Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1975, Blaðsíða 53
Verslunarskýrslur 1974
49
á reiki, hvaðan útflutningurinn er tilkynntur. Stafar þetta einkum af því,
að sölusambönd, sem hafa aðsetur í Reykjavík, annast sölu og útflutning
á sumum helstu útflutningsvörunum, þannig að útflutningsvörur utan af
landi eru afgreiddar í Reykjavík og oft ekki tilkynntar Hagstofunni sem
útfiutningur frá viðkomandi afskipunarhöfn.
Eigin afli fiskiskipa, seldur af þeim sjálfum í erlendri höfn (aðal-
lega ísuð síld og annar ísvarinn fiskur) var áður fyrr í töflu VII allur
talinn fluttur út frá Reykjavík. Á þessu voru augljósir annmarkar, sem
aukast með vaxandi ísfiskútflutningi, og því var þessu breytt frá og með
Verslunarskýrslum 1970. Þessi útflutningur er nú í sérstökum lið í
töflu VII.
Tafla VII sýnir verðmæti innflutnings í pósti. Mjög lítið er um út-
flutning í pósti og því nær eingöngu frá Reykjavík. — Póstbögglar, sem
sendir eru að gjöf, hvort heldur hingað til lands eða héðan frá einstakling-
um, eru ekki teknir með í verslunarskýrslur.
1 töflu VII kemur fram cif-verðmæti vara, sem fóru um tollvöru-
geyinsluna í Reykjavík. Tollvörugeymslan h.f., sem fékk heimild ráð-
herra til að reka almenna tollvörugeymslu í Reykjavík (sbr. lög nr.
47/1960 og reglugerð nr. 56/1961), hóf starfsemi í ágúst 1964. Aðalhlut-
verk hennar er að skapa innflytjendum aðstöðu til að fá, að vissu marki,
einstakar vörusendingar tollafgreiddar smám saman eftir hentugleikum.
Að sjálfsögðu eru það aðallega tiltölulega fyrirferðarlitlar vörur, og vörur
með háum tolli, sem færðar eru í tollvörugeymslu. — Það skal tekið fram,
að Hagstofan telur allar vörur í vörusendingu fluttar inn, þegar þær eru
færðar í tollvörugeymslu eftir komu þeirra til landsins í farmrými skips
eða flugvélar, eða í pósti, — en ekki þegar einstakir hlutar vörusendingar
eru endanlega tollafgreiddir og afhentir innflytjanda. — I júlí 1970 tók
til starfa Almenna tollvörugeymslan hf. á Akureyri. Vörur, sem fara um
hana, eru teknar í innflutningsskýrslur á sama hált og vörur, sem fara
um tollvörugeymslu í Reykjavík.
7. Tollar og önnur gjöld á innflutningi.
Customs duties etc.
Hér skal gerð grein fyrir þeim gjöldum, sein voru á innfluttum
vörum á árinu 1974.
Tollar á svo nefndum verndarvörum, innfluttum frá EFTA-Iöndum,
lækkuðu frá 1. mars 1970 um 30% að meðaltali. Aftur varð lækkun á
þessum tollum 1. apríl 1973, og um leið komu sömu tollar til framkvæinda
gagnvart verndarvörum innfluttum frá löndum Efnahagsbandalags
Evrópu samkvæmt samningi íslands við það frá 22. júli 1972, sem sam-
þykktur var af Alþingi i febrúar 1973. Frá ársbyrjun 1974 lækkuðu
tollar á verndarvörum enn um 10% af upphaflegum tolli, og slík 10%
lækkun á þessum tollum skal eiga sér stað árlega, þar til þeir eru fallnir
niður hinn 1. janúar 1980.
4