Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1927, Blaðsíða 18
16
Búnaðarskýrslur 1925
hvert dagsverk, til túnræktar 1 kr. á dagsverk og til garðræktar 80 au.
á dagsverk. Þó fær enginn styrk á fyrstu 10 dagsverkin, sem hann vinnur
á ári að túnrækt, fyrir hvern verkfæran mann, sem hann hefur í heimili
til vinnu. Tala styrkþega var alls 2 280 og hafa því komið rúml. 77 kr.
á hvern -styrkþega að meðaltali. Hvernig tala styrkþega, dagsverkatala
við þessar jarðabætur og sfyrksupphæðin skiftist á sýslurnar, sjest á 3.
yfirliti, sem gert hefur verið af Búnaðarfjelaginu. — Auk þessa styrks
var 20 þús. kr. sfyrkur veittur á fjárlögunum fyrir árið 1926 til búnaðar-
fjelaga í hlutfalli við aðrar jarðabætur unnar árið 1925.
I 4. yfirliti, sem einnig er gert af Búnaðarfjelaginu, sjest hve miklar
jarðabætur taldar í dagsverkum hafa verið gerðar á kirkjujörðum
og þjóðjörðum árið 1925 er metnar hafa verið til jarðarafgjalds. Hafa
það verið alls 4 768 dagsverk á 92 kirkjujörðum og 805 dagsverk á 20
þjóðjörðum. Koma þá að meðaltali 52 dagsverk á hverja kirkjujörð, en
40 dagsverk á hverja þjóðjörð, þar sem jarðabætur hafa verið gerðar til
landskuldargreiðslu. Dagsverkið er hjer metið eftir verðlagsskrá í hverri
sýslu, en aðeins 2b upphæðarinnar telst landskuldargreiðsla. A sumum
jörðum hafa jarðabæturnar orðið það miklar, að 2b verðs þeirra þannig
reiknað nemur meiru en afgjald eins árs og gengur þá afgangurinn
upp í afgjald næsta árs á eftir. A sumum jörðum hefur líka verið slíkur
afgangur frá fyrra ári og sýna því landsskuldatölurnar í töflunni ekki,
hvað mikil landsskuld hefur verið greidd á árinu með jarðabótum.