Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2013, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2013, Qupperneq 14
É g mæli eindregið með þessu ef maður hefur gaman að því að þrífa, eins og ég,“ segir Arna Björk Unnsteinsdóttir, 19 ára háskólanemi, en hún tekur að sér heimilisþrif fyrir fólk og hefur unnið við það síðan í mars. Á heima- síðunni bland.is má sjá fjölda aug- lýsinga frá fólki og fyrirtækjum sem taka að sér þrif. Yfirleitt er það samn- ingsatriði hvað beri að gera en yfir- leitt snúast þrifin um að ryksuga og skúra gólf, þurrka af yfirborðsflötum, þrífa baðherbergi og eldhús og oft er einnig skipt á rúmum. Yfirleitt eru hreinsiefni innifalin í verðinu. Al- gengt er að greitt sé sérstaklega fyrir þrif á bakaraofnum eða ísskáp. Stór svartur markaður Arna segir verðið fara eftir fermetra- fjölda og umfangi verksins. „Ef fólk vill borga tímakaup er það 4.000 krónur en ég reyni að gera frekar til- boð og hafa fast verð,“ segir hún. Hún miðar við að verð fyrir 100 fermetra íbúð væri milli 7.000 og 10.000 krón- ur. Arna gefur tekjurnar upp til skatts en svört starfsemi á sviði heimilis- þrifa er fyrirferðamikil. Algengt verð fyrir svarta vinnu er um 2.500 til 3.000 krónur á tímann, oft um 7.500 krónur fyrir skiptið eða helmingi minna en hjá fyrirtækjunum sem rukka milli 15.000 og 20.000 krónur. Vill læra meira um rekstur Arna vill gjarnan ná að stofna fyrir- tæki um reksturinn. „Ég er að læra bókfærslu, uppgjör og fyrirtækja- rekstur og er að vinna í að fá að ráða starfsfólk,“ segir hún en hún á von á barni. Önnur kona sem DV talaði við var tilbúin til að vinnan yrði gefin upp, yrði þess óskað en það var ekki regla. Hún sagði ekki mik- ið að gera en var þó með fast heim- ili þar sem hún þrífur reglulega en þau hafa verið fleiri. Aðspurð hvort henni þætti ekki varhugavert að fara heim til ókunnugs fólks án nokkurrar tryggingar segir hún: „Ef það hringir einhver nýr þá fer ég á staðinn og kíki á íbúðina og ef mér líst vel á það þá geri ég tilboð. En ef það hringir til dæmis karlmaður þá er ég kannski með varann á. En yfirleitt eru það konur sem hringja.“ n 14 Neytendur 25. nóvember 2013 Mánudagur Verð á jólabókum breytist lítið n DV kannaði verð á nokkrum jólabókum milli ára E kki er veruleg hækkun á verði jólabóka frá fyrri árum ef tekið er mið af óformlegri könnun sem DV gerði á nokkrum titl- um sem koma út í ár og hafa komið út árin á undan. Í flestum tilfellum lækkar verðið í Nettó. Borið var saman útsöluverð á nýjustu bókum Arnaldar Ind- riðasonar, vinsælum ævisög- um og bókaflokknum Stelpur eft- ir Kristínu Tómasdóttur sem nú sendir frá sér bókina Strákar með Bjarna Fritzsyni. Verðið var kannað í einni bókaverslun, Eymundsson og einni matvöruverslun, Nettó. Í Eymundsson hafa skáldsögur Arnaldar Indriðasonar hækkað í verði um 8,3% frá árinu 2011 en verðið stendur í stað frá fyrra ári. Nýjasta sagan, Skuggasund kostar nú 6.490. Í Nettó kostar Skugga- sund 3,8% meira en Reykjavíkur- nætur frá í fyrra en er samt 12% ódýrari en Einvígið var þegar það kom út árið 2011. Í Nettó kostar barna- og ung- lingabókin Strákar 17% minna en Stelpur geta allt sem út kom í fyrra, en 12% minna en Stelpur frá A-Ö sem út kom árið 2011. Í Eymunds- son hefur barnabókin hækkað um 10% frá því sem var fyrir tveim- ur árum en kostar 5.990 í ár, líkt og árið 2012. Samanburður var gerður á verði þriggja ævisagna, þeirra Jakobs Frímanns Magnússonar, Ellýjar Vilhjálms og Hemma Gunn. Verð á ævisögum stóð í stað í Eymunds- son milli áranna 2011 og 2012 en hefur nú hækkað um 9%. Í upplýs- ingum frá versluninni kom fram að uppgefið verð væri innkaupsverð auk virðisaukaskatts. 12% lækkun hefur verið á ævisögum í Nettó á sama tímabili. n fifa@dv.is Allt í Exel „Ég passa að taka kvittun fyrir öllu og setja allt í Excel- skjal með dálkum fyrir tekjur og útgjöld heimilisins. Fyrst er það pynting svo verður þetta svo gaman þegar maður fer að stjórna fjárstraumnum að það verður eins og að kíkja í nammipoka.“ Greta Ósk Óskarsdóttir, ráðgjafi hjá Fulbright-stofnuninni Sparnaðarráð: Ostinn í frystinn Á mörgum heimilum klárast ost- stykki aldrei alveg heldur er eftir þykkur endi sem sumum finnst ekki alveg passa á brauðsneið þó aðrir viti ekkert betra. Gott ráð er að frysta endann á ostin- um og svo er hægt að rífa hann ofan á pítsur og ofnrétti. Eins er mjög gott að skera ostinn í bita og blanda honum saman við brauðdeig þannig að ostbitarnir komi í ljós þegar brauðið er skor- ið. Þetta er líka tilvalið að gera við afganga af hvítmygluosti sem óvart hefur gleymst aðeins of lengi í ísskápnum. Kolsýra skemmir nýru Dagleg neysla á kolsýrðum drykkj- um getur haft slæm áhrif á nýrun. Þetta er niðurstaða nýrrar rann- sóknar vísindamanna við Osaka- háskólann í Japan sem gerðu tilraun með um átta þúsund þátt- takendum sem allir höfðu heil- brigð nýru. Þátttakendunum var skipt í þrjá hópa og drakk sá fyrsti eina dós af kolsýrðum drykk á dag, annar hópurinn tvær dósir en sá þriðji hélt sig alfarið frá þeim. Eftir þrjú ár var próteininni- hald þvags í 10% þess hóps sem drakk mest orðið of hátt en það er áhættuþáttur varðandi nýrnasjúk- dóma, hjartasjúkdóma og ótíma- bær dauðsföll. Vísindamennirnir rekja hækkunina til hás innihalds frúktósa í drykkjunum. Metsöluhöfundur Bækur Arnaldar standa í stað í verði frá því í fyrra. Hrein íbúð kostar sjö þúsund krónur n Stór svartur markaður n Hafa varann á sér ef karlmaður hringir Auður Alfífa Ketilsdóttir blaðamaður skrifar fifa@dv.is Heimilisþrif „Ef það hringir einhver nýr þá fer ég á staðinn og kíki á íbúðina og ef mér líst vel á það þá geri ég tilboð. En ef það hringir til dæmis karlmaður þá er ég kannski með varann á. En yfirleitt eru það konur sem hringja.“ Lögin tryggi öryggi starfsfólks D rífa Snædal, fram- kvæmdastjóri Starfsgreina- sambandsins, skilaði meist- araritgerð um þessi mál við Háskólann í Lundi fyrir ári. Hún segir eftirspurn eftir starfsfólki í heimilisstörf hafa aukist jafnt og þétt í Evrópu frá tíunda ára- tug síðustu aldar og er það rak- ið til skertrar velferðarþjónustu, aukinna krafna á vinnumarkaði og meiri fjárhagslegrar getu til að greiða fyrir slíka vinnu. Framboðið hefur að sama skapi aukist vegna hins frjálsa flæðis vinnuafls inn- an Evrópusambandsins og EES- svæðisins þar sem fólk frá fátækari svæðum býður fram starfskrafta sína til heimila í ríkari löndum. „Engar rannsóknir eru til á Íslandi um umfang þessarar starfsemi en sterkar vísbendingar eru um svip- aða þróun á Íslandi og í Evrópu,“ segir hún. Hún segir Alþjóðavinnumála- stofnunin hafa lýst áhyggjum vegna þessara starfa. „Þær varða þau skilyrði sem hljótast af sérs- tökum vinnuskilyrðum þeirra sem starfa innan einkaheimila annarra þar sem starfsmaðurinn er ein- angraður frá öðrum í svipuðum sporum. Markaðurinn er að stóru leyti óformlegur sem gerir starfs- fólk á heimilum jafnvel berskjald- aðra og réttarbætur knýjandi,“ segir hún. „Íslensk löggjöf um starfsfólk á heimilum er afsprengi hins gamla bændasamfélags og bergmál úr- eltra sjónarmiða. Starfsfólk á hin- um formlega vinnumarkaði er hins vegar verndað af grundvallarmann- réttindum auk vinnulöggjafarinnar með nokkrum undantekningum þó sem varða vinnutíma og aðbún- að. Starfsfólk á hinum óformlega vinnumarkaði nýtur einnig vernd- ar gegnum mannréttindasáttmála en getur trauðla sótt þessi réttindi. Það eru ríkir hagsmunir til að breyta óformlegum vinnumarkaði í form- legan og reynslan frá Svíþjóð getur nýst vel í því tilliti.“ Þá segir hún fyrir myndir á innlendum vinnu- markaði og í skattalöggjöfinni sem hægt væri að nýta í þeim efnum. Í slíku segir hún sérstaklega mikil- vægt að gæta sérstaklega að hópum eins og unglingum, fólki í vistráðn- ingu (au pair) og innflytjendum. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.