Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1988, Page 29
Verslunarskýrslur 1987
21
landbúnaðar, en útfluttar iðnaðarvörur komu ekki sérstaklega fram í eldri
flokkuninni, heldur voru þær taldar í „ýmislegu“. Rétt þótti að fá fram hlutdeild
iðnaðar í útflutningi aftur í tímann, og um leið var annar útflutningur fyrir 1970
endurflokkaður til samræmis við þá flokkun, er tók gildi 1970. Þá voru og þessar
tölur látnar ná aftur til ársins 1881. Yfirlitið, þannig breytt, birtist fyrst í
Verslunarskýrslum 1974. Að öðru leyti vísast til skýringa í neðanmálsgrein við 5.
yfirlit. — Fiokkun sú á útflutningi, er hér um ræðir, kemur fram í töflu III á bls.
20—27, og þar sést staður hverrar útflutningsvöru í þessari flokkun. í>ó er
flokkunin í töflu III önnur að því leyti, að afurðir af hvalveiðum mynda þar ekki
sérflokk, heldur eru þær með sjávarafurðum.
Flokkun þessi á útfluttum vörum eftir uppruna, sem eins og áður segir kom til
framkvæmda frá ársbyrjun 1970, var ákveðin í samráði við landbúnaðarráðu-
neytið, sjávarútvegsráðuneytið og iðnaðarráðuneytið, og auk þess var flokkun
þessi borin undir þær stofnanir hinna þriggja aðalatvinnuvega, sem hér eiga hlut
að máli. Frá og með árinu 1977 er lagmeti (nr. 18 í töflu III) flokkað með
iðnaðarvörum, en ekki sjávarvörum. Hafa tölur 5. yfirlits um útfluttar afurðir af
fiskveiðum og af iðnaði verið færðar til samræmis við þessa breytingu árin
1971—76, en eldri tölur yfirlitsins eru látnar standa óbreyttar.
í 6. yfirliti er sýnt, hvernig magn og verðmæti útflutnings 1987 skiptist á
mánuði.
Vörusala íslensks markaðar h.f. íslenskur markaður h.f. hóf í ágúst 1970
verslun með íslenskan varning í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Aðalvið-
skiptamenn Islensks markaðar eru flugfarþegar, sem eru á förum úr landi, en
auk þess er nokkuð um, að kaupendur panti vörur og fái þær sendar í pósti.
Hvorki vörusala á staðnum né póstsending til útlanda er tekin í útflutnings-
skýrslur. Að meðaltali hefur um 90% sölunnar verið í erlendum gjaldeyri, og
hefur sú sala numið sem hér segir (í þús. nkr.). 1971: 693, 1972: 722, 1973: 827,
1974: 880, 1975: 1 588, 1976: 2 268, 1977: 3 145, 1978: 6 081, 1979: 8 320, 1980:
8 947, 1981: 12 187, 1982: 25 968, 1983: 58 803, 1984: 82 067, 1985: 128 152,
1986: 137 203 og 1987: 147 473.
Sundurgreining söluandvirðis eftir vörutegundum 1985—87 fer hér á eftir, í
þús. kr. Númer samkvæmt flokkunarskrá útflutnings (sjá töflu V) eru tilgreint í
sviga:
Grásleppuhrogn nidurlögð (18.31) ...................
Annað lagmcti úr sjávarafurðum .....................
Reyktur fiskur (18.15,49.29) .......................
Kindakjöt fryst (51.10) ............................
Ostur (57.10).......................................
Aðrar landbúnaðarafurðir ...........................
Reykturlax (79.41)..................................
Vörur úr loðskinnum (80.10).........................
Gærurfullsútaðar(81.10) ............................
Ullarteppi (83.10)..................................
Vettlingar, húfur. treflarofl.. prjónað (84.10—84.35) ...
Peysurprjónaðar (84.40).............................
Ytri fatnaður, prjónaðurogofmn (84.43—84.50,88.20) .
Skrautmunir og húsbúnaður úr postulíni (89.58)......
Prentaðar bækur og bæklingar, póstkort (89.78,89.78.30)
Silfur- og gullsmíðavörur (89.80.10) ...............
Ymsarvörur .........................................
1985
1 708
958
223
886
1 105
186
1 077
6 951
841
5 880
12 280
44 446
28 600
4 214
2 993
1 641
14 163
128 152
1986
2 873
1 612
375
1 490
1 859
313
1 812
6 421
644
6 473
11 444
43 346
26 672
5 663
4 247
2 106
19 853
137 203
1987
3 158
1 747
417
1 639
3 362
333
3 391
6 846
713
7 034
12 255
46 105
28 284
6 252
4 682
1 004
20 251
147 473
Alls