Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1987, Blaðsíða 27
Verslunarskýrslur 1986
25
4. Útfluttar vörur.
Exports.
í töflu V (bls. 238—257) er sýndur útflutningur á hverri einstakri vörutegund
eftir löndum. Röð vörutegunda í þessari töflu fylgdi áður vöruskrá hagstofu
Sameinuðu þjóðanna, en frá og með 1970 er röð vörutegunda í töflunni
samkvæmt sérstakri vöruskrá Hagstofunnar fyrir útflutning. Um þetta vísast til
nánari skýringa í 1. kafla þessa inngangs og við upphaf töflu V á bls. 238.
í töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti útflutningsins eftir
vörudeildum núgildandi vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóðanna. í töflu III á
bls. 20—27 eru verðmætistöflur útflutnings svarandi til 2ja fyrstu tölustafa
hinnar 6 stafa tákntölu hvers vöruliðs í vöruskrá Hagstofunnar fyrir útflutning,
með skiptingu á lönd.
í töflu VI á bls. 258 er verðmæti útflutnings skipt eftir vinnslugreinum hvert
áranna 1982—86. Er hér um að ræða sérstaka flokkun útflutnings, sem gerð
hefur verið ársfjórðungsiega frá og með ársbyrjun 1970. Hefur þessi flokkun
verið birt í Hagtíðindum fyrir hvern ársfjórðung, en í verslunarskýrslum er hún
aðeins birt fyrir heil ár.
Eins og greint var frá í 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn í verslunar-
skýrslum talinn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um borð í skip (fob) í
þeirri höfn, er þær fara fyrst frá samkvæmt sölureikningi útflytjanda. Þessi regla
getur ekki átt við ísfisk, sem íslensk skip seljo í erlendum höfnum, og gilda því um
verðákvörðun hans í verslunarskýrslum sérstakar reglur. Til ársloka 1967 var,
auk löndunar- og sölukostnaðar o. fl., dregin frá brúttósöluandvirði ísfisks
ákveðin fjárhæð á tonn fyrir flutningskostnaði, en þessu var hætt frá og með
ársbyrjun 1968. Á árinu 1986 fylgdi Fiskifélag íslands þessum reglum við
útreikning á fob-verði ísfisks (og loðnu tii bræðslu) út frá brúttósöluandvirði
hans, og var hann tekinn í útflutningsskýrslur samkvæmt því (hundraðstölur til-
greindar hér á eftir miðast allar við brúttósöluandvirði):
Danmörk: Á loðnu til bræðslu 0,5% heildarkostnaður. Fœreyjar: Á ísfiski
0,5% heildarkostnaður, á loðnu til bræðslu 0,5% heildarkostnaður. Noregur: Á
loðnu til bræðslu 0,5% heildarkostnaður. Bretland: Á ísfiski: Löndunar-
kostnaður og hafnargjöld 12%, tollur 5%, sölukostnaður 3%. Á loðnu til
bræðslu 0,5% heildarkostnaður. Frakkland og V-Þýskaland: Á ísfiski: Löndun-
arkostnaður og hafnargjöld 12%, tollur 3%, sölukostnaður 2%.
Útflutningsverðmœti 9 skipa, sem seld voru úr landi 1986 (í nr. 93.20.00, 93.30
og 93.40 í töflu V), nam alls 138 321 þús. kr., og fer hér á eftir skrá yfir þau:
Rúmlestir Útflutn.verðm.
brúttó þús. kr.
Talin með útflutningi marsmánaðar:
Mánafoss til Nýju-Kaledóníu, farskip ..................... 1 998 23 850
Jökulfell til Kólombíu, farskip........................... 1 244 14 514
Talið með útflutningi júnímánaðar:
Stuðlafoss til Bandaríkjanna, farskip .................... 2 308 7 231
Talin með útflutningi septembermánaðar:
Selfoss (áður Selá) til Kýpur, farskip ................... 1 507 20 305
Kyndill til Bretlands, olíuflutningaskip ................... 500 10 962
Skaftá til Lfberíu, farskip .............................. 1 506 21 194
Talin með útflutningi desembermánaðar:
írafoss til Kýpur, farskip ............................... 1 516 20 604
Helgey til Noregs, farskip ................................ 201 10 009
Bjarmi SU-37 til Svíþjóðar, fiskiskip til niðurrifs ......... 81 9 652
Samtals 10 861 138 321