Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1975, Page 40
36
Verslunarskýrslur 1974
Innflutningur varnarliðseigna. Við lok heimsstyrjaldarinnar var sett
á fót nefnd, er keypti fyrir hönd ríkissjóðs ýmsar eignir setuliðanna
tveggja, sem þau tóku ekki með sér, þegar þau fóru af landi burt. Nefndin
sá og um sölu slíkra eigna til innlendra aðila. Árið 1951 hófust sams konar
kaup af bandaríska liðinu, sem kom til landsins samkvæmt varnarsamn-
ingi íslands og Bandaríkjanna í mai 1951. Síðar hafa hér bæst við kaup
á bifreiðum o. fl. frá einstökum varnariiðsmönnum, svo og kaup frá ís-
lenskum aðalverktökum á tækjum o. fl., sem þeir hafa flutt inn tollfrjálst
vegna verka fyrir varnarliðið. Eru hvor tveggja þessi kaup meðtalin í þeim
tölum, sem hér fara á eftir. — Vörur þær, sem hér um ræðir, fá ekki toll-
meðferð eins og aðrar innfluttar vörur, og er þar af leiðandi ógerlegt að
telja þær með innflutningi í verslunarskýrslum. Rétt þykir að gera hér
nokkra grein fyrir þessum innflutningi, og fer hér á eftir yfirlit um
heildarupphæð þessara kaupa hvert áranna 1951—74 (þús. kr.):
1951 204 1956 2 439 1961 8 029 1966 4 123 1971 18 119
1952 77 1957 2 401 1962 4 473 1967 5 345 1972 19 342
1953 664 1958 5 113 1963 6 335 1968 9 158 1973 24 575
1954 1 731 1959 9 797 1964 4 141 1969 10 570 1974 34 940
1955 2 045 1960 16 825 1965 4 283 1970 19 319
í kaupverðmætinu er innifalinn kostnaður við viðgerðir o. fl. til aukn-
ingar á söluverðmæti, o. fl. Ástæða er til að taka fram, að 67 þeirra
bifreiða, sem keyptar voru 1974, voru taldar ógangfærar (20 voru fólks-
bílar, 47 vöru- og sendiferðabílar). Sundurgreining kaupverðmætisins
eftir vöruflokkum 1973 og 1974 fer hér á eftir (í þús. kr.):
1973 1974
Fólksbílar (1973: 194, 1974: 222)................................ 20 660 24 556
Vóru- og sendiferðabílar (1973: 45, 1974: 49) ...................... 651 293
Aðrir bílar ........................................................ 189 968
Vörulyftur, dráttar- og tengivagnar ................................. 35 75
Vinnuvélar................................................... — 2 492
Aðrar vélar og tæki ................................................. 17 202
Varahlutir í bíla og vélar, einnig hjólbarðar ............... 42 2 405
Skrifstofu- og búsáhöld og hcimilistæki ............................ 167 156
Fatnaður ............................................................. 3 —
Ýmsar vörur ...................................................... 1 572 1 335
Vörur keyptar innanlands vegna söluvarnings, svo og viðgerðir . 1 231 2 438
Bankakostnaður........................................................ 8 20
Alls 24 575 34 940
4. Útfluttar vörur.
Exports.
í töflu V (bls. 210—224) er sýndur útflutningur á hverri einstakri
vörutegund eftir löndum. Röð vörutegunda í þessari töflu fylgdi áður
vöruskrá hagstofu Sameinuðu þjóðanna, en frá og með 1970 er röð vöru-
tegunda í þessari töflu samkvæmt sérstakri vöruskrá Hagstofunnar fyrir
útflutning. Um þetta vísast til nánari skýringa í 1. kafla þessa inngangs og
við upphaf töflu V á bls. 210.