Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1983, Blaðsíða 19
Verslunarskýrslur 1982
17*
þungavöru hleypir þyngdinni miklu meira fram heldur en stórmikil aukning á
dýrum vörum, svo sem vefnaðarvöru. Skýringin á þessum mun er því sú, að
þungavörunnar gætir miklu minna á móts við hinar dýrari í innflutningnum nú
heldur en áður. í útflutningnum er aftur á móti minni munur á vörumagnsvísitölu
og þyngdarvísitölu.
1. yfirlit sýnir innflutning og útflutning í hverjum mánuði 1980—1982 sam-
kvæmt verslunarskýrslum, en síðar í innganginum er yfirlit um mánaðarlega
skiptingu innflutnings (3. kafli) og útflutnings (4. kafli).
3. Innfluttar vörur.
lmports.
Tafla IV (bls. 28—239)sýnirinnflutning 1982 íhverju númeri tollskrárinnarog
skiptingu hans á lönd. Sýnd er þyngd í tonnum (auk þess stykkja- eða rúmmetra-
tala nokkurra vörutegunda), fob-verð og cif-verð. Taflan er í tollskrárnúmeraröð
og vísast í því sambandi til skýringa í 1. kafla þessa inngangs og við upphaf töflu IV
á bls. 28.
í töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti innflutningsins fob og cif eftir
vörudeildum núgildandi vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóðanna. í töflu II á bls.
4—19 er sýnt verðmæti innflutningsins eftir vöruflokkum sömu skrár með skipt-
ingu álönd.
í sambandi við fob-verðstölur innflutnings skal þetta tekið fram: Mismunur
cif-verðs og fob-verðs er flutningskostnaður vörunnar frá útflutningsstaðnum
ásamt vátryggingaiðgjaldi. Flutningskostnaður sá, sem hér um ræðir, er ekki
einvörðungu farmgjöld fyrir flutning á vörum frá erlendri útflutningshöfn til
íslands, heldur er í sumum tilfellum líka um að ræða farmgjöld með járnbrautum
eða skipum frá sölustað til þeirrar útflutningshafnar, þar sem vöru er síðast
útskipað á leið til íslands. Kemur þá líka til umhleðslukostnaður o. fl. Fer þetta
eftir því, við hvaða stað eða höfn afhending vörunnar er miðuð. Eitthvað kveður
að því, að vörur séu seldar cif íslenska innflutningshöfn. í slíkum tilfellum er
tilsvarandi fob-verð áætlað af tollyfirvöldum.
Frá og með Verslunarskýrslum 1982 þarf innflutningur frá landi að nema
minnst 15 þús. kr., tilþess að hann sétilgreindursérstaklegaí töflu IV — nemaum
sé að ræða eitt land, sem svo er ástatt um.
2. yfirlit sýnir verðmæti innflutningsvaranna bæði cifogfob eftir vörudeildum.
Ef skip og flugvélar er undanskilið nemur fob-verðmæti innflutnings 1982 alls
9 989 922 þús. kr., en cif-verðið 11 335 711 þús. kr. Fob-verðmæti innflutnings
1982 að undanskildumskipum ogflugvélum varþannig 88,1% af cif-verðmætinu.
— Ef litið er á einstaka flokka, sést, að hlutfallið milli fob-verðs og cif-verðs er
mjög mismunandi, og enn meiri verða frávikin til beggja handa, ef litið er á
einstakar vörutegundir.
Til þess að fá vitneskju um, hvernig mismunur cif- og fob-verðs skiptist á
vátryggingu og flutningskostnað, er tryggingaiðgjald áætlað 1% af cif-verði
flestra vara, nema á sekkjavöru í vörudeildum 04, 06, 08, og 56, þar er trygg-
ingaiðgjald reiknað 0,83% af cif-verði. Svo er einnig á kolum (32). Trygginga-
iðgjald á timbri í vörudeildum 24 og 63 er reiknað 0,70% af cif-verði, á salti (í 27.
vörudeild) 0,55%, og á olíum og bensíni (í 33. vörudeild) 0,55%. Á bifreiðum í
2