Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1983, Blaðsíða 10
8*
Verslunarskýrslur 1982
úreldingarstyrkja fiskiskipa, til sjávarrannsókna og Framleiðslueftirlits sjávaraf-
urða, til Landssambandsísl. útvegsmanna og til samtaka sjómanna (sbr. 4. gr. laga
nr. 5/1976). — Engin gjöld eru á útfluttum landbúnaðarafurðum og iðnaðar-
vörum.
Við ákvörðun á útflutningsverðmæti ísfisks í verslunarskýrslum gilda sérstakar
reglur, sem gerð er grein fyrir í kaflanum um útfluttar vörur síðar í inngangi
þessum.
Allmikið er um það, að útflutningsverðmœti sé áœtlað í skýrslunum, þ. e. að
reiknað sé með því verðmæti, sem tilgreint er í útflutningsleyfi útflutningsdeildar
viðskiptaráðuneytisins. Fer svo, þegar látið er uppi af hálfu útflytjanda, að varan
sé flutt út óseld. Eru ekki tök á að lagfæra þetta síðar í útflutningsskýrslum, og er
hér um að ræða ónákvæmni, sem getur munað miklu.
Það segir sig sjálft, að í verslunarskýrslur koma aðeins vörur, sem afgreiddar
eru af tollyfirvöldum á venjulegan hátt. Kaup íslenskra skipa og flugvéla erlendis
á vörum til eigin nota koma að sjálfsögðu ekki í verslunarskýrslum, og ef slíkar
vörur eru fluttar inn í landið, koma þær ekki á skýrslu, nema að svo miklu leyti sem
þær kunna að vera teknar til tollmeðferðar.
Þyngd útfluttrar vöru hefur ávallt verið tekin nettó í verslunarskýrslur. Inn-
fluttar vörur voru taldar nettó fram að 1951, en frá og með því ári voru þær taldar
brúttó, þ. e. með ytri umbúðum. Ástæða þessarar breytingar var aðallega sú, að
illa gekk að fá nettóþyngdina upp gefna í tollskýrslum, þar sem hún skipti ekki
máli við tollafgreiðslu. Hins vegar var brúttóþyngd yfirleitt tilgreind í tollskýrslu,
vegna þess að vörumagnstollur var miðaður við hana. Með nýjum tollskrárlögum,
sem komu til framkvæmda 1. maí 1963, var vörumagnstollurfelldur niður áöllum
vörum, nema ásalti og eldsneyti, þarsem þýðingarlaus vörumagnstollurvar látinn
haldast óbreyttur, og á kartöflur og á lýstar og framkallaðar kvikmyndafilmur var
lagður vörumagnstollur í stað verðtolls. Frá 1. janúar 1977 var vörumagnstollur
einnig felldur niður á þessum vörum, að undanskilinni gasolíu og brennsluolíu. —
Vegna ýmissa annmarka á að miða innflutning við brúttóþyngd, var ákveðið að
reikna þyngd hans nettó frá og með 1. maí 1963, er nýja tollskráin kom til
framkvæmda. í því sambandi er rétt að geta þess að í verslunarskýrslum flestra
landa er innflutningur miðaður við nettóþyngd.
Farmgjöld. Öll millilandafarmgjöld íslenskra skipaútgerða eru verðskráð í
erlendum gjaldeyri og fylgdu því sjálfkrafa hækkandi gengi erlends gjaldeyris á
árinu (sjá það, sem segir hér á eftir um gjaldeyrisgengi). Hinn 26. febrúar
hækkuðu öll stykkjavörufarmgjöld á vörum fluttum frá Evrópu um 8% (í erl.
mynt, vegið meðaltal), og um 7% hinn 24. nóvember. Jafnframt voru gerðar
leiðréttingar vegna röskunar hlutfalla milli einstakra gjaldmiðla. Þá varð og 9.
september 3% hækkun á töxtum í norskum krónum og 11. október 15,4%
hækkun á töxtum í sænskum krónum vegna gengisfellingar þessara gjaldmiðla.
Hliðstæð farmgjaldahækkun á vörum fluttum frá Bandaríkjunum varð aðeins 4.
apríl, 8% (hækkun hliðstæð áður nefndri 7% hækkun 26. nóvember tók fyrst gildý
1. janúar 1983 að því er varðar vörur fluttar frá Bandaríkjunum). — Að því er
snertir breytingu farmgjalda fynv stórflutning til landsins (timbur, járn, áburður,
laust korn o.fl.), sem sérstaklega er samið um hverju sinni, réðst hún sem fyrr af
samkeppnisaðstöðu. Taxtar fyrir útflutning til Evrópulanda, sem eru ekki sér-
umsamdir, hækkuðu eins og taxtar fyrir flutning til landsins og á sömu tímum.
Taxtar fyrir vörur fluttar til Bandaríkjanna, aðrar en frystan fisk, fylgdu al-