Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1927, Síða 10
8
Búnaðarskýrslur 1925
þeim fækkað. Tiltölulega mest fjölgun hefur verið í Strandasýslu (9 °/o)’
en mest fækkun í Eyjafjarðarsýslu og Þingeyjarsýslu (7 °/o).
Hænsi voru í fyrsta sinni talin í búnaðarskýrslunum 1919. 1924
voru þau talin 19 771, en vorið 1925 22036. Líklega mun þó mega gera
ráð fyrir, að tala þessi sje of lág bæði árin.
Á síðari árum hefur skepnueign landsmanna samkvæmt búnaðar-
skýrslunum verið í heild sinni og samanborið við mannfjöldann svo sem
hjer segir:
Á 100 manns
Sauðfe Nauf Hross Sauðfje Naut Hross
1901 .. . . . 482 189 25 674 43 199 614 33 55
1911 .. . . . 574 053 25 982 43 879 671 31 51
1916... . . 589 343 26 176 49 146 656 29 55
1917. . . . . 603 697 25 653 51 327 661 28 56
1918 ... . . 644 971 24 311 53 218 702 26 58
1919. . . .. 564 683 22 990 51 578 608 25 56
1920... . . 578 768 23 497 50 645 611 25 54
1921 . .. .. 553 900 23 733 49 320 582 25 52
1922... .. 571 248 26 103 51 042 600 27 53
1923 . .. .. 550 190 25 853 50 429 563 .26 52
1924 . . . . . 583 180 26 949 51 009 593 27 52
1925 .. . . 565 695 26 281 51 524 566 26 52
Tala sauðfjár og hrossa hefur aldrei verið meiri heldur en 1918,
en nautgripatalan var hæst 1902, 27 þúsund, (á fyrra hluta 18. aldar var
hún þó nokkru hærri).
Um skepnufjölda landsmanna á umliðnum öldum er yfirlit í Búnaðar-
skýrslum 1913, bls. 8* —10*, og vísast hjer til þess. Þó skal þess gelið
að í því er sú villa, að nautgripir 1904 eru taldir 30 498 í stað 25 498.
II. Ræktað land.
Terrain cultivé.
Samkvæmt lögum nr. 58, 3. nóv. 1915 átti að mæla upp öll tún og
matjurtagarða á landinu utan kaupstaða og átti því að vera lokið 1920.
Ummálsuppdrættir af hinum mældu túnum áttu að sendast stjórnarráðinu
og hefur hagstofan fengið þá til afnota, sem komnir eru. En þegar skýrsl-
ur þessar voru samdar vantaði enn mælingar úr 7 hreppum að öllu leyti
og úr 17 hreppum að nokkru leyti. í töflunum hjer á eftir er túna- og