Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.2013, Blaðsíða 4
4 Bækur 22.–24. nóvember 2013 Helgarblað
Miskunnarlaus morðsaga í útvarpinu
n Verk eftir Kristínu frumflutt
S
unnudaginn 24. nóvember
klukkan 13.00 frumflytur Út
varpsleikhúsið verkið Hér
eftir Kristínu Ómarsdóttur
rithöfund í nýrri útvarpsleikgerð
eftir Bjarna Jónsson sem jafnframt
er leikstjóri verksins.
Tónlist við verkið samdi hljóm
sveitin Múm en þetta er þriðja verk
ið sem Bjarni og Múm hafa unnið
saman úr verkum íslenskra nú
tímaskálda. Hin verkin eru Svefn
hjólið eftir Gyrði Elíasson og Augu
þín sáu mig eftir Sjón. Bæði verk
in hlutu Grímuna og Svefnhjólið og
auk þess Norrænu útvarpsleikhús
verðlaunin.
Leikritið fjallar um hermanninn
Rafael sem kemur á bóndabýli þar
sem rekið er heimili fyrir börn.
Hann myrðir alla heimilis
menn, unga sem aldna en einnig
félaga sína tvo, því hann vill hlaup
ast undan stríðinu sem stendur yfir
og gerast bóndi. Hann þyrmir hins
vegar lífi Billiear, barnungrar stúlku
á bænum, og þau tvö hefja einhvers
konar sambúð í veröld þar sem við
teknum gildum og venjum hefur
verið kastað fyrir róða.
Sögukona er leikkonan Bryn
hildur Guðjónsdóttir, Rafael
leikur Hilmir Jensson, með önnur
hlutverk fara Rafnhildur Rósa
Atladóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson,
Pétur Einarsson og Telma Marín
Jónsdóttir. n kristjana@dv.is
Vígaleg valkyrja
n Pólitík í unglingabókmenntum á hug höfunda
M
úrinn eftir Sif Sigmars
dóttur er fyrsta bókin í
sagnabálkinum Freyju
Saga. Aðalsöguhetjan er
ung stúlka, Freyja. Val
kyrja sem stendur frammi fyrir erfiðu
verkefni.
Sagan gerist í fjarlægri framtíð í
niðurníddu landslagi sem einhvern
tímann var Reykjavík. Hafið hefur
flætt upp á land og heimurinn gjör
breyttur. Lífsgæðin skert. Um fúlar
götur hlaupa rottur, símar og tölvur
þekkjast ekki. Í framtíðarborginni
sem kallast Dónol er ekki rafmagn og
einvaldurinn Zheng ræður þar lofum
og lögum.
Vísanir í goðafræði
Sif vísar í norræna menningu með
fjölbreyttum hætti. Nöfn söguhetja
eru mörg fengin úr norrænni goða
fræði og í nokkrum átakasenum má
greina vísanir í goðsögur.
Af þessum sökum og öðrum ættu
fullorðnir jafnt sem unglingar að hafa
gaman af lestri bókarinnar. Það er
þrælsniðugt hjá Sif að fá lesandann
til að ímynda sér niðurnídda höfuð
borgina. Söguhetjur þræða Suður
götuna, Hólalækjartorg og Austur
stræti, göturnar eru myrkar og
skítugar, gráar og litlausar. Þar sem
eitt sinn var Grjótaþorp er Fýlusund,
forarsvað þar sem skólpið flæðir um
göturnar.
Borgin er afgirt með háum og
rammgerðum múr og íbúar borgar
innar hafa skert mannréttindi og ein
valdurinn elur á ótta.
Í anda fantasíubókmennta
málar Sif grípandi framtíðarmynd af
veruleika borgarbúa. Óhugnanlegum
og þeim sem við vildum allra síst.
Þar sem þetta er fyrsta bók í þrí
leik er söguhetjan og sögusvið kynnt
vandlega í upphafi og eins og áður
sagði vekur umgjörðin athygli.
Heimurinn sem Sif skapar er sann
færandi og það eru söguhetjurn
ar líka. Henni tekst á lipran hátt að
höfða til unglinga og gleymir ekki að
vísa í hversdaginn, fjalla um ást og
framtíðarvonir. Eftir því sem líður á
söguna fær lesandinn að vita meira
um sögu borgarinnar og Sif heldur
vandlega um alla þræði.
Pólitískar bókmenntir
Bókin er spennandi og söguþráðurinn
hlykkjast hratt þegar heimurinn hef
ur verið kynntur á sannfærandi hátt.
Heimur fantasíunnar er vel smíðaður
og mjög í anda bóka sem hafa slegið
í gegn síðustu misseri, til að mynda
Hungurleikanna.
Bækurnar eiga það sameiginlegt að
vera pólitískar. Hvetja til gagnrýnnar
hugsunar um vald og eðli ofbeldis. Um
réttlæti og mannréttindi og grunngerð
samfélags. Allt þarft lestrarefni fyrir
ungt fólk í síbreytilegum heimi.
Sif tekst vel að matreiða pólitíkina
án yfirlætis eða tilgerðar. Það er styrk
leiki bókarinnar að heimurinn sem Sif
skapar hefur vísanir í okkar veruleika.
Á okkar tímum eru enn reistir múrar
sem skipta þjóðum, þar er alið á ótta
og hatri í garð þeirra sem búa hinum
megin múrsins. Einræði þrífst víða
og óttinn er kúgunartæki miklu víðar
í hinum frjálsa heimi en við viljum
viðurkenna.
Bók hennar er vægðarlaus og
örlög margra söguhetja grimm, það er
enginn krúttlegur Disneysnúningur í
sjónmáli.
Eins og með aðrar kraftmiklar
fantasíusögur er saga Sifjar tilvalin á
hvíta tjaldið. Kannski við Íslendingar
getum átt okkar eigin Hungurleika,
kaldari, drungalegri og grimmilegri. Já,
og blóðugri. n
Pólitískar fantasíubækur Bækurnar
eiga það sameiginlegt að vera pólitískar.
Hvetja til gagnrýnnar hugsunar um
vald og eðli ofbeldis. Um réttlæti og
mannréttindi og grunngerð samfélags.
Allt þarft lestrarefni fyrir ungt fólk í
síbreytilegum heimi. Mynd Sigtryggur Ari
Dómur
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Freyjusaga:
Múrinn
Höfundur: Sif Sigmarsdóttir
Útgefandi: Mál og menning
365 blaðsíður
Útgáfuteiti Óskars Magnússonar
Keikur í
köflóttu
Það var margt um manninn í út
gáfuteiti Óskars Magnússonar í
Eymundsson í Austurstræti í gær.
Óskar fagnaði útgáfu fyrstu
skáldsögu sinnar, Látið síga pilt
ar, sem á kápu hennar er lýst sem
átakasögu bændafólks við nátt
úruöfl og bankabrögð.
Óskar er lögfræðingur að
mennt og hefur áður gefið út tvö
smásagnasöfn, Borðaði ég kvöld
mat í gær? (2006) og Ég sé ekkert
svona gleraugnalaus (2010). Hann
hefur komið víða við á starfsferli
sínum og starfað við stjórn fyrir
tækja og fjölmiðlun.
Óskar las upp úr verki sínu og
vakti athygli í glæsilegum, köflótt
um jakka.
Vinir og velgjörðamenn létu
sig ekki vanta. Jón Steinar Gunn
laugsson, Sigurður Gísli Pálma
son, Inga María, Þorsteinn frá
Hamri, Jóhann Páll Valdimarsson
og fleiri glöddust með Óskari.
„Kannski við
Íslendingar
getum átt okkar
eigin Hungurleika, kaldari,
drungalegri og grimmi-
legri. Já, og blóðugri.
rithöfundur í útvarpi
Verk eftir Kristínu verður
frumflutt á Rás 1 á sunnudag.
Mynd EyþÓr ÁrnASon