Hagskýrslur um atvinnuveg - 01.01.1983, Blaðsíða 44
42
tvo þætti hafa verið gerðar á grundvelli upplýsinga um slysatryggóar
vinnuvikur eigenda. Hins vegar er þessu þannig háttaö i samgöngum,
að rekstur einstaklingsfyrirtækja er aó mestu leyti bundinn við rekstur
leigu- og vörubifreióa, og eigendur þessara flutningatækja hafa yfir-
leitt ekki starfsfólk á launum. Skoðast þvi allur sá hagnaður, sem
fram kemur á rekstraryfirlitum einstaklingsfyrirtækja, sem laun eigenda
þessara fyrirtækja.
Hér á eftir veröur hag einstakra samgöngugreina lýst stuttlega.
Sá afkomumælikvarði sem þar verður notaður er vergur hagnaður en þá
er átt við vergan reiknaðan hagnað, þ.e. eftir að eigendum einstaklings-
fyrirtækja hafa verió áætluó laun meó framangreindum hætti.
Vió þær greinar samgangna, sem úrtakið nær til, störfuðu áriö
1978 um 7.813 manns eða 7,7% heildarmannaflans það ár. Virðisauki í
heild nam 47.426 m.kr. árið 1978.
Veróur nú næst vikið að hverri einstakri þeirra atvinnugreina,
sem rekstraryfirlitin ná til. Hlutfallstölur veróa jafnan miðaðar vió
samtölu þeirra atvinnugreina, sem rekstraryfirlitin ná til.
712 Rekstur strætisvagna oq langferðabila, hópakstur
Hér skal telja rekstur langferðabifreiða, hvort sem þeir eru i
fastri áætlun eða ekki. Rekstur langferðabifreiða, sem eru bæði hafðir
i fólks- og vöruflutningum, er talinn hér, nema vöruflutningar séu
yfirgnæfandi. Arið 1978 störfuöu 381 manns i þessari atvinnugrein eða
4,9% af heildarmannafla samgangna þaó ár. Virðisaukinn i þessari grein
nam 2.231 m.kr. eöa 4,7% af heildarvirðisauka samgangna. A árinu 1978
reyndist vergur hagnaóur fyrir skatta1^ sem hlutfall af vergum tekjum
vera 3,8% og hafði hlutfallsleg afkoma þá versnaó um sem næst 9% af
tekjum frá árinu áður.
713 Aðrir fólksflutninqar á landi, þar meó fólksbilastöðvar
og bilaleigur
Rekstur leigubifreiða, rekstur stöðva fyrir leigubifreiðar og
fyrirtæki, sem leigja út bifreióar án bilstjóra, teljast til þessa
atvinnugreinanúmers.
1)
Með hugtakinu vergur hagnaður fyrir skatta er átt viö reiknaðan
(hreinan) hagnað fyrir frádrátt afskrifta (almennra, flýti- og
verðstuðulsfyrninga og beinna skatta.