Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2013, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2013, Blaðsíða 26
26 Fólk 6.–8. september 2013 Helgarblað Þunglyndið var gjöf Ó mar er sonur þeirra, Jónínu R. Þorfinnsdóttur og Ragnars Edvardssonar. Hann er fædd- ur 16. september, 1940, í Reykjavík. Hann varð augna- yndi foreldra sinna en hárið vakti athygli. „Ég var náttúrlega með algjörlega óeðlilega rautt hár,“ segir Ómar. „Það var til þess tekið hvers konar fyrir- brigði þetta væri á fæðingardeildinni. Það varð bara sjokk vegna þess að hvorugt foreldra minna var rauðhært og ekki ömmur mínar og afar. Þar sem ég fæddist svona rauð- hærður þá sögðu foreldrar mín- ir að þau ætluðu ekki að eiga dreng sem yrði uppnefndur Óli rauði. Þess vegna völdu þau nafn sem var það sérkennilegt að það þurfti ekkert að segja Ómar rauði.“ Hæglátur bókaormur Það kemur mörgum á óvart að Ómar var afskaplega hæglátur og rólegur sem barn. „Það þótti mjög afbrigðilegt og asnalegt að mamma mín gæti farið með mig í heimsókn til vinkvenna sinna, sett mig á stól og sagt mér að sitja þangað til hún færi. Þá var ég með einhverja bók eða eitthvað og ég minnist þess óljóst að ég þurfti ekki einu sinni bók. Ég var settur þarna eins og púði og ég bara sat þar og sagði ekki neitt. Ég var allt öðruvísi krakki en fólk heldur. Ég var mjög rólegur og af- skaplega mikið til hlés. Ég lá í bók- um og var ekkert mikið úti. Það var hins vegar mikið fjör þegar ég fór út að leika mér. Þá sagði maður sögur; ég settist á steinveggi við Stórholtið þar sem ég bjó og fór að segja sögur. Ég spann alls konar vitleysu.“ Var strítt Hann var kallaður prófessorinn og segir að sér hafi verið strítt þar sem hann var svo mikið inni að lesa. „Ég gerði mér grein fyrir að ég gat svolítið sjálfum mér um kennt að vera strítt. Að vísu þótti mér leiðinlegt að vera kallaður prófess- orinn en ég gerði mér grein fyrir því að ég gæti sloppið við það ef ég væri meira úti að leika mér með krökk- unum. Ég man ekki eftir því að hafa verið óhamingjusamur út af þessu og mér sárnaði aldrei. Ég sló þessu bara upp í grín. Ómar Ragnarsson hefur glatt landann ára- tugum saman og fékk Íslendinga smáa sem stóra til að hlæja með sér í laginu Hláturinn lengir lífið. En gleðin var depurð blandin og umlukin skuggum. Sem barn og unglingur glímdi Ómar við þunglyndi eftir að hafa horft á ástvini sína hverfa yfir móðuna miklu. Svava Jónsdóttir ræddi við Ómar um þunglyndið og uppvöxtinn og veginn sem hann fet- aði í átt að hamingjunni og hlátrinum. „Mér finnst ég hafa fengið meiri lífsreynslu og skilning,“ segir Ómar um gjöf þunglyndisins sem eltist af honum. „Ég vil slá á þá ímynd að ég hafi alltaf verið skæl- brosandi frá því ég vaknaði á morgnana þangað til ég fór að sofa á kvöldin. Það er enginn þannig.“ „Ég var allt öðruvísi krakki en fólk heldur Lífið gengur upp og niður „Mér finnst svo dásamlegt viðfangsefni að fást við lífið sama þó það gangi illa; það gengur náttúrlega upp og niður eins og sænskurinn segir: „Saad ńt er livet, det gaar op og det gaar ned“.“ mynd Sigtryggur ari „Vinur minn drukknaði í sundi þegar við vorum sjö ára og ég og ein stelpa úr bekknum vorum send sem fulltrúar bekkjarins í jarðarförina. Svava Jónsdóttir ritstjorn@dv.is Viðtal

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.