Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2013, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2013, Qupperneq 19
Menning 19Mánudagur 14. október 2013 Erró í Hafnar- húsinu Sýning á nýjum verkum Errós var opnuð í Hafnarhúsinu á laugar­ daginn. Verkin á sýningunni, Heimurinn í dag, eru gerð á ellefu ára tímabili og sýna nýjan kafla í listsköpun Errós þar sem hann skapar sína eigin myndrænu ver­ öld með nýjum efnistökum og myndefni. Hann notar fjölbreytt efni, aðferðir og tækni við list­ sköpun sína en verkin eru sam­ klippimyndir, vatnslitamyndir, smeltiverk, málverk og yfirmálað stafrænt prent á striga. Erró heldur áfram að gera til­ raunir með efni og aðferðir. Á síðastliðnum árum hefur hann í auknum mæli unnið með stafræn prent af ólíkum stærðum þar sem hann kannar nýjar leiðir við að endurnýja málverkið. Samhliða þessu heldur Erró áfram að þróa eða endurskoða myndbyggingu verka sinna. Ljáðu okkur eyra Tónleikaröðin Ljáðu okkur eyra verður haldin fimmta veturinn í röð en á henni er boðið upp á hádegistónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík. Það var píanóleikar­ inn og hljómsveitarstjórinn Gerrit Schuil sem stofnaði þessa tón­ leikaröð haustið 2009 og hefur hann alla tíð síðan verið listrænn stjórnandi tónleikanna. Á tónleikum haustsins koma fram margir fremstu tónlistar­ menn Íslendinga og hvern mið­ vikudag til 4. desember verður sungið og spilað um hádegisbil í Fríkirkjunni. Í þetta sinn eru gestirnir þau Hulda Björk Garðarsdóttir, Kolbeinn Ketilsson, Elsa Waage, Sigríður Ósk Krist­ jánsdóttir, Ágúst Ólafsson, Hlín Pétursdóttir, Lilja Guðmundsdótt­ ir og Eyjólfur Eyjólfsson. Fyrstu tónleikar vetrarins hefj­ ast miðvikudaginn 16. október, kl. 12.15. Málverka- sýning Söru Sara Sigurðardóttir er tvítug stúlka sem stundar nám við Myndlista­ skólann í Reykjavík. Ung að aldri vakti hún athygli fyrir myndlist­ arhæfileika sína og núna hefur hún opnað málverkasýningu á annarri hæð Iðuhússins með verk­ um eftir sig. Sýningin mun vera aðgengileg gestum og gangandi út október. Sara ferðaðist um landið og sótti sér innblástur í náttúruna. Helsta viðgangsefni verka hennar sem verða á sýningu eru tengsl mannsins og náttúrunnar. Sara heldur úti vefsíðunni sarasig. weebly.com þar sem hægt er að skoða verk hennar. Vel kryddaður hrærigrautur n Beyond: Two Souls er virkilega flottur leikur með góðri graffík B eyond: Two Souls er leik­ ur sem margir hafa beðið með nokkurri eftirvæntingu, enda kemur hann frá Qu­ antic Dream, sama fyrirtæki og færði tölvuleikjaáhugamönnum hinn mjög svo athyglisverða Heavy Rain árið 2010 sem fékk lofsamlega dóma. Í Beyond: Two Souls ertu í hlut­ verki ungrar stúlku, Jodie Holmes að nafni, sem býr yfir yfirnáttúrulegum kröftum. Bandaríska leyniþjónustan, CIA, fær veður af þessari náðargáfu Jodie og slæst hún í lið með CIA í bar­ áttunni gegn glæpum og spillingu um víða veröld. En ekki er allt sem sýnist og brátt snýst líf hennar upp í baráttu um að komast af. Með Beyond: Two Souls virðist Quantic Dream hafa ætlað að byggja á þeirri sigurformúlu sem gerði Heavy Rain svo góðan – leikurinn fékk fjórar og hálfa stjörnu hjá gagnrýnanda DV á sínum tíma. Þó svo að þetta sé í eðli sínu hasarleikur er hann hádrama­ tískur á köflum. Líkt og Heavy Rain er Beyond: Two Souls víxlverkandi leik­ ur (e. interactive). Þetta þýðir að þær ákvarðanir sem þú tekur hverju sinni hafa áhrif á leikinn og hvernig hann spilast. Quantic Dream fór þá leið að þessu sinni að fá þekkta Hollywood­ leikara til að leika aðalsögupersón­ urnar. Jodie Holmes er leikin af Ellen Page og Willem Dafoe leikur geðlækn­ inn sem Ellen kynnist ung að árum. Þetta gefur leiknum ákveðið krydd og á köflum er engu líkara en maður sé staddur í bíómynd. En Beyond: Two Souls er ekki sterkari en veikasti hlekkurinn. Sögu­ þráður leiksins er á köflum algjör hrærigrautur og langdreginn. Hann flakkar fram og til baka í tíma og stundum þarf maður að hafa sig allan við að átta sig á hvað er að gerast. Þá er spilunin nokkuð einhæf og lendir Jodie oft í svipuðum aðstæðum sem verður þreytt til lengdar. Þrátt fyrir þessa galla er Beyond: Two Souls virkilega flottur leikur með góðri grafík. Þá eru aðalpersónurn­ ar, sem Ellen Page og Willem Dafoe túlka, trúverðugar. Þegar allt kemur til alls er Beyond: Two Souls hinn þokkalegasti leikur, en samt langt því frá gallalaus. n Tölvuleikur Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Beyond: Two Souls Upplýsingar: Ævintýraleikur Framleiðandi: Quantic Dream Spilast á: PS3 Flott grafík Ellen Page og Willem Dafoe fara með aðalhlutverkin í leiknum. Fór í karókí í New York n Lára Rúnarsdóttir tók dúett með Agnesi úr hljómsveitinni Sykur V ið vorum að spila á tón­ leikum í þeim tilgangi að kynna íslenska tón­ list í New York, við og krakkarnir í Sykur og Snorri Helgason,“ segir söngkonan Lára Rúnarsdóttir í samtali við DV en hún segist hafa átt afmæli í ferðinni og meðal annars hálf týnst í Stóra eplinu. Hún segir viðburðinn, sem hét Reykjavík Calling, hafa ver­ ið lið í því að koma íslensku tónlist­ arfólki á framfæri erlendis og að Ís­ landsstofa hafi einnig komið að samstarfinu. „Það var haft samband við okkur og við beðin um að koma og taka þátt í þessum viðburði, Filt­ er Magazine sá um að velja böndin,“ segir Lára sem gaf út fjórðu breið­ skífuna sína Móment í sumar. Mikill áhugi fyrir Íslandi Að sögn Láru er áhuginn fyrir Ís­ landi mikill vestanhafs. Fjölmargir aðdáendur lands og þjóðar væru meðal áheyrenda og stemningin gríðarleg. „Maður fann það sér­ staklega þetta kvöld. Fólk sagði mjög stolt frá því þegar Sykur spurði hverjir hefðu komið til Íslands, þá voru undarlega margir sem réttu upp hendi og sögðust hafa kom­ ið hingað. Það er greinilega sterk tenging við landið og fólk sýnir því mikinn áhuga,“ segir Lára. Hápunktur ferðarinnar Íslenski hópurinn lenti að sögn Láru í skemmtilegu ævintýri á af­ mælisdeginum hennar. „Þetta var eiginlega hápunktur ferðarinnar, við týndumst og enduðum á dúb­ íus neðanjarðarkarókíbar,“ seg­ ir Lára og skellir upp úr. Hún seg­ ir hópinn hafa slegið þessu upp í grín og ákveðið að taka nokkur lög í viðurvist nokkurra hræðna sem voru staddir á barnum. „Það sungu allir nokkur lög, nokkra dúetta og gamalt næntís rapp. Ég og Agnes í Sykur tókum dúettinn Turn Around saman,“ segir Lára sem segist hafa verið búin á því þegar hún kom heim aftur til Íslands. „Mér finnst New York æðisleg borg, rosalega mikil orka og fínt í fimm daga en ég efast um að ég gæti búið þarna.“ Á bandarískum markaði Breiðskífa Láru, Móment, er sem fyrr segir nýútkomin og stefnir Lára á að kynna hana á erlendri grundu. „Við höfum unnið með fyrirtæki þarna úti og erum að fylgja plöt­ unni eftir á bandarískum markaði,“ segir Lára. Hún sagðist þó ekki enn vita hvernig viðtökurnar hafi al­ mennt verið á plötunni en að áhugi tónleikagesta hafi ekki farið á milli mála. Verður á Airwaves Nú fer að líða að fjölsóttustu og stærstu tónlistarhátíðinni á Íslandi frá upphafi, Iceland Airwaves. Fjöl­ margir ferðamenn streyma að utan til landsins eingöngu til þess að upplifa íslenska tónlistarmenn­ ingu í hjarta miðborgarinnar. Lára ætlar að sjálfsögðu ekki að láta sig vanta. „Ég verð á Gauknum á mið­ vikudaginn,“ segir söngkonan að lokum. n Svala Magnea Georgsdóttir blaðamaður skrifar svala@dv.is „Þetta var eigin- lega hápunktur ferðarinnar, við týndumst og enduðum á dúbíus neðanjarðarkarókíbar. Á Airwaves Lára leggur mikið upp úr glæsilegum klæðum og nýstárlegum hár- greiðslum á setti. Lára Rúnars „Það sungu allir nokkur lög, nokkra dúetta og gamalt næntís rapp. Ég og Agnes í Sykur tókum dúettinn Turn Around saman,“ segir Lára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.