, sem tollafgreiddar eru
vörur, sem fluttar eru inn af innflytjendum annars staðar á landinu.
Taflan gefur enn fremur að sumu leyti ófullkomna hugmynd um skiptingu
útflutningsins á afgreiðslustaði, þar sem það er talsvert mikið á reiki, hvaðan
útflutningurinn er tilkynntur. Stafar þetta einkum af því, að sölusambönd, sem
hafa aðsetur í Reykjavík, annast sölu og útflutning á sumum helztu útflutnings-
vörunum, þannig að útflutningsvörur utan af landi eru afgreiddar í Reykjavík og
oft ekki tilkynntar Hagstofunni sem útflutningur frá viðkomandi afskipunarhöfn.