Hagskýrslur um landbúnað

Tölublað

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1923, Blaðsíða 9

Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1923, Blaðsíða 9
Inngangur. Introduction. I. Búpeningur. Lc bétail. Framleljendur búpenings hafa verið taldir í búnaðarskýrsl- unum svo sem hjer segir: 1917 .... .. 11 925 1918 .... .. 12 103 1919 ... .. 11 940 1920 ... .. 11 924 1921 ... .. 11 691 Árið 1921 hefur tala framteljenda fækkað nokkuð. í fardögum 1921 var sauðfjenaður talinn samkvæmt búnað- arskýrslunum 554 þúsund. Reynslan undanfarið bendir til þess, að fjártalan í búnaðarskýrslunum muni vera töluvert of lág. Þannig reyndist sauðQenaður við fjárskoðunina veturinn 1906—07 um 109 þús. fleiri en fram var lalið I búnaðarskýrslunum vorið eftir (1907). En með þvi að ekki virðist ástæða til að ætla, að framtalið muni vera mun betra eða lakara eitt árið heldur en annað, mun líklega óhætt að byggja á búnaðarskýrslunum samanburð milli ára um til- tölulega fjölgun eða fækkun. Vorið 1920 töldu búnaðarskýrslurnar sauðfjenaðinn 579 þúsund. Hefur honum því fækkað fardagaárið 1920 — 21 um 25 þúsund eða 4.3 %>. Fækkunin á þessu ári hefur því verið næstum tvöföld á við fjölgunina árið á undan, svo að tala sauðfjenaöarins hefur aldrei verið eins lág síðan árið 1908. Árið 1915 var hún samt svipuð, en þó lítið eitt hærri (556 þúsund). Eftirfarandi yfirlit sýnir, hvernig sauðfjenaðurinn skiftist vorið 1921 samanborið við árið á undan.

x

Hagskýrslur um landbúnað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um landbúnað
https://timarit.is/publication/1125

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.