Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1983, Blaðsíða 312
Hagstofa íslands
gefur út cftirtalin rit:
1. Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar eru
birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verslunarskýrsl-
ur, Búnaðarskýrslur, Sveitarsjóðareikningar, Mannfjöldaskýrslur, Alþingiskosningar,
Dómsmálaskýrsluro. fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna, sem hófst 1914, voru 132 rit, í
11. útgáfuflokki, sem hófst 1951, hafa komið út 78 rit.
2. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru-Kirtar mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar skýrslur um
utanríkisverslun, fiskafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu og aðrar vísitölur, og
árlegar skýrslur um ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af
Hagskýrslum. — Árlegt áskriftargjald Hagtíðinda er 110 kr.
3. Statistical Bulletin var sameiginlegt rit Hagstofunnar ogSeðlabanka íslands, á ensku og
ætlað útlendingum, sem fengu það ókeypis. Það var 4ra blaðsíðna mánaðarrit frá júní
1931 til desember 1962, en síðan 16 blaðsíðna ársfjórðungsrit. Efni þess var sumpart
tekið úr Hagtíðindum og sumpart fengið frá Seðlabankanum. Þá er Seðlabankinn í
febrúar 1980 hóf útgáfu nýs ársfjórðungsrits á ensku, Economic Statistics, var ákveðið
að leggja Statistical Bulletin niður, og kom síðasta blað þess út í maí 1980.
4. íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur
næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún hefur að
geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1982 er 1345 bls., og verð
1150 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað, enda við það miðað, að
hún seljist upp.
5. Fyrirtækjaskrá. í ritinu Skrár yfir fyrirtceki á íslundi 1969 var birtur frumstofn skrár
Hagstofunnar um fyrirtæki (þar eru með bændur, útgerðarmenn, iðnmeistararo. s. frv.)
að meðtöldum stofnunura og félagssamtökum. Viðaukar við þetta rit voru gefnir út
1972 og 1973. Síðan hafa — íframhaldi affyrri útgáfum — komiðút heildarskráraðilaí
fyrirtækjaskrá, sem hafa sérstakt auðkennisnúmer í henni, það er annað númer en
nafnnúmer samkvæmt þjóðskrá. Einstaklingar, sem reka starfsemi á eigin nafni, eru
þannig ekki í þessum útgáfum. Atvinnurekendur, stofnanir og félagssamtök í síðustu
heildarskrá, sem er miðuð við miðjan október 1982, eru 16 300 að tölu. Verð þess
heftis er 150 kr.
6. Skrár yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimili og fleiri upplýsingum um dána,
koma út árlega í fjölrituðu hefti. Skrár yfir dána eftirtalin ár kosta sem hér segir:
1968—80 13 hefti hvert á 30 kr., 1981 40 kr. Skrár yfir dána 1965—67 (eitt hefti) eru
upp gengnar.
7. Bifreiðaskýrsla kemur út árlega í fjölrituðu hefti. í því eru um 20 töflur með fjölþænum
upplýsingum um bifreiðaeign landsmanna. Hagstofan tók við þessu verkefni af Vega-
gerð ríkisins frá og með Bifreiðaskýrslu 1. janúar 1972. — Bifreiðaskýrsla 1. jan.
1972—82 kostar 40 kr. hver um sig.
8. f ritinu Skrá um stofnanaheiti, sem kom út, fjölritað, á árinu 1972, er dönsk og ensk
þýðing á heiti stofnana, embætta, félagssamtaka og starfsgreina. Uppsláttaratriði í riti
þessu eru um 1500 að tölu. Venjulegar orðabækur eru haldlitlar í þessu efni, og er þessu
riti ætlað að bæta úr þeirri vöntun. Verðið er 30 kr.
Afgreiðsla ofangreindra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10 (3. hæð),
101 Reykjavík. Sími 26699. Póstgíróreikningur Hagstofunnar er nr. 26646. Rit eru send
gegn póstkröfu, sé þess óskað, þó ekki rit það, er um ræðir í lið 4.