Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1916, Page 8
6*
Búnaðorskýrslur 1914
Sjálfseignarbændur.......... 2 261
Leiguliöar.................. 3 773
Samtais 6 034
Vantar þá 31 manns í bændatöluna, sent áður er getið; munu
eigi hafa verið nægilegar upplýsingar fyrir hendi um þá til þess að
skipa þeim í þessa flokka. Samkvæmt þessum upplýsingum eru
62—63°/o bænda leiguliðar, en 37—38% sjálfseignarbændur. Hvernig
sjálfseignarbændur og leiguliðar skiftust eftir sýslum er sýnt í mann-
talinu (Mannlal á íslandi 1. desember 1910, bls. 172) og víðar í
því riti má finna ýmsan fróðleik um þann mannfjölda, er á land-
búnaði lifir.
Síðan 1913 bafa eingöngu verið taldir þeir framteljendur, sem
töldu fram einhverja gripi, en áður hafa stundum verið taldir með
þeir, sem enga gripi töldu fram, beldur að eins einlivern garðávöxt.
Pó hefur tala þeirra framteljenda verið mjög óáreiðanleg, því að
sumstaðar liefur allur garðávöxtur verið talinn í einu lagi án þess
að sæist á bve marga hann skiftist, og svo hafa víst víða fallið í
burtu þeir, sem ekkert höfðu annað fram að telja en garðávöxt.
Hefur þvi þólt rjettast að tilfæra hjer að eins tölu þeirra, sem telja
fram gripi, þvi að hún mun vera nokkurn vegin áreiðanleg, en við
þessa breylingu fækkar framteljendum nokkuð, einkum í kauptúnum
og sjóplássum.
Samkvæmt jarðamatinu 1861 og síðara mali á fáeinum jörðum er
tala ábúðarhundraða á landinu alls.................... 86 189.:i hundr.
Samkvæmt búnaðarskýrslunum hefur árið 1913 verið búið á. 85 298.7 —_
Mismunur 890.C —
Mikið af þessum mismun er orðinn að kaupstaðarlóðum, en
nokkuð eru eyðijarðir. En annars er bæpið að byggja nokkuð á
breylingunuin á tölum þessum frá ári lil árs, því að skýrslurnar
virðast víða harla ónákvæmar að þessu leyti.
II. Búpeningur.
Le bélail.
Árið 1913 —14 var víða um land afarslæmt fyrir sveitabændur.
Veturinn var langur og vorið kalt og heyin viða ónóg og vond
vegna óþörka sumarið áður. Fjenaðarhöld voru því i langversta lagi
og fjárfellir töluverðúr. Samkvæml framtalinu í búnaðarskýrslunum
taldist sauðfjenaður á öllu landinu í fardögum það ár (að lömbum