Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1914, Blaðsíða 14
12
Búnaðarskýrslur 1912
á landinu 61 428 dagsláttur eða 19 604 hektarar1 2), en eftir búnaðar-
skj7rslunum 1912 eru túnin 61 455 dagsláttur eða 19 613 hektarar*).
Eftir þessu hefðu túnin árið 1912 að eins átt að hafa stækkað um
27 dagsláttur eða 9 hektara, en harla ósennilegt er að þau hafi ekki
stækkað meira, því að árið 1911 voru samkvæmt jarðabótaskýrslum
búnaðarfjelaganna grædd út tún samtals 491 dagsl. eða 124,s ha.
Það virðist svo sem mestur hluti nj7ju túnanna hafi ekki verið talinn
með. Yfirleitt virðist skýrslunum um túnastærðina vera töluvert á-
bótavant. Sumstaðar mun ár frá ári vera talin sama túnastærð-
in án tillits til nokkurra breytinga. Líklega er túnastærðin
nokkru meiri heldur en skýrslurnar sýna. Styðst sú getgáta við
töðufenginn af þeim. Búfróðir menn telja, að af dagsláttunni muni
varla fást að meðaltali meir en 10 hestar af töðu. Árið 1912 var
töðufengurinn samkvæmt búnaðarskýrslunum rúml. 700 þús. hestar
og bendir það til þess, að túnin muni vera meiri en þau eru talin í
skýrslunum.
Kálgarðar og annað sáðland er heldur eigi svo nákvæmlega
greint í búnaðarskýrslunum sem æskilegt væri. Árið 1912 vantaði
skýrslu um þetta atriði úr 14 hreppum. í 2 þeirra, Óspaksej'rar-
hreppi og Grímseyjarlireppi, hafa engir kálgarðar verið tilgreindir í
neinni búnaðarskýrslu síðan um aldamól og hefur því verið litið svo
á sem þar sjeu engir kálgarðar, en í hinum 12 hreppunum hafa
verið settar tölurnar frá næstu árunum á undan, sem skýrslur eru
til frá. Samkvæmt því verður stærð kálgarðanna 1912 3 466 114
fermetrar eða 347 hektarar. Samkvæmt búnaðarskýrslunum 1911
voru kálgarðar og sáðreitir það ár rúmir 335 hektarar3 * * *). Eftir
jarðabótaskýrslunum 1911 hefðu átt að bætast við tæpir 15 ha og
hefði því mátt búast við, að sáðreitirnir yrðu 350 ha árið 1912, en
þeir eru 347. Hafa þvi eigi allir nýju sáðreitirnir verið teknir
upp i búnaðarskýrslurnar. Það mun vera svo allviða um sáðreit-
ina líkt og um túnin, að stærðin sje talin sú sama ár eftir ár án
tillits til breytinga, og munu þeir því að líkindum vera nokkru
stærri heldur en þeir eru taldir i skýrslunum.
1. í Lhsk. 1912 bls. 52 er túnnstærðin 1911 talin 61 24S dagsláttur, en það stafar af þvi,
að i nokkrum hreppum (7) er túnastærðin skakt tilfærð vegna samlagningarskekna eða mis-
skriftar i hreppstjóraskýrslunum. Hjer liafa þessar skekkjur verið leiðrjettar og ennfremur
bætt við samkvæmt skýrslum næstu ára túnastærð 5 hreppa, sem cngin tún voru tilgreind i 1911.
2. Úr 8 hreppum vantar skýrslu um túnastærðina árið 1912. Er hún þvi sett þar eftir
skýrslum næstu ára.
3. í Llisk. 1912 bls. 52 ertt kálgarðar taldir 927143 ferfaðmar (eða 329 lta), en lijer hefur
verið bætt við samkvæmt skýrslum næstu ára kálgarðastærð 14 ltreppa, er skýrslu vantaði um
1911, og ennfremur hefur verið lciðrjett kálgarðastærð Eiðahrepps, sem var 3 508 ferfaðmar, en
ekki 12 443 eins og stendur i Lhsk. 1912 bls. 42. Verður þá kálgarðastærðin alls 1911 945 748
ferfaðmar eða 335 ha.