Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1975, Síða 290
Hagstofa Islands
gefur út eftirtalin rit:
1. Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar
eru birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Versl-
unarskýrslur, Búnaðarskýrslur, Sveitarsjóðareikningar, Mannfjöldaskýrslur,
Alþingiskosningar, Dómsmálaskýrslur o. fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna,
sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951 hafa komið
út 61 rit. — Áskrifendum Hagskýrslna er tilkynnt útkoma rita jafnóðum og þau
rit koma út, og þeir eru beðnir að senda greiðslu. Að henni móttekinni eru
rit send þeim í pósti.
2. Hagtiðindi, mánaðarrit. Þar eru birtar mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar
skýrslur um utanríkisverslun, fískafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu
og aðrar vísitölur, og árlegar skýrslur um ýmisleg efni, sem ekki þykir taka
að hirta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. — Árlegt áskriftargjald Hagtíðinda
er 400 kr.
3. Statistical Bulletin er sameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlabanka íslands. Það
er á ensku — enda ætlað útlendingum — og kemur út ársfjórðungslega (frá og
með 1963, þar áður var það mánaðarrit). Statistical Bulletin svipar til Hag-
tiðinda að því er varðar birtingarefni, en er yfirgripsminna. Erlendir áskrif-
endur þessa rits fá það ókeypis, en innanlands er árlegt áskriftargjald þess
250 kr.
4. íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur
næstliðinn 1. desemher samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún
hefur að geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1974 var
1310 bls., og verð 8000 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað,
enda við það miðað, að hún seljist upp.
5. Skrár yfir fyrirtæki á íslandi 1969. Hér er birtur frumstofn hinnar nýju
hcildarskrár Hagstofunnar yfir fyrirtæki á íslandi (þar eru með bændur,
útgerðarmenn, iðnmeistarar o. s. frv.). í þessu riti eru þríþættar uppsláttar-
skrár, þar á meðal skrár, þar sem atvinnufyrirtækjum, stofnunum og félags-
samtökum er skipt í 165 starfsgreinar. — Rit þetta kostar 1600 kr. í handi.
Viðaukar við rit þetta hafa verið gefnir út, síðast I apríl 1973.
6. Skrár yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimili og fleiri upplýsingum
um dána, koma út árlega í fjölrituðu hefti. Fyrsta heftið, með dánum 1965
—67, kostar 130 kr., skrár yfir dána árin 1968 til 1972 kosta 100 kr. hvert
hefti og skrá yfir dána 1973 200 kr.
Afgreiðsla ofan greindra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10
(3. hæð), Reykjavík. Sími 26699. — Rit eru send gegn póstkröfu, ef þess er óskað,
þó ekki rit í liðum 4 og 5.