Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1977, Blaðsíða 9
Verslunarskýrslur 1976
7
Innflutningstölur verslunarskýrslna eru afleiðing umreiknings í ís-
lenska mynt á sölugengi, en útflutningstölur eru aftur á móti miðaðar
við kaupgengi.
Innflutningsskýrslurnar eru gerðar eftir tollskýrslum innflytjenda,
sem Hagstofan fær samrit af. Skýrslutöku skipa og flugvéla, sem fluttar
eru til landsins, er þó öðru vísi háttað. Skýrslu um slíkan innflutning fær
Hagstofan yfirleitt ekki frá tollyfirvöldunum, heldur beint frá hlutað-
eigandi innflytjendum. Upplýsa þeir, hver sé byggingarkostnaður eða
kaupverð hvers skips eða flugvélar. Þar við leggst áætlaður heimflutn-
ingskostnaður og kemur þá fram verðmætið, sem tekið er í verslunar-
skýrslur. Skipainnflutningurinn hefur frá og með árinu 1949 verið tek-
inn á skýrslu hálfsárslega, þ. e. með innflutningi júnímánaðar og des-
embermánaðar, nema þegar sérstök ástæða hefur verið til annars, í sam-
bandi við gengisbreytingar. Sömu reglu hefur verið fylgt um flugvélainn-
flutninginn. — 1 kaflanum um innfluttar vörur síðar í innganginum er
gerð nánari grein fyrir innflutningi flugvéla og skipa 1976. —- Útflutt
skip og flugvélar hafa að jafnaði verið tekin á skýrslu hálfsárslega. í kafl-
anum um útfluttar vörur síðar í innganginum er gerð grein fyrir sölu
skipa og flugvéla lir landi 1976.
Útflutningurinn er í verslunarskýrslum talinn á söluverði afurða
með umbúðum, fluttra um borð í skip (fob) á þeirri höfn, er þær fyrst
fara frá. Er hér yfirleitt miðað við verðið samkvæmt sölureikningi útflytj-
anda. Sé um að ræða greiðslu umboðslauna til erlends aðila og það heimil-
að í útflutningsleyfinu, er upphæð þeirra dregin frá, til þess að hreint fob-
verð komi fram. — Fob-verð vöru, sem seld er úr landi með cif-skilmálum,
er fundið með því að draga frá cif-verðmætinu flutningskostnað og trygg-
ingu, ásamt umboðslaunum, ef nokkur eru. — Nettóverðið til útflytjand-
ans er fob-verðið samkvæmt verslunarskýrslum að frádregnum gjöldum á
útflutningi. Þessi gjöld, sem lögð hafa verið á útfluttar sjávarafurðir,
voru felld niður með lögum nr. 5 13. febrúar 1976, en i stað þeirra kom
eitt gjald, 6% af fob-verði, sem greiðist af sjávarafurðum framleiddum
eftir 15. febrúar 1976. Niðurlagðar og niðursoðnar sjávarafurðir eru þó
undanþegnar þessu gjaldi, en af þeim er greitt vörumagnsgjald, kr. 5.940
ó tonn (að ytri umbúðum fráreiknuðum). Af afurðum, sem framleiddar
voru fyrir 15. febrúar 1976, en fluttar út eftir þann tíma, eru tekin gjöld
samkv. áður gildandi lögum og reglugerðum, sjá bls. 7*—8* í verslunar-
skýrslum 1975. Tekjur af 6% útflutningsgjaldinu renna til Aflatrygginga-
sjóðs, Fiskveiðasjóðs og Fiskimálasjóðs, til greiðslu á vátryggingarkostn-
aði fiskiskipa, til sjávarrannsókna og Framleiðslueftirlits sjávarafurða,
til Landssambands ísl. útvegsmanna og til samtaka sjómanna (sbr. 4. gr.
laga nr. 5/1976). — Engin gjöld eru á útfluttum landbúnaðarafurðum og
iðnaðarvörum.