Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1988, Síða 324
Hagstofa íslands
gefur út eftirtalin rit:
Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar eru birtar
skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verslunarskýrslur, Sveitarsjóða-
reikningar, Mannfjöldaskýrslur, Alþingiskosningar, Dómsmálaskýrslur, Tölfræðihand-
bók o. fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna, sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki,
sem hófst 1951, hafa komið út 87 rit.
Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru birtar mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar skýrslur um
utanríkisverslun, fiskafla, framfærsluvísitölu og aðrar vísitölur, og árlegar skýrslur um
ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. — Árlegt
áskriftargjald Hagtíðinda er 1 000 kr.
íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur
næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún hefur að
geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1987 er 1 230 bls., og verð
5 500 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað, enda við það miðað, að hún
seljist upp.
Fyrirtækjaskrá. Einu sinni á ári, og oftar ef ástæða þykir til, kemur út skrá yfir þá aðila,
fyrirtæki, stofnanir, félagssamtök o. fl., sem hafa sérstök auðkennisnúmer („kennitölu“
og nafnnúmer) í fyrirtækjaskrá Hagstofunnar. Ný útgáfa þessarar skrár, miðuð við
miðjan júní 1988, kemur út í júh' 1988. f henni eru tæplega 22 500 aðilar, og hún kostar
1 500 kr.
Skrár yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimili og tleiri upplýsingum um dána,
koma út árlega í fjölrituðu hefti. Skrár yfir dána 1965—67 (eitt hefti) eru upp gengnar.
NORRÆN TÖLFRÆÐIHANDBÓK 1987
Hagstofan annast dreifingu á íslandi á ársritinu Norrœn tölfrœðihandbók (Yearbook of
Nordic Statistics — Nordisk statistisk ársbok), sem Norðurlandaráð og Norræna
hagstofan í Kaupmannahöfn gefa út í riti þessu er mjög margvíslegur fróðleikur í
talnaformi um Norðurlönd og þjóðir þær sem þau byggja. Norræn tölfræðihandbók 1987
er um 430 blaðsíður með 290 töflum, auk línurita og korta, og kostar 1 000 kr.
Þá fæst einnig hjá Hagstofunni Norrœn tölfrceðibók um trygginga- og félagsmál 1984
(Social tryghed i de nordiske lande) sem gefin er út af Norrænu hagstofunni á dönsku.
Bókin fjallar í texta og töflum um umfang, útgjöld og fjármögnun almannatrygginga á
Norðurlöndum. Bókin er röskar 200 bls. og kostar 500 kr.
Afgreiðsla ofangreindra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10 (3. hæð),
150 Reykjavík. Sími (91)26699. Póstgíróreikningur Hagstofunnar er nr. 26646-9. Rit eru
send gegn póstkröfu, sé þess óskað.