Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1914, Blaðsíða 10
8
Búnaðarskýrslur 1912
Sjálfseignarbændur........ 2 261
Leiguliðar................ 3 773
Samtals 6 034
Vantar þá 31 manns í bændatöluna, sem áður er getið; munu
eigi hafa verið nægilegar uppljfsingar fyrir hendi um þá til þess að
skipa þeim í þessa flokka. Samkvæmt þessum upplýsingum eru
62—63% bænda leiguliðar, en 37—38°/o sjálfseignarbændur. Hvern-
ig sjálfseignarbændur og leiguliðar skiftust eftir sýslurn er sýnl í
manntalinu (Manntal á íslandi 1. desember 1910 bls. 172) og víðar
í því riti má finna ýmsan fróðleik um þann mannfjölda, er á land-
búnaði lifir.
Samkvæmt jarðamatinu 1861 og síðara mati á fáeinum jörðum er
tala ábúðarhundraða á landinu alls................... 86 189.3 hndr.
Samkvæmt búnaðarskýrslunum hefur árið 1912 verið búið á. 85 514,o —
Mismunur 675,3 hndr.
Mikill hluti þessa mismunar er orðinn að kaupstaðarlóðum, en
nokkur hluti hans eru eyðijarðir. Hvort þeim liefur fjölgað nokkuð
síðari árin verður ekki sjeð með neinni vissu á búnaðarskýrslunum.
Að vísu sjest á þeim, að tölu býla hefur smáfækkað síðustu áratug-
ina. En það getur alveg eins stafað af því, að fleirbýli á sama bæ
hafi orðið að einbýli eða að hjáleigur liafi verið Iagðar undir heimajörð.
Þótt bændum hafi fækkað nokkuð hefur samt gripaframteljend-
um í heild sinni fjölgað töluvert, því að búlausum mönnum, sem
telja fram skepnur, fjölgar mikið. Eru það ýmist þurrabúðarmenn,
húsmenn, lausafólk eða hjú. í rauninni gætu víst sumir þurrabúð-
armennirnir, sem einhverja grasnyt hafa, eins vel kallast bændur
eins og sumir þeir sem búa á einhverjum örlitlum jarðarskika.
II. Búpeningur.
Le bétail.
Siðustu árin hefur tala nautgripa verið svo sem hjer segir
1909 1910 1911 1912
Kýr og kelldar kvígur.... ... 17 375 17 843 18158 18 502
Griðungur og geldneyti... 892 1 188 1 104 939
Veturgamall nautpeningur ... 2 449 2911 2 843 2 598
Kálfar ... 4 039 4 396 3 877 4 246
Samtals 24 755 26 338 25 982 26 285