Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1975, Qupperneq 34
30*
Verslunarskýrslur 1974
raarz 1966, sem fékk lagagildi með lögum nr. 76/1966, er mestallt, sem
með þarf til byggingar álbræðslunnar, undanþegið aðflutningsgjöldum og
söluskatti. Þar eð hér er um að ræða erlenda fjárfestingu og mikinn inn-
flutning af sérstökum uppruna, var sá háttur hafður á 1967 og 1968, að
þessi innflutningur var ekki haíður með í árlegum innflutningstölum
Verslunarskýrsina. Hins vegar hefur hann frá og með 1968 verið meðtal-
inn í mánaðarlegum innflutningstölum, birtum í Hagtíðindum, sjá nánar
athugasemd neðst á bls. 69 i aprílblaði Hagtiðinda 1968. Að því er varð-
ar birtingu i Verslunarskýrslum er hins vegar, frá og með árinu 1969,
rekstrarvöruinnflutningur íslenska álfélagsins h.f. talinn með öðrum
innflulningi, enda er útflutningur áls, sem hófst á hausti 1969, tekinn
með öðrum útflutningi. Innflutningi til fjárfestingar er á hinn bóg-
inn eftir sem áður sleppt í öllum almennum töflum Verslunarskýrslna. I
inngangi Verslunarskýrslna 1967 og 1968 voru birtar sérupplýsingar um
innílutning til íslenska álfélagsins h.f., sem á þeim árum var einvörðungu
vegna byggingar álbræðslu. í inngangi Versiunarskýrslna hvert ár 1969—
1973 er birt sams konar yfirlit um innflutning þess fyrirtækis til fjárfest-
ingar, en auk þess er birt sérskýrsla með upplýsingum um rekstrarvöru-
innflutning til álbræðslu, en hann kom fyrst til sögunnar 1969. Þær tölur
eru, eins og áður segir, taldar ineð almennum innflutningi. Þess skal getið,
að svo nefndar „verktakavörur“ innfluttar af ísl. álfélaginu eru ekki
teknar á skýrslu og því ekki meðtaldar i skýrslu þeirri, sem hér fer á
eftir. Er hér um að ræða tæki (þar með áhöld og verkfæri, svo og fylgi-
og varahlutir) til mannvirkjagerðar o. fl., sem Isl. álfélagið hyggst
flytja úr landi, þegar þar að kemur. Ef slikar vörur eru síðar seldar eða
afhentar til innlends aðila, eru þær teknar í innflutningsskýrslur, en þá
ekki sem innflutningur íslenska álfélagsins h.f.
Hér fer á eftir skýrsla um innflutning 1974 til framkv. Landsvirkjunar
og til fjárfestingar Isl. álfélagsins, og er hann greindur á vörudeildir
og á lönd innan þeirra. Fyrst er, fyrir hvorn aðilann um sig, tilgreind
nettóþyngd innflutnings í tonnum, síðan fob-verðmæti og loks cif-verð-
mæti, hvort tveggja í millj. kr. Aftan við „önnur lönd“ er hverju sinni til-
greind tala þeirra, fyrst fyrir Landsvirkjun og síðan fyrir íslenska ál-
félagið h.f. Innflutningur til Islenska álfélagsins h.f. 1974 nam alls 4 333,1
millj. kr., þar af 24,3 vegna byggingarframkvæmda, og 4 308,8 millj. kr.
rekstrarvörur til álframleiðslu. I skýrslunni næst hér á eftir er sundur-
greining á fyrr nefndu innflutningsverðmæti, en það er eins og fyrr segir
ekki meðtalið í almennum innflutningi. Þar fyrir aftan er svo sundur-
greining á rekstrarvöruinnflutningi, sem er talinn með almennum inn-
flutningi og þvi alls staðar innifalinn í töflum.
Hér fer á eftir sundurgreining á rekstrarvöruinnflutningi til ís-
lenska álfélagsins h.f. 1974, og er þar tilgreind sú vara, sem mestu skiptir
í hverri vörudeild, svo og tollskrárnúmer hennar. Að öðru leyti er skýrsl-
an hér á eftir sett upp á sama hátt og skýrslan næst á undan. — Eins