Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2013, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2013, Blaðsíða 4
4 Fréttir 6.–8. september 2013 Helgarblað Bíður eftir Kristínu n Jón Baldvin sagðist ætla að skoða rétt sinn K ristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, hefur enn ekki óskað eftir fundi með Jóni Baldvin Hannibals­ syni til að ræða við hann þá stöðu sem komin er upp varðandi gestafyrirlestra sem hann átti að halda við skólann. Þetta herma heimildir DV. Kristín sagði á mánudaginn að hún ætlaði sér að ræða við Jón. Orð­ rétt sagði Kristín í samtali við Vísi: „Það var skortur á skýrum verklags­ reglum sem leiddi til þess að málið fór í mjög óheppilegan farveg. Fyrir þetta vil ég biðjast afsökunar og ég mun á næstu dögum leita eftir fundi með Jóni Baldvini á næstu dögum.“ Hugsanlegt er að Jón Baldvin hyggist höfða mál gegn skólanum sökum þess hvernig staðið var að því að ákveða að hann flytti ekki umrædda fyrirlestra um smáríki. Sú ákvörðun hans kann meðal annars að byggja á því hvern­ ig fundurinn með Kristínu gengur. Ástæðan fyrir ákvörðun Háskóla Ís­ lands er hneykslismál sem upp kom í fyrra þar sem Nýtt Líf birti klámfengin bréf sem Jón Baldvin hafði sent barn­ ungri frænku konu sinnar. Stúlkan kærði Jón fyrir kynferðislega áreitni en Jón var ekki ákærður. Ráðning Jóns þótti þess vegna umdeild. ingi@dv.is Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is mánudaginn 9. september, kl. 18 í Gallerí Fold, á Rauðarárstíg G unnlaugur Blöndal Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Verkin verða sýnd í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17, sunnudag 12–17, mánudag 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Listmunauppboð í Gallerí Fold Hótel Saga rambar á barmi gjaldþrots n Skuldar nærri sex milljarða króna n Ársreikningur áritaður með fyrirvara H ótel Saga, sem er í eigu Bændasamtaka Íslands, rambar á barmi gjaldþrots en óvissa er um rekstrar­ hæfi félagsins sem rekur hótelið. Þetta kemur fram í árs­ reikningi móðurfélags Hótel Sögu sem skilað var til ársreikningaskrár ríkisskattstjóra þann 29. ágúst síð­ astliðinn. Félagið heitir Hótel Saga ehf. og á einnig nær allt hlutafé í Hótel Íslandi í Ármúla. Auk hótel­ rekstursins rekur félagið veitinga­ staði á Hótel Sögu, meðal annars Grillið, og eins á Hótel Íslandi. Í fyrra gerði rekstrarfélagið kyrr­ stöðusamning við lánardrottna sína en hefur enn ekki náð að kom­ ast að samkomulagi um fjárhags­ lega endurskipulagningu félagsins þrátt fyrir tilraunir þess efnis. Síð­ ustu mánuðina hefur verið unnið að því að tryggja rekstrargrund­ völl Hótel Sögu. „Að mati stjórnar veltur framtíð félagsins á því að samkomulag náist við lánadrottna. Í ársreikningnum er mat og fram­ setning eigna og skulda miðuð við áframhaldandi rekstrarhæfi.“ Eigið fé neikvætt um þrjá milljarða Í ársreikningnum kemur fram að eigið fé samstæðunnar sé nei­ kvætt um meira en þrjá milljarða króna. Orðrétt segir í skýrslu stjórn­ ar í ársreikningi félagsins: „Sam­ kvæmt rekstrarreikningi námu rekstrartekjur samstæðunnar kr. 1.455.521.760 á árinu. Tap af rekstrinum nam kr. 455.423.200. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar kr. 2.630.996.181 í lok ársins 2012. Eigið fé í lok ársins er neikvætt um kr. 3.186.103.660. Í ársreikningnum eru upplýsingar um mat á helstu eignum samstæðunnar.“ Hótel Saga skuldar rúma 5,8 milljarða króna en á móti þessum skuldum eru eignir upp á 2,6 millj­ arða og leiðir þessi staða af sér um­ rædda neikvæða eiginfjárstöðu upp á 3,2 milljarða króna. Staða fé­ lagsins er því vægast sagt slæm og nema skuldirnar meira en tvöföld­ um eignum. Meirihluta skuldanna er við Arion banka. Rúmlega 1,1 milljarðs króna skuld er við Bænda­ samtökin sjálf, samkvæmt ársreikn­ ingnum. Lánið frá Bændasamtök­ unum var víkjandi og er því tapað þar sem aðrir kröfuhafar félagsins hafa forgang í bú þess. Ársreikningur áritaður með fyrirvara Sökum þessarar slæmu stöðu árit­ ar endurskoðandi félagsins, Einar Hafliði Einarsson hjá Deloitte, árs­ reikninginn með fyrirvara. Í fyrir­ vara Einars Hafliða segir: „Fjár­ hagsstaða félagsins er slæm og er eigið fé í efnahagsreikningi í árs­ lok neikvætt. Rekstur félagsins skilar ekki nægu fjármagni til að félagið geti staðið við gerðar skuld­ bindingar og takist að varðveita all­ ar eignir sínar. Félagið verður því að treysta á fjárhagslega aðstoð frá eigendum og lánadrottnum sínum til þess. Í skýringu nr. 15 kemur fram hjá stjórn félagsins að hún telji að félagið geti ekki staðið við skuld­ bindingar sínar á árinu 2013, nema því takist að semja við lánadrottna sína og afla félaginu nýs eigin fjár.“ Líkt og áður segir hefur ekki ver­ ið gengið frá þessari fjárhagslegu endurskipulagningu. n Óvissa um rekstrarhæfi „Óvissa er um rekstrarhæfi félagsins, fjárhagsstaða félagsins er slæm og er eigið fé í efnahagsreikningi í árslok neikvætt. Rekstur félagsins skilar ekki nægu fjármagni til að félagið geti staðið við gerðar skuldbindingar og takist að varðveita allar eignir sínar. Skilmálar í lánasamningum félagsins eru því brostnir. Félagið verður að treysta á fjárhagslega aðstoð frá eigendum og lánadrottnum sínum til þess að halda áfram rekstri félagsins og telur stjórn félagsins að félagið geti ekki staðið við skuldbindingar sínar á árinu 2013, nema því takist að semja við lánadrottna sína og afla félaginu nýs eigin fjár. Stjórn félagsins gerði kyrrstöðusamninga við stærstu lánadrottna félagsins sem rann út þann 15. apríl 2012 og frá þeim tíma hafa aðilar reynt að ná sátt um fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. Þær tilraunir hafa enn ekki skilað árangri. Á vormánuðum ársins 2013 hafa aðilar verið að vinna að samkomulagi um sameiginlega tilætlan sem ætlað er að tryggja rekstrarhæfi fé- lagsins. Að mati stjórnar veltur framtíð félagsins á því að samkomulag náist við lánadrottna. Í ársreikningnum er mat og framsetning eigna og skulda miðuð við áframhaldandi rekstrarhæfi.“ Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Formaðurinn Sindri Sigurgeirsson er nýr formaður Bændasamtakanna en Hótel Saga ehf. skuldar félaginu rúmlega 1.100 milljónir. Samtökin eiga Hótel Sögu. „Fjárhags- staða félagsins er slæm Bíður Rektor hefur ekki enn haft samband. Hagnaður vegna leiðréttinga Rúmlega 226 milljóna króna hagn­ aður var af rekstri Emmess í fyrra. Fyrirtækið framleiðir ís og rekur ísbúðir. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir árið 2012 sem nýlega var skilað til ársreikningaskrár ríkisskattstjóra. Hagnaðurinn var samt ekki rekstrarhagnaður heldur var um að leiðréttingu á skuldum up á 274 milljónir króna. Félagið er í eigu sjóðs sem er rekinn af verðbréfa­ fyrirtækinu Arev. Þrátt fyrir þennan hagnað í fyrra er eiginfjárstaða fyrirtækis­ ins hins vegar neikvæð sem nem­ ur rúmlega 416 milljónum króna. Mikill viðsnúningur var í rekstri félagsins á milli áranna 2011 og 2012 þar sem nærri 245 milljóna króna tap var á rekstrinum árið 2011. Félagið á eignir upp á rúm­ lega 400 milljónir króna en skuld­ ar nærri 820 milljónir króna. Árið 2011 skuldbreytti félagið lánum sínum úr erlendri mynt og yfir í íslenskar krónur. Afplánar á Kvíabryggju Halldór Viðar Sanne afplánar nú dóm sem hann hlaut í Danmörku fyrr á þessu ári á Kvíabryggju. Greint er frá þessu á fréttavef Ríkis útvarpsins en þar kemur fram að Halldór hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm í mars á þessu ári í Danmörku og var gerður um leið brottrækur frá Danmörku. Halldór Viðar var handtekinn í miðborg Kaupmannahafnar í lok október í fyrra. Hann sat í gæslu­ varðhaldi þar til dómur féll í máli hans í byrjun mars. Hann var talinn hafa svikið 600–800 iPhone­ síma út úr fólki og hafa svikið um 110 milljónir af fólki. Hérlend­ is liggur slóð svika eftir Halldór Viðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.