Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1923, Page 9
Inngangur.
Introduction.
I. Búpeningur.
Lc bétail.
Framleljendur búpenings hafa verið taldir í búnaðarskýrsl-
unum svo sem hjer segir:
1917 .... .. 11 925
1918 .... .. 12 103
1919 ... .. 11 940
1920 ... .. 11 924
1921 ... .. 11 691
Árið 1921 hefur tala framteljenda fækkað nokkuð.
í fardögum 1921 var sauðfjenaður talinn samkvæmt búnað-
arskýrslunum 554 þúsund. Reynslan undanfarið bendir til þess,
að fjártalan í búnaðarskýrslunum muni vera töluvert of lág. Þannig
reyndist sauðQenaður við fjárskoðunina veturinn 1906—07 um 109
þús. fleiri en fram var lalið I búnaðarskýrslunum vorið eftir (1907).
En með þvi að ekki virðist ástæða til að ætla, að framtalið muni
vera mun betra eða lakara eitt árið heldur en annað, mun líklega
óhætt að byggja á búnaðarskýrslunum samanburð milli ára um til-
tölulega fjölgun eða fækkun.
Vorið 1920 töldu búnaðarskýrslurnar sauðfjenaðinn 579 þúsund.
Hefur honum því fækkað fardagaárið 1920 — 21 um 25 þúsund eða
4.3 %>. Fækkunin á þessu ári hefur því verið næstum tvöföld á við
fjölgunina árið á undan, svo að tala sauðfjenaöarins hefur aldrei
verið eins lág síðan árið 1908. Árið 1915 var hún samt svipuð, en
þó lítið eitt hærri (556 þúsund).
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hvernig sauðfjenaðurinn skiftist vorið
1921 samanborið við árið á undan.