Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1967, Blaðsíða 29
Verzlunarakýrslur 1966
27*
4. Útfluttar vörur.
Exports.
í töflu V (bls. 158—171) er sýndur útflutningur á hverri einstakri
vörutegund eftir löndum og er sú tafla í röð vöruskrár hagstofu Sam-
einuðu þjóðanna, en með dýpstu sundurgreiningu vörutegunda sam-
kvæmt flokkun Hagstofunnar á útflutningsvörum. Hér vísast að öðru
leyti til skýringa í 1. kafla þessa inngangs og við upphaf töflu V á
bls. 158.
1 töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti útflutningsins eftir
vörudeildum hinnar endurskoðuðu vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóð-
anna. í töflu III á bls. 20—23 er sýnt verðmæti helztu útflutningsafurða
innan hverrar vörudeildar sömu skrár, með skiptingu á lönd.
Eins og greint var frá í 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn í
verzlunarskýrslum talinn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um
borð í skip (fob) á þeirri höfn, er þær fara fyrst frá samkvæmt sölu-
reikningi útflytjanda. Þessi regla getur ekki átt við isfisk, sem íslenzk
skip selja í erlendum höfnum, og gilda því um verðákvörðun hans í
verzlunarskýrslum sérstakar reglur. Á síðasta ári var þessum reglum
fylgt við ákvörðun á fob-verði ísfisks til Bretlands: Flutningsgjald
reiknaðist 790 kr. á tonn og frádráttur vegna sölukostnaðar og innflutnings-
tolls 14% af brúttósöluverði og 50 au. á hvert kg landaðs fisks. Var þetta
óbreytt frá því, sem hafði verið frá og með ágústbyrjun 1961. Ákvörðun
fob-verðs á ísfiski til Vestur-Þýzkalands 1966 hefur verið sem hér segir sið-
an i ársbyrjun 1962 (sjá nánar febrúarblað Hagtíðinda 1962): Frádráttur
vegna sölukostnaðar og innflutningstolls á isaðri síld 15% af brúttósölu-
verði 15. febrúar til 14. júni, en 20,22% á öðrum tíma árs. Sams konar frá-
dráttur á öðrum isfiski 25% 1. janúar til 31. júli, en 18,915% á öðrum tíma
árs. Reiknað flutningsgjald fyrir ísfisk til Vestur-Þýzkalands var 930 kr. á
tonn. I Vestur-Þýzkalandi er leiga á löndunartækjum og annar beinn lönd-
unarkostnaður lægri en í Bretlandi, svo að ekki þykir ástæða til að gera
sérstakan frádrátt fyrir honum. Hér fer á eftir sundurgreining á verð-
mæti isfisksútflutningsins 1966 (í þús. kr.):
Bretland V-Þýzkaland Samtalg
FOB-verð skv. verzlunarskýrslum ......................... 84 911 72 273 157 184
Reiknaður flutningskostnaður.............................. 9 173 11 033 20 206
Áætlaður sölukostnaður og tollur ........................ 22 067 23 413 45 480
Brúttósölur ............................................ 116 151 106 719 222 870
ísvarin síld er meðtalin i þessum tölum, en hins vegar er hér aðeins
talinn ísfiskur fluttur út með íslenzkum fiskiskipum. ísfiskur fluttur
með islenzkum og erlendum vöruflutningaskipum og flugvélum er ekki
meðtalinn. Frystur fiskur fluttur til útlanda með isfiskskipum er ekki
meðtalinn.