Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1981, Blaðsíða 38
36*
Verslunarskýrslur 1980
arráðuneytið, sjávarútvegsráðilneytið og iðnaðarráðuneytið, og auk þess var
flokkun þessi borin undir þær stofnanir hinna þriggja aðalatvinnuvega, sem hér
eiga hlut að máli. — Frá og með árinu 1977 er lagmeti (nr. 18 í töflu III) flokkað
með iðnaðarvörum, en ekki sjávarvörum. Hafa tölur 6. yfirlits um útfluttar
afurðir af fiskveiðum og af iðnaði verið færðar til samræmis við þessa breytingu
árin 1971—76, en eldri tölur yfirlitsins eru látnar standa óbreyttar.
í 7. yfirliti er sýnt, hvernig magn og verðmæti útflutnings 1980 skiptist á
mánuði.
Vörusala íslensks markaðar h.f. íslenskur markaður h.f. hóf í ágúst 1970
verslun með íslenskan varning í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Stærstu hlut-
hafar í þessu fyrirtæki eru Samband ísl. samvinnufélaga (28,6%) og Álafoss h.f.
(24,3%). Glit h.f., Osta- og smjörsalan og Sláturfélag Suðurlands eiga hvert um
sig 10% hlutafjárins, en aðrirhluthafar, um 20 talsins, eru aðallega framleiðendur
iðnaðarvöru. Aðalviðskiptamenn Islensks markaðar eru flugfarþegar, sem eru á
förum úr landi, en auk þess er nokkuð um, að kaupendur panti vörur og fái þær
sendar í pósti. Hvorki vörusala á staðnum né póstsending til útlanda er tekin í
útflutningsskýrslur. Að meðaltali hefur um 90% sölunnar verið í erlendum
gjaldeyri, og hefur sú sala numið sem hér segir (í þús. kr.). 1971: 69 274, 1972:
72 194, 1973: 82 725, 1974: 88 018, 1975: 158 784, 1976: 226 820, 1977:
314 535, 1978: 608 138, 1979: 831 982 og 1980: 894 739.
Sundurgreining söluandvirðis eftir vörutegundum 1978—80 fer hér á eftir, í
þús kr. Númer samkvæmt flokkunarskrá útflutnings (sjá töflu V) er tilgreint í
sviga:
1978 1979 1980
Grásleppuhrogn niöurlögð (18.31) 8 329 12 057 14 582
Annað lagmeti úr sjávarafurðum 4 672 6 764 8 180
Reyktur fiskur ót. a. (49.29) 1 088 1 575 1 905
Kindakjöt fryst (51.10) 4 319 6 251 7 561
Ostur (57.10) 5 390 7 802 9 436
Aðrar landbúnaðarafurðir 907 1 314 1 589
Reyktur lax (79.41) 5 253 7 603 9 195
Vörur úr loðskinnum (80.10) 19 168 13 574 12 910
Gærur fullsútaðar (81.10) 10 439 13 386 10 283
Ullarteppi (83.10) 31 035 61 596 62 738
Vettlingar prjónaðir (84.10) 82 998 108 128 116 098
Peysur prjónaðar (84.40) 143 603 198 773 206 707
Ytri fatnaður, prjónaður og ofinn (84.50 og 88.10) . 188 087 249 180 262 584
Skrautmunir og húsbúnaður úr postulíni (89.58) .... 20 975 32 625 31 621
Silfur- og gullsmíðavörur (89.80.10) 30 150 33 943 30 139
íslenskar iðnaðarvörur ót. a 16 720 24 891 27 726
Ýmsar vörur 35 005 52 520 81 485
Alls 608 138 831 982 894 739
5. Viðskipti við einstök lönd.
External trade by countríes.
í töflum II og IV er innflutningurinn sundurgreindur á lönd, í fyrr nefndu
töflunni eftir rúmlega 230 vöruflokkum núgildandi vöruskrár hagstofu Sam-
einuðu þjóðanna, en í síðar nefndu töflunni eftir hverju einstöku tollskrárnúmeri.