Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1988, Blaðsíða 9
Verslunarskýrslur 1987
1
grein fyrir innflutningi flugvéla og skipa 1987. Útflutt skip og flugvélar hafa aö
jafnaði verið tekin á skýrslu hálfsárslega en ársfjórðungslega frá og með árinu
1985. í kaflanum um útfluttar vörur síðar í innganginum er gerð grein fyrir sölu
skipa og flugvéla úr landi 1987.
Utflutningurinn er í verslunarskýrslum talinn á söluverði afurða með umbúð-
um, fluttra um borð í skip {fob) á þeirri höfn, er þær fyrst fara frá. Er hér yfirleitt
miðað við verðið samkvæmt sölureikningi útflytjanda. Sé um að ræða greiðslu
umboðslauna til erlends aðila og það heimilað í útflutningsleyfinu, er upphæð
þeirra dregin frá, til þess að hreint fob-verð komi fram. Fob-verð voru, sem seld
er úr landi með cif-skilmálum, er fundið með því að draga frá cif-verðmætinu
flutningskostnað og tryggingu, ásamt umboðslaunum, ef nokkur eru. Nettó-
verðið til útflytjandans er fob-verðið samkvæmt verslunarskýrslum að frádregn-
um gjöldum á útflutningi. Með lögum nr. 24/1986, sem tóku gildi 15. maí 1986,
voru felld niður 5,5% almennt útflutningsgjald af sjávarafurðum og 3,25% gjald
af söltuðum grásleppuhrognum. Einu gjöldin, sem þá voru eftir á útflutningi,
voru 1% „fullvinnslugjald" á lagmeti og 3% gjald á söltuðum matarhrognum og
frystum þorskhrognum.
Með bráðabirgðalögum nr. 66 10. júlí 1987 var heimilað að leggja sérstakt
gjald á ísfisk sem fluttur er óunninn á erlendan markað, þó ekki á eigin afla
fiskiskipa. Gjald þetta var ákveðið 14. júlí 1987 90 aurar á hvert kg af þorski, en
25 aurar á kg af öðrum tilgreindum fisktegundum, og hækkaði í 130 og 60 aura
30. september 1987 (sbr. reglugerðir 316 og 448/1987).
Við ákvörðun á útflutningsverðmæti ísfisks í verslunarskýrslum gilda sérstakar
reglur, sem gerð er grein fyrir í kaflanum um útfluttar vörur síðar í inngangi
þessum.
Nokkuð er um það, að útflutningsverðmœti sé áœtlað í skýrslunum, einkum
þegar vara er seld í umboðssölu eða á uppboðsmarkaði. Hér er fyrst og fremst
um sölu á ferskum fiski að ræða. Þótt reynt sé að leiðrétta þetta eftir á getur
þetta valdið ónákvæmni, einkum um tímasetningu útflutningsins.
Það segir sig sjálft, að í verslunarskýrslur koma aðeins vörur, sem afgreiddar
eru af tollyfirvöldum á venjulegan hátt. Kaup íslenskra skipa og flugvéla
erlendis á vörum til eigin nota koma að sjálfsögðu ekki í verslunarskýrslum, og
ef slíkar vörur eru fluttar inn í landið, koma þær ekki á skýrslu, nema að svo
miklu leyti sem þær kunna að vera teknar til tollmeðferðar.
Pyngd útfluttrar vöru hefur ávallt verið tekin nettó í verslunarskýrslur.
Innfluttar vörur voru taldar nettó fram að 1951, en frá og með því ári voru þær
taldar brúttó, þ. e. með ytri umbúðum. Vegna ýmissa annmarka á að miða
innflutning við brúttóþyngd, var ákveðið að reikna þyngd hans nettó frá og með
1. maí 1963, er ný tollskrá kom til framkvæmda.
Farmgjöld. Sem fyrr voru almenn flutningsgjöld í millilandasiglingum skráð í
erlendum gjaldeyri og fylgdu sjálfkrafa breytilegu gengi erlendra gjaldmiðla.
Frá árinu 1983 hafa farmgjöld farið verulega lækkandi vegna mikillar og
harðnandi samkeppni og aukinnar hagræðingar í rekstri skiptafélaganna. Eins
og getið var í Verslunarskýrslum 1986 er gert ráð fyrir að meðaifarmgjöld í
stykkjavöruflutningum hafi lækkað um tæp 25% frá ársmeðaltali 1983 til
meðaítals ársins 1985 mælt í SDR en hækkað um 12% frá meðaltali 1985 til
meðaltals 1986. Á árinu 1987 lækkuðu flutningsgjaldataxtar um 3,5% í mars en
hækkuðu um 4,5% í ágúst. Gera má ráð fyrir að þrátt fyrir þetta hafi greidd
farmgjöld í stykkjavöruflutningum lækkað um 8% frá ársmeðaltali 1986 til
ársmeðaltals 1987 mælt í SDR. Hafa verður í huga að á sama tíma hafa innbyrðis