Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1914, Blaðsíða 12
10
Búnaðarskýrslur 1912
Hrossunum hefur fjölgað um tæp 2 þúsund síðasta árið. Ann-
ars hefur hrossunum heldur farið fækkandi á undanfarandi árum.
Um skepnufjölda landsmanna eru til skýrslur alt frá byrjun 18.
aldar, er þeir Árni Magnússon og Páll Vídalín Ijetu telja allan bú-
pening á landinu og skrásetja í jarðabók þá, sem kend er við Árna
Magnússon. Var það gert árið 1703 og næstu árin þar á eftir uns
talning hafði farið fram á öllu landinu og var því lokið árið 1712.
Síðan var kvikfjenaður talinn 1770 og 1783—84, en árið 1787 fyrir-
skipaði stjórnin, að gefa skyldi árlega skýrslu um skepnufjöldann
og hefur því verið framfylgt síðan, en sumt af þeim skýrslum er nú
glatað. Ágrip af ílestum eldri skýrslum um skepnufjöldann, sem til
eru fram að 1856, er að finna í ritgerð eftir Arnljót Ólafsson um
búnaðarhagi íslendinga i Skýrsluin um landshagi á íslandi II. bindi
bls. 31—220, en skýrslur síðari ára eru í áframhaldi sama ritverks
og síðar í Landshagsskýrslunum. Skal hjer sett stutt yfirlit yfir
skepnufjöldann á ýmsum tímum samkvæmt skýrslum þessum:
Naut Sauðíje Hross
1703 .... 35 860 278 994 26 909
1770 .... 30 096 140 056 32 289
1783 .... 20 067 236 251 35 939
1800 .... 23 298 304 198 28 300
1820 .... 23 023 260 156 28166
1834 .... 27 703 398 839 39 307
1855 .... 24 067 489 932 40 389
1871 .... 19111 366 080 29 689
1890 .... 20 947 445 855 31281
1901 .... 25 674 482 189 43 199
1904 .... 30 498 495 170 47 545
1905 .... 26 847 543 312 48 975
1906 .... 25 159 549 563 48 908
1907 .... 24 367 526 195 46 592
1908 .... 23413 512418 45121
1909 .... 24 755 557 127 44 372
1910 .... 26 338 578 634 44815
1911 .... 25 982 574 053 43 879
1912 .... 26 292 600 549 45 847
í sauðfjártölunni eru lömb elcki meðtalin. Aftur á móli er í
hinum dálkunum talið ungviði, kálíar og lolöld, nema árin 1855 og
1871, því að frá þeim árum eru ekki skýrslur til um tölu þess.
Enda þótt framtalið á sauðfjenu hafi verið og muni enn vera mjög
slakt, eins og áður er getið, mun samt nokkuð mega marka breyt-